Fréttablaðið - 16.02.2012, Síða 24
16. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR24
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og út-
farir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Hjörtur Árnason
stýrimaður,
Bakkabakka 4a, Neskaupstað,
lést 8. febrúar á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað.
Útförin fer fram frá Norðfjarðarkirkju laugardaginn
18. febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hans er bent á
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað.
Bjarni Jóhannsson Ingigerður Sæmundsdóttir
Gyða María Hjartardóttir Jóhann Gunnar Kristinsson
Lára Hjartardóttir Sigurður Indriðason
barnabörn og barnabarnabörn.
ANDY TAYLOR, trommuleikari hljómsveitarinnar Duran Duran, er 52 ára í dag
„Ég uppgötvaði hversu einmanalegt það er að vinna einn. Þá byrjaði ég að vinna með öðrum
listamanni sem vinnur einn, Rod Stewart, og hann sagði mér hversu einmana hann var!“
Merkisatburðir
1918 Litháen lýsir yfir sjálfstæði frá Rússlandi og Þýskalandi.
1920 Hæstiréttur Íslands kemur saman í fyrsta sinn.
1927 Heimdallur, félag ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, er
stofnað.
1937 Wallace H. Carothers fær einkaleyfi á næloni.
1968 Neyðarlínan 911 er tekin í notkun í Bandaríkjunum.
1999 Kúrdískir skæruliðar hertaka nokkur sendiráð í Evrópu
eftir að einn foringja þeirra, Abdullah Öcalan, er handtek-
inn af Tyrkjum.
2011 Goðafoss, flutningaskip Eimskips strandar við Noregs-
strendur, skammt frá Fredrikstad.
Knattspyrnufélag Reykjavíkur, betur þekkt sem
KR, var stofnað þennan dag árið 1899. Eins og
nafnið bendir til var félagið stofnað í kringum
fótboltaiðkun en hefur fyrir löngu fært út kvíarnar.
Félagið var stofnað í verslun Guðmundar Olsens
í Aðalstræti og hét raunar Fótboltafélag Reykja-
víkur fyrstu árin og hafði að leiðarljósi að búa
til aðstöðu fyrir unga drengi til að spila knatt-
spyrnu. Nafninu var svo breytt í Knattspyrnufélag
Reykjavíkur fimm árum síðar að undirlagi Erlends
Ó. Péturssonar sem fannst orðið fótbolti ekki góð
íslenska. KR hafði sína fyrstu félagsaðstöðu þar
sem Ráðhús Reykjavíkur stendur í dag en árið
1939 var ráðist í kaup á svæði í Kaplaskjóli, þar
sem félagið hefur enn í dag aðstöðu.
KR er eitt sigursælasta íþróttafélag landsins í
handbolta, körfubolta og fótbolta. Sigurgangan
hélt áfram á síðasta ári en þá urðu KR-ingar
Íslands- og bikarmeistarar í fótbolta og körfubolta
karla.
ÞETTA GERÐIST: 16. FEBRÚAR 1899
Fótboltafélag Reykjavíkur stofnað
Margaret Cormack prófessor í háskól-
anum í Charleston færði á dögunum
Árnastofnun tvö fágæt vögguprent að
gjöf, en svo nefnast bækur prentaðar
fyrir árið 1500, og eitt handrit. Hand-
ritið er frá miðri 15. öld en bækurnar
eru frá síðari hluta fimmtándu aldar.
