Fréttablaðið - 16.02.2012, Page 10
16. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR10
Dregið verður úr innflutn-
ingi jarðefnaeldsneytis og
framleiðsla innlendra orku-
gjafa efld. Hugað verður
að flutningi raforku til
Evrópu um sæstreng og
hagkvæmni mun ráða orku-
framleiðslu. Þetta kemur
fram í skýrslu um orku-
stefnu Íslands. Gagnrýn-
endur segja hana leggja
til hærra raforkuverð og
skorta raunhæfar tillögur.
Frumorkunotkun Íslendinga
árið 2009 jafngildir 67 tera-
wattsstundum á ári. Með frum-
orkunotkun er átt við orkunám,
þ.e. varmi tekinn úr jörðu, afl
virkjaðra fossa eða orkugildi
olíu. Jarðvarminn skipar þarna
stærstan sess og þá vatnsorka.
Þriðja uppspretta frumorku
á Íslandi kemur úr jarðefna-
eldsneyti.
Vinna við orkustefnu á Íslandi
miðar meðal annars að því að
draga úr vægi
þessarar þriðju
uppsprettu.
Í staðinn er
æt lu n i n a ð
n o t a s t v i ð
innlenda orku-
framleiðslu.
Á vormán-
uðum verður
innleidd hér á
landi Evrópu-
tilskipun um
hlutfall endur-
nýjanlegrar orku, en hún á að
verða 20 prósent af heildarorku-
notkun árið 2020. Þar er ekki um
að ræða sama hlutfall í öllum
löndum, heldur heildarmarkmið
fyrir Evrópusambandið og Evr-
ópska efnahagssvæðið.
Mjög mismunandi er hve langt
á veg lönd eru komin til að ná
þessu markmiði. Malta þarf að
auka hlutdeild endurnýjan legrar
orku upp í 10 prósent en Sví-
þjóð í 49 prósent. Vegna sérstöðu
Íslands er gert ráð fyrir að hlut-
fallið hér verði 64 prósent. Hlut-
fallið er hærra en það nú þegar,
eða 67 prósent.
Minna jarðefnaeldsneyti
Eldsneytisinnflutningur vegur til-
tölulega þungt í vöruinn flutningi
og viðskipta- og gjaldeyris jöfnuði
hennar. Verðmæti innflutts
eldsneytis og smurolíu var 51
milljarður króna árið 2009. Allur
vöruinnflutningur það ár nam 410
milljörðum.
Stjórnvöld hafa sett sér það
markmið að noktun vistvæns
eldsneytis í sjávarútvegi og
samgöngum verði að minnsta
kosti 20 prósent árið 2020, eins
og kemur fram í samþykkt
um orkuskipti í samgöngum.
Höfundar skýrslu um orkustefnu
telja einnig mikilvægt að stuðla að
orkusparnaði.
„Unnt er að draga verulega
úr notkun jarðefnaeldsneytis
með orkusparnaði, og þá einkum
með sparneytnari bifreiðum,
eflingu almenningssamgangna
og hvatningu til vistvænni
ferðamáta. Líkur eru til þess að
ávinningur verði meiri á þessu
sviði til skemmri tíma litið en af
orkuskiptum.“
Arður til þjóðar
Skýrsluhöfundar leggja til að
stofnaður verði auðlindasjóður
sem leigi nýtingarrétt auðlinda út.
Miðað er við 25 til 30 ár, en þó geti
það verið breytilegt í einstaka
tilfellum. Einn nefndarmanna,
Gunnar Tryggvason, skilaði sér-
áliti og taldi þennan nýtingartíma
of skamman.
Lagt er til að sjóðurinn haldi
utan um allar orkuauðlindir í eigu
ríkisins á einum stað. Oddný G.
Harðardóttir, starfandi iðnaðar-
ráðherra, sagði í framsöguræðu
sinni með skýrslunni að unnið
væri að því innan forsætisráðu-
neytisins að útfæra fyrirkomulag
auðlindaleigu og nýtingarsamn-
inga vegna auðlinda í eigu ríkisins.
