Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.02.2012, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 09.02.2012, Qupperneq 4
9. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR4 Ranglega var farið með opnunartíma Tehúss Unnar í blaðinu Vetrarhátíð í gær. Réttur opnunartími er milli klukkan 14 og 18 laugardag og sunnudag. LEIÐRÉTT DÝRAHALD „Það er ekki hægt að vera reiður við hundinn, þetta er bara í eðlinu,“ segir Brynjar Þór Jónasson, íbúi í Lambaseli í Breið- holti, sem varð fyrir því að hundur drap þrjár hænur í garði hans. Fjölskyldan í Lambaseli 11 hefur frá því í nóvember beðið eftir því að borgaryfirvöld afgreiði umsókn hennar um að fá að halda land- námshænur sem hún fékk um svipað leyti. Á föstudagskvöldið síðasta tók málið óvænta stefnu þegar laus Siberian Huskey hund- ur braut sér leið inn í hænsnakof- ann og drap hænurnar. Hann stökk blóðugur á flótta þegar heimilis- fólkið varð hans vart. „Það er aðallega eigandi hunds- ins sem er ekki að standa sig,“ segir Brynjar sem nú kveðst munu bíða niðurstöðu borgarinnar áður en frekara framhald verður á hænsnahaldinu. Málið hafi komið illa við börnin á heimilinu. „Þetta er að verða sorgarsaga. Við erum með þrjú börn og þetta voru nú fyrst og fremst þeirra gæludýr. Hvert barn átti eina hænu.“ Í augnablikinu er umsókn fjöl- skyldunnar í Lambaseli hjá heil- brigðisnefnd sem frestaði málinu á fundi í síðustu viku. Þá lá fyrir umsögn skipulagsstjóra sem leggst gegn leyfisveitingunni með vísan í heilbrigðisreglugerð og í ákvæði samþykktar um takmörkun búfjár- halds í Reykjavík. „Hænsnfuglar eru samkvæmt íslenskri hefð flokkaðir sem hús- dýr og teljast til búfjár,“ segir skipulagsstjóri sem segir afstöðu sína enn fremur byggjast á mót- mælum sem komið hafi fram. „Við töluðum við alla nágranna áður en til þessa kom og það var enginn á móti þessu,“ segir Brynjar hins vegar. Hann segir enn fremur fráleitt að skilgreina hænur sem búfé. „Það er bara kjaftæði. Þær eru bara gæludýr. Það heyrist ekkert í hænunum og það er enginn óþrifnaður af þeim.“ Brynjar segist telja eðlilegt að þeim sé gefið leyfi fyrir hænunum. Fyrir aftan hús þeirra sé aðeins mói. „Það var alltaf talað um að í efstu byggðum Breiðholts væri þetta leyfilegt. Í næstu götu er fólk með hesta og það virðist ekk- ert mál að fá að vera með kanínur, bara ekki hænur.“ gar@frettabladid.is Hundur drap hænur á heimili í Breiðholti Skipulagsstjóri vill ekki leyfa hænsnahald í Reykjavík því hænur séu húsdýr en ekki gæludýr. Hundur drap þrjár landnámshænur í Seljahverfi um síðustu helgi. Hesthús er í næstu götu og hænueigendurnir undrast biðina eftir leyfi. TÓMUR HÆNSNAKOFI Systkinin Pétur Hrafn, tveggja ára og Ásdís Ósk, sex ára misstu landnámshænurnar sínar um síðustu helgi og bíða nú eftir því að borgaryfirvöld ákveði hvort fjölskyldan fái að halda hænur á lóð sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BANDARÍKIN, AP Mitt Romney, sem tapaði fyrir Rick Santorum í for- kosningum Repúblikanaflokksins í þremur ríkj- um Bandaríkj- anna á þriðju- dag, segist þrátt fyrir það nokkuð viss um að verða forseta efni flokksins. Santorum sagði sigur sinn sýna stuðning almennings við kristilega íhalds- stefnu. Hófsemi Romneys bjóði ekki upp á neinn valkost við stefnu Baracks Obama Banda- ríkjaforseta. Næstu forkosningar verða í Maine á laugardaginn kemur, síðan í Arizona og Michigan í lok mánaðarins en 6. mars verður svo „stóri þriðjudagurinn“, sem búist er við að ráði úrslitum því þá verða forkosningar í tíu ríkj- um samtímis. - gb Óvænt úrslit vestanhafs: Romney tapaði fyrir Santorum í þremur ríkjum NÁTTÚRA Nokkuð kröftug jarð-skjálftahrina hófst undir Reykja- neshrygg á sjötta tímanum í gær- morgun. Samkvæmt sjálfvirkum mælum Veðurstofu Íslands voru hörðustu skjálftarnir nálægt fjór- um að styrkleika. „Þetta er undir Reykjanes- hryggnum, það er eldvirkni á svæðinu og trúlega tengist þessi órói því,“ segir Benedikt Ófeigs- son, jarðvísindamaður hjá Veður- stofu Íslands. Ekki