Margaret Cormack er tíður gestur
á Íslandi og er við rannsóknir á Árna-
stofnun um þessar mundir en hún
leggur stund á rannsóknir á íslenskum
dýrlingum. „Ég hef komið nær árlega
til Íslands síðan ég kom hingað fyrst
árið 1978. Ég hafði mikinn hug á að
læra forníslensku, hafði stundað nám
í málvísindum og langaði til að bæta
kunnáttu og skilning með því að dvelja
á Íslandi,“ segir Margaret á afar góðri
íslensku. „Ég var eitt sumar í sveit og
fór svo í íslensku í Háskóla Íslands
veturinn á eftir. Sumardvölin var
á Vorsabæ á Skeiðum hjá þeim Jóni
Eiríkssyni og Emelíu Kristbjörns-
dóttur og hjá þeim lærði ég að tala
nútímaíslensku. Ég smitaðist líka af
Íslandi sem er voðalegur sjúk dómur
og hef komið margoft aftur síðan. Og
alltaf fer ég í heimsókn á Vorsabæ.“
Margaret hefur dvalið í lengri og
skemmri tíma á Íslandi á þessu langa
tímabili og doktorsritgerð hennar í
miðaldafræðum fjallar um dýrlinga
á Íslandi frá kristnitöku og fram til
ársins 1400. „Ég heillaðist af við-
fangsefninu af ýmsum ástæðum. Það
er forvitnilegt að rannsaka dýrlinga
af ýmsum ástæðum. Átrúnaður á þá
og dýrlingasögur skýra til að mynda
hugsanagang fólks á þeim tíma, dýr-
lingasögur skýra vel hvað er mikil-
vægur þáttur í lífi fólks. Tengslin
við útlönd sjást líka glöggt í gegnum
dýrlinga, sögur þeirra berast á milli
landa,“ segir Margaret sem vinnur
að gagnagrunni um íslenska dýrlinga
sem verður aðgengilegur á netinu.
Handritið og bækurnar sem hún gaf
Árnastofnun voru í eigu föður henn-
ar sem safnaði forngripum. „Hann
safnaði ýmsu, meðal annars göml-
um bókum sem hann leit á sem fjár-
festingu. Þegar hann varð gamall
seldi hann sumar af þessum bókum
en þó ekki þessar. Þær lét hann mig
fá þegar hann vissi að hann ætti ekki
langt eftir. Ég vissi svo að með því
að gefa Árnastofnun ritin yrðu þau
á góðum stað, svona bækur þarf og á
að geyma við réttar aðstæður og þær
eru hér.“
Margaret segir planið að vera á
Íslandi fram í mars og koma svo aftur
á árinu. „Mín heitasta ósk er að setj-
ast hér að þegar ég kemst á eftirlaun,“
segir hún að lokum.
sigridur@frettabladid.is
DOKTOR MARGARET CORMACK: FÆRÐI ÁRNASTOFNUN FÁGÆT VÖGGUPRENT
Smitaðist af Íslandi sumarið 78
MARGARET CORMACK Kom fyrst til Íslands fyrir 34 árum og hefur komið á hverju ári síðan.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fjallað verður um helstu ástæður ófrjósemi af völdum
endómetríósu og velt upp mögulegum meðferðum og
óhefðbundnum leiðum í fyrirlestri sem haldinn verð-
ur á aðalfundi Samtaka kvenna með endómetríósu
sem verður haldinn laugardaginn 18. febrúar. Fyrir-
lesturinn flytur Berglind Ósk Birgisdóttir, hjúkrunar-
fræðingur.
Endómetríósa eða legslímuflakk er krónískur sjúk-
dómur sem talið er að um 5 prósent kvenna þjáist af.
Helstu einkenni eru slæmir túrverkir, verkir við sam-
farir, verkir við þvaglát, meltingartruflanir og verkir
samfara hægðum, síþreyta og fleira. Talið er að þriðj-
ung af ófrjósemi og vanfrjósemi kvenna megi rekja til
endómetríósu.
Aðalfundurinn hefst klukkan eitt og stendur til þrjú.
Hann er haldinn á Landspítalanum við Hringbraut og
skal ganga inn um aðaldyr kvennadeildar á fyrstu hæð
og síðan til hægri.
Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf,
auk þess sem ný lög samtakanna verða lögð fyrir fund-
inn. Einnig verða rædd helstu verkefni sem eru á döfinni
hjá samtökunum á árinu og loks almennar umræður.
Ófrjósemi af völdum endómetríósu
Okkar elskulega móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Hálfdanardóttir
Miðtúni 8, Höfn í Hornafirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands þriðjudaginn
14. febrúar. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju
laugardaginn 18. febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar
eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast Guðrúnar er góðfúslega bent á að láta
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands og Bergmál, líknar-
og vinafélag njóta þess. Símanúmer Bergmáls er
587 5566 og 845 3313.
Guðný Svavarsdóttir Ingvar Þórðarson
Haukur H. Þorvaldsson
Vigfús Svavarsson Sigurlaug Hauksdóttir
Snæfríður H. Svavarsdóttir Stefán Stefánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín,
Bryndís Karlsdóttir
Þrastarási 14, Hafnarfirði,
lést að heimili sínu þann 31. janúar sl. Jarðarförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Reynir Albertsson
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.