Fréttablaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 21
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
V
eitingastaðurinn Slipp-
urinn verður opnaður
í gamla Magnahús-
inu í Vestmannaeyjum
í byrjun sumars. Í húsinu, sem
var með fyrstu steinhúsunum í
Eyjum, var lengi starfrækt vél-
smiðja tengd slippnum en það
hefur verið notað sem veiðar-
færageymsla um margra ára
skeið. Matreiðslumaðurinn
Gísli Matthías Auðunsson og
fjölskylda hans standa að baki
veitingastaðnum en fjölskyldan
hafði lengi gengið með þann
draum í maganum að opna veit-
ingastað í húsinu.
„Það er rík kokkahefð í fjöl-
skyldunni og þegar tækifæri
gafst ákváðum við að slá til en
eigandi hússins, Matthías Ósk-
arsson, er mjög hliðhollur breyt-
ingunni og hefur aðstoðað okkur
mikið. Aðrir eigendur staðarins
eru Sigurður F. Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Nítjándu í Kópa-
vogi og fyrrum landsliðskokkur,
foreldrar Gísla og systkini. Sig-
urður er uppalinn Vestmanna-
eyingur og móðurbróðir Gísla.
Megináherslan á nýja staðnum
verður að sögn Gísla hráefni úr
heimabyggð. „Við sækjum hrá-
efni hér í kringum eyjarnar og
leitum til bænda í Landeyjum
eftir kjöti og grænmeti. Þá
munum við eftir fremsta megni
rækta kryddjurtirnar okkar
sjálf. Megináhersla verður þó á
sjávarfang og við munum fylgja
hugmyndafræði Slow Food þar
sem áhersla er lögð á kjarngóðan
mat án aukaefna. Umfram allt
viljum við þó búa til fjölskyldu-
stað.“ Gísli segir þónokkra veit-
ingastaði í Eyjum en engan með
slíkar áherslur og vonast til að
heima- og ferðamenn kunni vel
að meta. Hann vill sem minnstu
breyta á staðnum.
„Við viljum halda í söguna og
munum einungis setja upp veggi
fyrir nauðsynjar eins og salerni
og eldhús. Vélsmiðjusalnum, þar
sem verður setið til borðs, ætlum
við sem minnst að breyta. Hann
er á annarri hæð hússins með
útsýni yfir slippinn, höfnina og
Heimaklett.“
vera@frettabladid.is
Nýtt líf í Magnahúsið
MYND/ÓSKAR
Veitingastaður með áherslu á hráefni úr heimabyggð verður opnaður í Vestmannaeyjum í byrjun sumars.
Íslenskt súkkulaði frá Nóa Síríus er notað í búðing og
ýmsa eftirrétti á kaffihúsi í East Village í New York sem ber
heitið Puddin´ by Clio. Kaffihúsið sérhæfir sig í sælkera-eftir-
réttum. Eigandi og kokkur á staðnum kynntist súkkulaði
Nóa Síríus í Whole Foods Market og notar nú 70% Konsum
súkku laðið sem uppistöðu í réttum sínum. www.freisting.is
Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is
BORÐAPANTANIR Í SÍMA 517-4300
HUMARSALAT & HVÍTVÍN 2.250 kr.
Humarsalat með hægelduðum smátómötum, mangó,
sultuðum rauðlauk og ristuðum cashew-hnetum
ásamt hvítvínsglasi.
BLÁSKEL & HVÍTVÍN 2.950 kr.
Hvítvínssoðin bláskel úr Breiðafirði ásamt
hvítvínsglasi.
FERSKT
&
FREISTA
NDI
SPENNANDI
SJÁVARRÉTTA
TILBOÐ