Fréttablaðið - 27.01.2012, Síða 60
27. janúar 2012 FÖSTUDAGUR28
Líkt og undanfarin ár verða tónleikar til
heiðurs Mozart haldnir á Kjarvalsstöðum
á fæðingardegi hans 27. janúar. Tónleik-
arnir hefjast klukkan sex og á efnisskrá
eru Kvintett fyrir horn, fiðlu, tvær víólur
og selló ásamt Divertimentói í D-Dúr KV
334 fyrir strengi og tvö horn.
Flytjendur á tónleikunum eru Laufey
Sigurðardóttir fiðluleikari, Sigurlaug
Eðvaldsdóttir fiðluleikari, Þórunn Ósk
Marinósdóttir víóluleikari, Guðrún Þór-
arinsdóttir víóluleikari, Bryndís Halla
Gylfadóttir sellóleikari og hornleikararn-
ir Joseph Ognibene og Þorkell Jóelsson.
Enn fremur verður Tryggvi Baldvins-
son tónskáld á svæðinu en hann spjallar
um tónlistina og tónskáldið.
Leika til heiðurs Mozart
ÓKEYPIS AFMÆLISTÓNLEIKAR Myndin er tekin á æfingu fyrir Mozarttónleika
kvöldsins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 27. janúar 2012
➜ Sýningar
18.00 Fyrsta listasýning ársins, sem
í sjálfri sér er tvær sýningar, opnar í
Artíma gallerí Smiðjustíg 10, Reykjavík.
Alexander Jean Edvard Le Sage de
Fontenay stýrir sýningu á tíu verkum
tíu mismunandi listamanna og Oddný
Björk Daníelsdóttir stýrir yfirlitssýningu
með verkum eftir listakonuna Heiðu
Rún Steinsdóttur. Allir eru velkomnir.
➜ Uppákomur
23.30 Skemmtistaðurinn SPOT í
Kópavogi heldur ball fyrir einhleypa.
DJ Mikkólfur spilar. Allir einhleypir
velkomnir og aðgangur er ókeypis.
➜ Tónlist
09.30 Tónskáldastofa Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands fer fram í Eldborg
í Hörpu, en hún er hluti af Myrkum
músíkdögum. Danska tónskáldið Hans
Abrahamsen valdi tónverkin og hljóm-
sveitarstjóri er Ilan Volkov. Aðgangur er
ókeypis.
12.15 Guðrún Jóhanna Ólafs-
dóttir mezzósópran og Francisco Javier
Jáuregui gítarleikari koma fram á Myrk-
um músíkdögum í Hörpu. Tónleikarnir
fara fram í salnum Kaldalón.
15.00 Í sal Kaldalóns í Hörpu leikur
Duo Landon fiðludúettinn lög eftir
íslensk tónskáld. Er þetta hluti af tón-
listarhátíðinni Myrkir músíkdagar.
17.00 Myrkir Músíkdagar halda áfram í
sal Hörpu, Kaldalóni. Nordic Affect stíga
á stokk og spila nútímatónlist á barokk-
hljóðfæri.
18.00 Tónleikar til heiðurs Mozart
verða haldnir á
Kjarvalsstöðum í
tilefni fæðingardags
hans í dag. Aðgangur
er ókeypis.
20.00 Í sal Norður-
ljósa í Hörpu verða
flutt verk eftir Önnu
Þorvaldsdóttur,
sem hluti af Myrkum
músíkdögum. Guðni
Franzson stjórnar.
21.00 Vetrar-
tónleikaröðin
heldur áfram
á Bar 11, í
samstarfi við
Tuborg. Söng-
konan Myrra
Rós treður upp
að þessu sinni
og DJ mætir í
búrið að tón-
leikum loknum.
Aðgangur er
ókeypis.
Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu,
jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær.
Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri
hversdagsins.
Bækurnar um Emmu og Tuma
hafa lengi verið vinsælar hjá
yngstu kynslóðinni og eiga sinn
sess á meðal sígildra
barnabókmennta. Nú
hefur Forlagið endur-
prentað fjórar þeirra,
sem hafa ekki verið
fáanlegar í langan tíma.
Bækurnar sem um
ræðir eru: Emmu finnst
gaman á leikskólanum,
þar sem fylgst er með ævintýrum
Emmu og vina hennar í leikskól-
anum; Emma fer til tannlæknis,
þar sem Emma heim-
sækir tannlækn-
inn þar sem það er
brúnn blettur á einni
tönninni; Tumi bakar,
sem fjallar um afrek
Tuma í eldhúsinu
þegar hann bakar
köku, og loks Tumi
fer til læknis, þar sem
Tumi fer í læknisskoðun, er
vigtaður og mældur og fær
svo sprautu. - hhs
Hversdagsævintýrin
um Emmu og Tuma