var ljóst í gær á hvaða dýpi skjálftarnir urðu. Hann segir slíka skjálfta alvanalega á þessu svæði, en hrinan sé vissulega fremur öflug. Margir skjálftanna voru í kring- um þrjá að styrkleika. - bj Skjálftar á Reykjaneshrygg: Ekkert bendir til eldgoss STJÓRNSÝSLA Ríkisendurskoð- un bendir á í nýrri úttekt að árið 2011 áætlaði mennta- og menn- ingarmálaráðuneytið að greiða 4,6 milljarða króna samkvæmt 35 útrunnum og tveimur ógildum samningum við aðila utan ríkisins vegna ýmissa verkefna. Að mati Ríkisendurskoðunar þarf að endurnýja útrunna samn- inga hið fyrsta og tryggja að greiðslur byggi ávallt á gildum samningum. Þá þarf ráðuneytið að skjalfesta verklagsreglur um gerð og umsýslu skuldbindandi samn- inga og bæta yfirsýn um þá, að mati Ríkisendurskoðunar. Ráðu- neytið vinnur að endurbótum á samningamálum sínum segir í til- kynningu, og er því fagnað. Á undanförnum árum hafa ein- stök ráðuneyti gert samninga við samtök, einkaaðila og sveitarfélög um að þessir aðilar taki að sér verk- efni gegn greiðslum úr ríkissjóði. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðun- ar er fjallað um 71 slíkan samning mennta- og menningarmálaráðu- neytisins. Áætlað er að kostnaður við þessa samninga hafi numið um 10,6 milljörðum króna á síðasta ári. Í skýrslunni kemur fram að eftir- lit ráðuneytisins með framkvæmd samninganna „sé ekki að öllu leyti“ í samræmi við ákvæði þeirra, en formlegar úttektir hafa til dæmis ekki verið gerðar. Ríkisendurskoðun hvetur ráðu- neytið jafnframt til að tengja greiðslur samninga við árangur, frammistöðu eða framvindu verk- efna. - shá Mennta- og menningarmálaráðuneytið áætlaði að greiða 4,6 milljarða í fyrra án gildandi samninga: Helft samninga ógild eða útrunnin Hæstu ógildu samningarnir fyrir árið 2011 Áætlaður Nafn kostnaður 2011 (m.kr.) Gildistími Háskólinn í Reykjavík 1.911 2006-2010 Verzlunarskólinn 856 1999-2005 Listaháskóli Íslands 614 2005-2009 Íslenska óperan 134 2006-2009 Það heyrist ekkert í hænunum og það er enginn óþrifnaður af þeim. BRYNJAR ÞÓR JÓNASSON HÚSASMÍÐAMEISTARI Í LAMBASELI VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 11° -2° -2° 0° 0° -1° 0° 0° 18° 2° 11° 5° 22° -7° 1° 17° -4°Á MORGUN 8-13 NV- og V-til, annars hægari. LAUGADAGUR 5-10 m/s. 1 0 0 0 1 2 -2 3 3 4 6 10 7 5 5 7 4 4 3 5 5 8 3 2 2 0 -2 1 1 0 1 3 LÆGÐ DAGSINS Lægð fer yfi r landið seinna í dag og þýðir það stífa sunnanátt í kvöld með tals- verðri úrkomu um sunnanvert landið. Fremur rólegt veður í kortunum fyrir næstu daga, en þá snýr hann sér í vestlægar áttir með éljum vestra en annars björtu veðri. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður RICK SANTORUM Fann 300 grömm af dópi Lögregla fann 300 grömm af amfetamíni í íbúð í Hafnarfirði á föstudag og lagði jafnframt hald á um eina og hálfa milljón króna í reiðufé sem taldar eru afrakstur fíkniefnasölu. Tveir karlar á fertugsaldri höfðu verið handteknir vegna málsins skömmu áður á nálægri bensínstöð. LÖGREGLUFRÉTTIR DÓMSMÁL Reykjavíkurborg hefur verið dæmd til að greiða Frjáls- lynda flokknum 6,8 milljóna króna fjárframlög sem flokkurinn átti rétt á eftir að hafa fengið mann kjörinn í borgarstjórn árið 2006. Framlög árs- ins 2008 og 2009 voru hins vegar ekki lögð inn á reikning flokks- ins, heldur reikning Borg- armálafélags F-lista, sem Ólafur F. Magnússon, þáverandi oddviti listans, hafði stofnað. Þetta var gert að beiðni Ólafs sjálfs. Héraðsdómur Reykjavíkur kemst að þeirri niðurstöðu að ein- stakir frambjóðendur stjórnmála- samtaka eigi ekki tilkall til fjár- framlaganna. - sh Milljónir ranglega til Ólafs: Borgin skuldar Frjálslyndum ÓLAFUR F. MAGNÚSSON GENGIÐ 08.02.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 222,0151 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 121,80 122,38 193,69 194,63 161,51 162,41 21,725 21,853 21,141 21,265 18,270 18,378 1,5802 1,5894 189,25 190,37 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512- 5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.