Fréttablaðið - 09.02.2012, Qupperneq 44
9. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR32 32
menning@frettabladid.is
Myndlist ★★★★★
Santiago Sierra, NO, Global
Tour og yfirlitssýning
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús
Til 15. apríl. Opið alla daga frá
kl. 10-17 og til kl. 20 á fim.
Spænski listamaðurinn Santiago
Sierra (1966) er afar pólitískur
listamaður og list hans er vægð-
arlaus ádeila á samtímann. Einna
helst deilir hann á kerfi kapítal-
isma og gróðahyggju þar sem
alþjóðleg stórfyrirtæki, ríki og
þjóðir byggja grundvöll sinn á
striti láglaunaðs verkafólks, hann
bendir á ójöfnuð og bág kjör.
Sierra lærði meðal annars
myndlist í Hamborg en bjó síðan
í Mexíkó í fjórtán ár. Ætla má
að ekki síst þar hafi hann orðið
vitni að erfiðri lífsbaráttu verka-
manna og ofríki stórþjóðar gagn-
vart minni máttar. Nútíma þræla-
hald, á borði þó ekki sé í orði, er
staðreynd sem við þekkjum um
víða veröld og birtist í mörgum
myndum.
Sýning Sierra í Hafnarhúsi er
yfirlitssýning á verkum hans í
formi kvikmynda, um fimmtíu
talsins, en hver um sig er heim-
ild um gjörning sem listamaður-
inn hefur unnið með hjálp launaðs
aðstoðarfólks. Gjörningarnir eru
undantekningarlaust hárbeittir
og sjónrænir þættir leika stórt
hlutverk í útfærslunni, gjarn-
an með áherslum naumhyggju.
Dágóðan tíma tæki að horfa á
allar myndir á sýningunni, en
þó ekki séu skoðuð nema nokkur
verk gefur það einnig góða inn-
sýn.
Verk Sierra sem hefur vakið
mesta athygli hér á landi nú er
NO, Global Tour, ásamt innsetn-
ingu hans á Austurvelli, Minnis-
merki um borgaralega óhlýðni,
þar sem Sierra minnist búsá-
haldabyltingarinnar.
Listaverkið NO er stór skúlp-
túr sem ferðast hefur um heiminn
síðan 2009. Nei-ið er sameining-
artákn alþýðu á tímum mikillar
óánægju með ríkjandi auðvalds-
stefnu og kreppu sem ekki sér
fyrir endann á. Hver tími á sína
listamenn og sínar aðferðir í list-
inni og list Sierra er list samtím-
ans. Ádeila hans felst í að end-
urskapa og umbreyta þekktum
aðstæðum. Hann borgar meðal
annars vændiskonum með her-
óíni fyrir að láta tattúvera línu á
bakið, greiðir verkamönnum lág-
markslaun fyrir að sitja lokaðir
inni í kassa, grafa tilgangslaus-
ar holur eða færa til þunga hluti.
Borgar klámmyndaleikurum
fyrir að hafa kynmök fyrir fram-
an myndavél, innflytjendum fyrir
að skilja eftir mót líkama síns í
frauðplasti eða fela sig á götu í
Madríd og fyrrverandi hermönn-
um fyrir að standa úti í horni og
skammast sín. Fær hóp fólks til
að raða sér upp í langa röð eftir
húðlit, frá ljósu yfir í dökkt. Svo
eitthvað sé nefnt.
Ríkjandi þættir í samtímanum
skapa aðstæður sem eru hrotta-
legar, miskunnarlausar, órétt-
látar og grimmar og er að finna
alls staðar í heiminum. Spurn-
ingin er: Hvað getum við gert?
Ragna Sigurðardóttir
Niðurstaða: Hárbeitt og ögrandi
samtímalist spænska listamannsins
Santiago Sierra grípur áhorfandann
heljartökum. Ádeiluefni listamannsins
er ekki síður að finna hér á landi en á
alþjóðavettvangi. Sýningin í heild er
frábært dæmi um pólitískan slagkraft
listarinnar. Hún er meira við hæfi
unglinga og fullorðinna en ungra
barna.