Hún sagði það skoðun stýri-
hópsins að ekki ætti að ganga á
framlegð eða arðsemi orkuvinnslu
og orkusölu vegna byggða- eða
atvinnusjónarmiða í héraði.
„Markmiðum á þeim sviðum
verði náð með öðrum og almenn-
ari hætti, t.d. með hlutdeild nær-
samfélags í auðlindarentu.“
Að sama skapi eigi aðeins arð-
semi að ráða þegar í virkjana-
framkvæmdir er ráðist.
Til umræðu
Ljóst er að orkustefna er
víðfeðmt plagg og kemur inn í
flesta anga þjóðlífsins. Oddný
lýsti því yfir þegar hún mælti
fyrir skýrslunni að plaggið væri
til umræðu. Það færi síðan til
iðnaðarráðuneytisins þar sem það
yrði fullunnið.
Gagnrýni á plaggið var einmitt
á þeim nótum, eins og sést dæmi
um hér á síðunni. Að hér væru
lögð fram falleg áform án þess að
raunverulegar tillögur fylgdu. Þá
var einnig gagnrýnt að pólitíska
ábyrgð vantaði á þær tillögur sem
þó væru lagðar fram í skýrslunni.
FRÉTTASKÝRING: Orkustefna fyrir Ísland
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Raforkuverð er lægra hér á landi en í Evrópu, eins og skýrsluhöfundar benda
á. Þar segir að ef ná eigi svipaðri framlegð hér á landi og í Evrópu þurfi
verðlagning orku að færast nær því sem gerist á meginlandsmörkuðunum.
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir koma skýrt fram í
skýrslunni að hækka eigi raforkuverð í landinu.
„Þar eru bornar saman tölur um orkuverð hér á landi og í Evrópu. Af þeim
má ráða að ef gera á eins og boðað er í plagginu, að færa orkuverð til þess
sem gerist í Evrópu, getur það þýtt allt að helmings hækkun á raforku.“ Einar
segir þau rök færð fyrir því að ná eigi meiri arðsemi út úr orkufyrirtækjunum.
Hingað til hafi þeirri stefnu hins vegar verið fylgt að láta almenning og fyrir-
tæki njóta lágs orkuverðs og því væri um algjöra stefnubreytingu að ræða.
„Þetta mun ekki bara bitna á stóriðjunni, heldur hlýtur með einhverjum
hætti að lenda á almenningi. Ég knúði starfandi iðnaðarráðherra svara, en þau voru heldur
léttvæg. Stjórnvöld hafa ekki leyfi til að skila auðu við þessar aðstæður og verða að segja með
skýrari hætti hver þeirra afstaða er.“
Mun fela í sér hærra raforkuverð
EINAR K.
GUÐFINNSSON
Verkefni stýrihópsins voru eftirfarandi:
Ná heildaryfirsýn yfir mögulegar orkulindir landsins,
aðferðir og tækni við nýtingu þeirra, hugsanleg
umhverfisáhrif og sjálfbærni nýtingarinnar ásamt
rekstrarlegri og þjóðhagslegri hagkvæmni.
Fara sérstaklega yfir möguleika og hugsanlegar
aðferðir stjórnvalda til þess að stjórna nýtingu
orkunnar m.t.t. sjálfbærni, efnahagslegrar uppbyggingar
og stöðugleika.
Stýrihópurinn skal sérstaklega fjalla um möguleika á
að nýta orkulindirnar og sérþekkingu okkar og reynslu
á sviði orkumála til atvinnuuppbyggingar á næstu
árum.
Stýrihópurinn skal skoða möguleika á samvinnu við
aðrar þjóðir í orkumálum og gera tillögur um aðgerðir
stjórnvalda til að efla slíka samvinnu ef hagkvæmt er
talið.
