Fréttablaðið - 09.02.2012, Page 52
9. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR40
folk@frettabladid.is
Gildir eingöngu þegar forráðamaður kaupir máltíð. 1 máltíð á barn af barnamatseðli. Gildir eingöngu í sal.
lifsstill@frettabladid.is
40
TÍSKA Kaupmannahöfn fylltist af tísku-
unnendum um helgina þegar tískuvikan
fór fram hjá frændum okkar í Danmörku.
Dönsk merki á borð við Malene Birger,
Bruuns Bazaar og Henrik Vibskov sýndu
komandi hausttísku, sem var litríkari í
ár en oft áður. Litir á borð við appelsínu-
gulan, gulan, grænan og bláan voru áber-
andi í annars einföldum og víðum sniðum.
Jakkafatabuxur, litríkar skyrtur og þykk-
ar prjónapeysur verða haustflíkurnar í ár
ef marka má Danina, sem oftast eru með
puttana á púlsinum þegar kemur að fata-
tískunni. alfrun@frettabladid.is
Litrík hausttíska
að mati Dana
MALENE
BIRGER
SPON
DIOGO
BRUUNS
BAZAAR
VERONICA B
VALLENES
HENRIK
VIBSKOV
VELOUR
GESTUZ
STINE GOYA
44 TÍSKUSÝNINGAR fóru fram á tískuvikunni í Kaupmannahöfn en auk þess sýna fjölmargir hönnuður fatnað sinn á sölusýningum víðs vegar um borgina.
Danski hönnuðurinn Henrik Vibskov var meðal þeirra sem sýndu en sýningar
hans er vanalega með óvanalegu sniði.