HVAÐ GETUM VIÐ GERT?
NO Gjörningur Sierra í aðdraganda sýningar hans í Hafnarhúsi vakti athygli. „Gjörningar hans eru undantekningarlaust hárbeittir,”
segir gagnrýnandi Fréttablaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Vesalingarnir, einn vinsælasti
söngleikur allra tíma, verður
frumsýndur 3. mars í Þjóðleik-
húsinu. Mögnuð stórsýning í
fl utningi framúrskarandi lista-
manna.
Tryggðu þér miða í miðasölu
Þjóðleikhússins.
» Sími 551 1200
» midasala@leikhusid.is
Tilboðið gildir til 15. febrúar.
Leikhústilboð
til Vörðufélaga
Vörðufélagar fá 1.000 kr. afslátt af miðaverði
á söngleikinn Vesalingana í Þjóðleikhúsinu.
„Ég kalla þetta Fróðleik,“ segir
Alma Dís Kristindóttir, verkefna-
stjóri fræðslu í Listasafni Reykja-
víkur, og sýnir hlut sem líkja má
við verkfærabelti og er ætlaður
börnum á aldrinum átta til ellefu
ára. Þetta er nýjung í safnastarfi
og stendur gestum til boða í öllum
húsum safnsins, þeim að kostnað-
arlausu. Alma Dís er höfundurinn.
Kjarninn í verkfærabeltinu er
safnastokkur með spjöldum sem
á eru tillögur og hugmyndir um
leiki. Þeir eru að sjálfsögðu innan
þess ramma sem safnið leyfir. Í
safnabeltinu er líka stækkunar-
gler, vasaljós, tommustokkur,
minnisblokk, ritfang og reiknivél.
„Þetta eru verkfæri sem fjölskyld-
ur eiga að nota í nokkurs konar
leiðangri um söfnin. Tilgangur-
inn er sá að nálgast listaverkin á
forsendum barnanna,“ segir Alma
Dís. „Ef verið er að horfa á verk
eftir Kjarval frá 1910 er til dæmis
hægt að reikna út hvað hann hafi
verið gamall þá.“
Alma Dís kynnir Safnabelt-
ið í Ásmundarsafni við Sigtún á
Safnanótt á föstudag frá 19-19.30,
á Kjarvalsstöðum frá 20 til 20.30
og í Hafnarhúsi milli 21 og 21.30.
Hún segir beltin komin til að vera,
fimm í hverju safni. - gun
Leikur og leiðsögn
SPENNANDI SAFNABELTI Það kostar
ekkert að fá lánað belti í einhverju af
söfnunum þremur, Ásmundarsafni,
Kjarvalsstöðum og Hafnarhúsi.
HAFDÍS HULD verður með tónleika á Gljúfrasteini annað kvöld. Með
henni verður gítarleikarinn Alistair Wright og ætla þau að flytja efni af
væntanlegum plötum sínum. Tónleikarnir hefjast klukkan níu.
Franska kvikmyndahátíðin sem
sett hefur svip sinn á kvikmynda-
hús Reykjavíkur undanfarið flyst
norður til Akureyrar dagana 18.
til 20. febrúar. Fjórar gæðakvik-
myndir verða sýndar í Borgarbíói
á Akureyri. Þar á meðal er franska
kvikmyndin The Artist sem notið
hefur mikilla vinsælda og vann
nýlega þrenn Golden Globe-verð-
laun og er sigurstrangleg í barátt-
unni um Óskarinn. Aðrar myndir
sem sýndar verða á Akureyri eru
La guerre est déclarée, Un homme
qui crie frá Tsjad og L‘Âge des
ténèbres frá Kanada.
Það er Sendiráð Frakklands á
Íslandi sem skipuleggur hátíðina
á Akureyri, í samvinnu við Sendi-
ráð Kanada, Græna ljósið, Institut
français og Alliance française í
Reykjavík.
Frönsk kvikmynda-
hátíð til Akureyrar
THE ARTIST Sýnd á franskri kvik-
myndahátíð.