Stýrihópurinn skal gera tillögu að forgangsröðun
á nýtingu orkunnar með hliðsjón af áherslum og
markmiðum ríkisstjórnarinnar, s.s. í aðgerðaráætlun
ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum.
Móta skal skýra stefnu og markmið um minnkandi
notkun jarðefnaeldsneytis og losun koltvísýrings með betri
orkunýtni, orkusparnaði, hagrænum hvötum og með því
að þróa og nýta vistvæna orkugjafa fyrir bifreiðar, tæki og
skip.
Meta stöðu Íslands með tilliti til orkuöryggis og
viðbúnaðar til að bregðast við utanaðkomandi aðstæðum.
Kortleggja fræðslu og rannsóknir á sviði orkumála og
gera tillögur um samstarfsvettvang sem kanni möguleika á
betri samhæfingu og samstarfi mismunandi starfseininga.
Stýrihópurinn skal í starfi sínu leitast við að skilgreina
og tímasetja markmið og kennistærðir þannig að hægt sé
að mæla þróun og árangur á sviði orkunýtingar og minni
umhverfisáhrifa
Í hópnum sátu: Vilhjálmur Þorsteinsson, formaður,
Bergur Sigurðsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Guðni A.
Jóhannesson, Guðrún Jóna Jónsdóttir, Gunnar Tryggvason
og Salvör Jónsdóttir.
Heildarstefna um mögulegar orkulindir landsins
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir skýrsluna upp-
fulla af fögrum fyrirheitum. Ýmislegt vanti þó í stefnuna, hún sé almennt orðuð
og skortur sé á almennri stefnumótun í málaflokknum. Hann segir fjölmargt þar
inni frekar eiga heima í rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Of
mikið beri á því að talað sé um vernd á ýmsum sviðum en ekki orkunýtingu.
Þá segir hann oft og tíðum óljóst hvernig það rímar saman við aðrar áætlanir
stjórnvalda.
Í því skyni nefnir Sigurður sérstaklega stefnu um erlendar fjárfestingar, sem er
til umræðu í atvinnuveganefnd þingsins. „Til hvers er þetta sett fram? Það er út
af fyrir sig ágætt að setja þetta á blað, en þarna vantar ákveðnari stefnu í ýmsum
málum.“ Tiltekur Sigurður sérstaklega jöfnun landshluta um aðgengi að orku.
„Þetta snertir lítið atvinnuvegastefnu og fjárfestingarstefnu. Hvernig á að byggja
upp á þessum svæðum? Á að gera það með línum inn á þau eða að virkja? Þetta vantar allt.“
Þá kvartar Sigurður Ingi yfir því að ekkert sé fjallað um jöfnun húshitunarkostnaðar í skýrslunni.
Allir þegnar landsins verði að sitja við sama borð, það varði jöfnun lífsskilyrða á landinu öllu.
Góðar hugmyndir en engar tillögur
SIGURÐUR INGI
JÓNSSON
Innlendir orkugjafar verða efldir
BREYTINGAR Í VÆNDUM Samkvæmt samþykktum stjórnvalda á 20 prósent af fiskskipaflotanum að nota endurnýjanlega
orkugjafa árið 2020. Ljóst er að breytingar eru í vændum í þeim geira. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ODDNÝ G.
HARÐARDÓTTIR
Áætluð raforkugeta og núverandi notkun
Virkjanakostir Notkun
Almennur markaður
Elkem Grundartanga
Norðurál
Grundartanga
Becromal
Krossanesi
Rio Tinto Alcan
Straumsvík
Alcoa Fjarðarál
Reyðarfirði
Biðflokkur;
9.100
Orkunýtingar-
flokkur; 13.100
Þegar virkjað;
16.900
40.000
35.000
30.000
25.000
20.000
15.000
10.000
5.000
0
HEIMILD: SKÝRSLA UM HEILDSTÆÐA ORKUSTEFNU