Fréttablaðið - 21.01.2012, Qupperneq 92
21. janúar 2012 LAUGARDAGUR
Bíó ★★★★★
The Descendants
Leikstjórn: Alexander Payne
Leikarar: George Clooney, Shai-
lene Woodley, Judy Greer, Beau
Bridges, Matthew Lillard, Robert
Forster, Amara Miller, Nick Krause
George Clooney leikur Matt King,
lögfræðing á Hawaii sem hefur
vanrækt dætur sínar tvær. Eigin-
kona hans lendir í bátaslysi og fer í
dauðadá og því þarf King að hysja
upp um sig og annast börnin sín. En
King kann illa á pabbahlutverkið
og dæturnar gera honum það ekki
beinlínis auðveldara fyrir.
The Descendants er grát bros-
leg vanda mála mynd þar sem
mikið mæðir á aðal leikaranum.
Clooney er sterkur leikari og fyrir
vikið verður Matt King flókin og
spennandi persóna. Alexander
Payne er frábær leik stjóri í
stöðugum vexti og hér toppar hann
öll fyrri verk. Senan þar sem eldri
dóttirin öskrar í kafi sund laugar er
tilfinninga leg kjarn orku sprengja,
án þess þó að vera til gerðar leg, en
sorg í kvikmyndum getur mjög auð-
veldlega um turnast í sorgarklám.
Payne er þó óhræddur við að létta
okkur lundina annað slagið, og sum
atriðanna eru sprenghlægileg.
Myndin er áferðar fögur og
Hawaii fær að njóta sín, en
áhorfendur hafa eflaust ekki oft
fengið að sjá heila mynd sem gerist
þar og tengja staðinn eflaust helst
við sumar leyfi á exótískum slóðum
en ekki erjur, sorg og yfir vofandi
dauða. King gefur allavega lítið
fyrir paradísar stimpilinn og segir
hana mega fara fjandans til. Tónlist
myndarinnar er sköpuð af heima-
mönnum og eykur það heildar-
áhrifin til muna. Hvern hefði
grunað að þessi vinsæli ferða-
manna staður ætti sér menningar-
legar rætur, mun eldri en allar
staðalímyndir um brimbretti og
kókoshnetubikiní?
Það er eitthvað ákaflega fallegt
og einlægt við The Descendants.
Gamla tuggan um að lífið sé
hverfult á alltaf við, en Payne
heldur því fram að aldrei sé neitt
of seint. Hvort sem þú þarft að
byrja að ala upp börnin þín, segja
deyjandi ástvini eitthvað eða að
læra að meta fegurð umfram fé.
Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Ímynd Hawaii verður
aldrei söm í mínum augum, en nú
langar mig ennþá meira að fara
þangað.
Fjandinn hirði
paradís
STERKUR George Clooney stendur fyrir sínu í The Descandants.
Leikkonan Katherine Heigl vill
snúa aftur í læknaþættina Grey´s
Anatomy. Hún hefur beðið Shonda
Rhimes, höfund þáttanna, um að
skrifa sig inn í þættina en veit ekki
hvort henni verður að ósk sinni.
„Að semja svona þætti er mjög
flókið. Hún þarf að skrifa fyrir
mjög margar persónur þannig að
ég veit ekki hvort ég passa inn í
sýn þeirra á þessa þáttaröð sem
er í gangi, á þá næstu eða hversu
lengi sem þetta á eftir að ganga,“
sagði Heigl. Hún yfirgaf Grey´s
Anatomy árið 2010 með látum eftir
að hafa gagnrýnt persónu sína,
Izzie Stevens.
Hinn 33 ára Heigl vill vita hver
örlög Stevens verða en hún sást
síðast yfirgefa Seattle Grace-
sjúkrahúsið eftir að eiginmaður
hennar Alex batt enda á samband
þeirra. „Ég vil bara vita hvað kom
fyrir hana, hvert hún fór og hvað
hún er að gera í dag.“
Heigl hefur einbeitt sér að
kvikmyndaleik upp á síðkastið.
Hún lék í rómantísku myndinni
New Year´s Eve og nýlega lauk hún
við leik sinn í The Wedding þar
sem Robert De Niro, Diane Keaton
og Robin Williams eru mótleikarar
hennar.
Heigl vill snúa aftur
í Greý s Anatomy
VILL SNÚA AFTUR Katherina Heigl
vill snúa aftur í læknaþættina Grey’s
Anatomy.