Fréttablaðið - 21.01.2012, Síða 87
LAUGARDAGUR 21. janúar 2012 55
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Sunnudagur 22. janúar 2012
➜ Tónleikar
20.00 Eivör Pálsdóttir verður með
tónleika í Langholtskirkju þar sem hún
mætir berfætt með gítarinn sinn. Miða-
verð er kr. 3.000.
20.00 Ísafoldarkvartettinn leikur á tón-
leikum á vegum Kammermúsíkklúbbs-
ins í Bústaðakirkju. Fluttir verða tveir af
þekktustu strengjakvartettum tónlistar-
sögunnar eftir frönsku impressjónistana
Claude Debussy og Maurice Ravel.
➜ Leiklist
14.00 Möguleikhúsið sýnir barna-
leikritið Langafi prakkari í Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi. Leikritið er
byggt á sögum Sigrúnar Eldjárns og er
miðaverð kr. 2.000.
➜ Félagsvist
14.00 Félagsvist verður spiluð í Breið-
firðingabúð, Faxafeni 14. Allir velkomnir.
19.00 Bridge, tvímenningur, er spilaður
í Breiðfirðingabúð Faxafeni 14. Allir
velkomnir.
➜ Sýningar
14.00 Sýningin Klippt og skorið opnar
í kaffihúsi Gerðubergs. Um er að ræða
sýningu Guðnýjar Guðmundsdóttur á
klippimyndum.
➜ Sýningarspjall
14.00 Hjálmar Sveinsson
heimspekingur mun fjalla um verk Libiu
Castro og Ólafs Ólafssonar á sýningunni
Í afbyggingu. Sýningin stendur nú yfir í
Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg og fer
spjallið þar fram.
15.00 Á Kjarvalsstöðum mun sýningar-
stjórinn og listfræðingurinn Hrafnhildur
Schram mun ræða við gesti um
sýninguna Draumalandið mitt í norðri -
Karen Agnete Þórarinsson, sem opnuð
var á Kjarvalsstöðum liðna helgi.
➜ Kvikmyndir
15.00 Franska kvikmyndin Á botninum
er sýnd í MÍR, Hverfisgötu 105. Myndin
er byggð á leikriti eftir Maxím Gorkí.
Aðgangur er ókeypis.
➜ Dansleikir
20.00 Félag eldri borgara í Reykjavík
stendur fyrir dansleik í félagsheimili
sínu, Stangarhyl 4. Danshljómsveitin
Klassík leikur létta danstónlist og er
aðgangseyrir kr. 1.500.
➜ Tónlist
16.00 Andrea Jónsdóttir spilar gamlar
rokkperlur af plötum á
Ob-La-Dí Frakkastíg 8.
Upplýsingar um
viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík
2012 verða sendir til íbúa á næstu dögum.
Fasteigna gjöldin verða innheimt í gegnum
heima banka þar sem jafnframt er hægt að
prenta út greiðsluseðil. Greiðsluseðlar verða
ekki sendir út en hægt er að óska eftir heim-
sendum greiðsluseðlum í gegnum þjónustu-
ver Reykjavíkurborgar í síma 411 11 11.
Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar annast álagningu og innheimtu á
fasteignaskatti, lóðaleigu og sorphirðugjaldi.
Þeir sem fengu lækkun á fasteignaskatti og fráveitugjaldi á liðnu ári, fá
einnig lækkun á árinu 2012. Við álagningu fasteignagjalda nú í janúar
verður afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við
tekjur ársins 2010. Þegar álagning vegna tekna ársins 2011 liggur fyrir
næsta haust, verður afslátturinn endanlega ákvarðaður og verða þá
allar breytingar tilkynntar bréflega.
Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar framkvæmir breytingar á fast-
eigna skatti og fráveitugjaldi elli- og örorkulífeyrisþega og þarf því ekki
að sækja sérstaklega um lækkun eða niðurfellingu þessara gjalda.
Skilyrði lækkunar eru að viðkomandi elli- eða örorkulífeyrisþegi eigi lögheimili
í Reykjavík og sé þinglýstur eigandi viðkomandi fasteignar og/eða geti átt rétt
á vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt
og eignaskatt.
Einungis er veitt lækkun vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Borgarráð hefur ákveðið að tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega vegna
niðurfellingar/lækkunar fasteignaskatts á árinu 2012 verði eftirfarandi:
100% lækkun: Einstaklingar með tekjur allt að 2.460.000 kr.
Hjón með tekjur allt að kr. 3.440.000.
80% lækkun: Einstaklingar með tekjur á bilinu 2.460.000 til 2.830.000 kr.
Hjón með tekjur á bilinu 3.440.000 til 3.840.000 kr.
50% lækkun: Einstaklingar með tekjur á bilinu 2.830.000 til 3.290.000 kr.
Hjón með tekjur á bilinu 3.840.000 til 4.580.000 kr.
Umhverfis og samgöngusvið Reykjavíkurborgar, Höfðatorg, Borgartúni 12-
14, veitir upplýsingar varðandi álagningu og breytingar á sorphirðugjaldi í
síma 411 1111. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið
sorphirda@reykjavik.is.
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, annast álagningu og innheimtu vatns-
gjalds og fráveitugjalds og veitir upplýsingar í síma 516 6000. Einnig má leita
upplýsinga með tölvupósti á netfangið or@or.is.
Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar, Höfðatorg, Borgartúni 12-14, veitir
upplýsingar varðandi álagningu fasteignaskatts og lóðarleigu og breytingar á
þeim í síma 411 1111. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið
fasteignagjold@reykjavik.is.
Hægt er að leita upplýsinga um ofangreind atriði á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is www.reykjavik.is
Fasteignagjöld 2012
Borgarstjórinn í Reykjavík, 21. janúar 2012.