Fréttablaðið - 16.02.2012, Blaðsíða 16
16. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR16
Umsjón: nánar á visir.is
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar,
sagði í ræðu á Við skipta þingi
Við skipta ráðs Íslands, því fjöl-
mennasta frá upphafi, sem haldið
var á Hilton Hótel Nordica í gær,
að íslenska krónan væri upp-
spretta óstöðug leika í íslenska
hag kerfinu. Vegna hennar væri
fólk ýmist reitt eða ánægt, eftir
því „hvar það lenti“ eftir reglulega
kúvendingu hagkerfisins. Hann
sagði þetta ástand ekki boðlegt,
hvorki heimilum né fyrirtækjum.
„Krónan er eins og fíllinn í
stofunni,“ sagði Jón og birti stóra
mynd af fíl sem sat í leðurstól inni
á venjulegu heimili. Hann sagði
engan „þora að reka hann út“ en
allir sæju samt að hann væri fyrir-
ferðarmikið vandamál.
Jón sagði krónuna gera það að
verkum að mikið fjármagn færðist
til á milli fólks í síendurteknum
kollsteypum. „Þetta gengur ekki,
svo einfalt er það.“
Hann sagðist enn fremur
hræddur um að gjaldeyris-
höftin myndu ýta fyrir tækjum
og tæki færum smátt og smátt
úr landi, og að þeir sem hefðu
aðrar lausnir en að sækja um
aðild að Evrópusambandinu og
taka upp evru, þyrftu að leggja
til raunhæfar tillögur um hvernig
væri hægt að leysa þetta mesta
mein íslensks efnahagslífs.
Þorsteinn Már Baldvins son, for-
stjóri Sam herja, hélt einnig ræðu á
Við skipta þingi og fór yfir reynsluna
af veiði og vinnslu makríls. Hann
sagði það vera krefjandi verk efni
að stunda við skipti með makríl,
flutnings leiðir væru langar og
samkeppni hörð. Íslenskur sjávar-
útvegur hefði náð góðum árangri á
skömmum tíma. Óvissan um fisk-
veiði stjórnunar kerfið, vegna fyrir-
hugaðra breyt inga stjórn valda á
því, væri slæm og skapaði mikil
vandamál. Hann sagði makríl-
veiðarnar hafa skapað yfir þúsund
störf á sjó og landi, og yfir 25
milljarða í verð mæti fyrir íslenska
hag kerfið, á síðustu þremur árum.
Þorsteinn Már sagði sam skipti
stjórn valda og íslensks atvinnu lífs
vera óboð leg. „Í íslensku atvinnu-
lífi er til mikið af góðu, duglegu og
heiðarlegu fólki sem gæti skapað
meira af störfum ef samskipti
atvinnulífsins við stjórnvöld
væru eins og við hlustum á hér
áðan,“ sagði Þorsteinn Már, eftir
að hafa spila myndbandsupptöku
af því þegar Jens Stoltenberg,
forsætisráðherra Noregs, ávarpaði
Viðskiptaþingið í Noregi í fyrra.
magnush@365.is
251
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur
samþykkt yfirfærslur fyrirtækja-
ráðgjafar Sögu Capital hf. til MP
banka hf. Ákvörðun þess efnis
var tekin 9. febrúar síðastliðinn
og gerð opinber í gær. Í október
hafði Samkeppniseftirlitið kynnt
þá niðurstöðu sína að það teldi ekki
ástæðu til þess að aðhafast vegna
kaupanna.
MP banki keypti fyrirtækjaráð-
gjöf Sögu í lok ágúst 2011. Kaup-
verðið var ekki gefið upp en sam-
hliða fóru sex starfsmenn frá Sögu
yfir til MP banka. Skömmu síðar, í
október 2011, var starfsleyfi Sögu
Capital sem lánafyrirtækis aftur-
kallað. Fyrirtækið afsalaði sér í
kjölfarið heimild til að leita nauða-
samninga. Í frétt á heimasíðu þess
segir að ljóst sé að Saga Capital
„mun þurfa að fara í slita meðferð
í samræmi við ákvæði laga um
fjármálafyrirtæki og mun því
ekki geta uppfyllt fyrirliggjandi
frumvarp að nauðasamningi“. - þsj
Kaup MP banka samþykkt:
MP mátti kaupa
ráðgjöf Sögu
PUNKTUR er skuldatryggingarálag ríkissjóðs
sem hefur lækkað um 21 prósent frá áramótum.
MP BANKI Skúli Mogensen er stærsti
eigandi MP banka.
Gamalt fegrunarráð - í nútímalegum búningi
Dreifingaraðili Danson ehf :: Sími 588 6886
Agúrku roll on
ESBJERG
SØNDERBORG
Nánari uppl. www.easv.dk
Mikilvægt skref í átt
að þínum frama
S
T
U
D
Y
I
N
D
E
N
M
A
R
K
AP Degree
Fashion Design
Marketing Management
Multimedia Design &
Communication
Computer Science
Management Technology
BACHELOR Degree
Engin skólagjöld!
meet us!
Kynningarfundur!
Hótel Hilton Nordica:
16/02 kl. 18:00
Háskóladagurinn!
Háskólabíó:
18/02 12:00 – 16:00
International sales &
Marketing
Business & Design
Web Development
Software Development
Technical Manager
Íslenska krónan er fíll í stofunni
Jón Sigurðsson forstjóri Össurar sagði krónuna vera uppsprettu illinda á Íslandi. Fólk ýmist reitt eða ánægt, eftir því hvar það „lenti“.
VIÐSKIPTAÞING Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, og Steingrímur J. Sigfússon, efnahags-, viðskipta-, sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, ræddu saman á Viðskiptaþingi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hreggviður Jónsson, forstjóri og aðaleigandi Veritas Capital hf., var kjörinn formaður Viðskiptaráðs á aðalfundi þess í
gær. Auk hans voru átján fulltrúar kosnir í aðalstjórn Viðskiptaráðs næstu tvö árin. Fulltrúar koma úr ólíkum greinum
atvinnulífsins.
Í aðalstjórn Viðskiptaráðs 2012-2014 voru kjörin eftirfarandi:
Hreggviður Jónsson nýr formaður
Björgólfur Jóhannsson,
Icelandair Group
Sævar Freyr Þráinsson, Síminn
Eggert Benedikt Guðmunds-
son, HB Grandi
Sigrún Ragna Ólafsdóttir,
VÍS - Vátryggingafélag Íslands
Hrund Rudolfsdóttir, Marel
Hörður Arnarsson,
Landsvirkjun
Gylfi Sigfússon,
Eimskip Ísland
Úlfar Steindórsson,
Toyota Íslandi
Katrín Olga Jóhannesdóttir,
Já Upplýsingaveitur
Kristín Pétursdóttir,
Auður Capital
Ásbjörn Gíslason,
Samskip
Höskuldur H. Ólafsson,
Arion banki
Eyjólfur Árni Rafnsson,
Mannvit
Ari Edwald, 365 miðlar
Brynja Halldórsdóttir, Norvik
Margrét Pála Ólafsdóttir,
Hjallastefnan
Steinþór Pálsson, Lands-
bankinn
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir,
Actavis Group