Fréttablaðið - 16.02.2012, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 16.02.2012, Blaðsíða 42
16. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR26 Vífill Oddsson var útnefndur heiðurs- félagi Verkfræðingafélags Íslands á árshátíð félagsins fyrir skemmstu. Slík nafnbót hlotnast aðeins fólki sem leyst hefur af hendi mikilsverð störf á sviði verkfræði og vísinda. Hún er einnig veitt fyrir framtak til eflingar verkfræðingastéttinni í heild og fyrir félagsstörf í þágu stéttarinnar. Vífill Oddsson er sá 22. í röðinni sem hlýt- ur þetta sæmdarheiti í 100 ára sögu félagsins. Fjórir aðrir verkfræðingar voru sæmdir heiðursmerki félagsins, þau Guðmundur Guðmundsson, Sólveig Þorvaldsdóttir, Steinar Friðgeirsson og Steindór Guðmundsson. Alls hafa ríf- lega eitt hundrað einstaklingar hlotið þá viðurkenningu. -gun Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Sigríður Guðmundsdóttir (Sigga á Hvítanesi) Höfða, Akranesi, lést laugardaginn 11. febrúar. Útförin fer fram frá Akraneskirkju laugardaginn 25. febrúar kl. 14.00. Ástríður Þ. Þórðardóttir Ester Teitsdóttir Ævar Hreinn Þórðarson Þórey J. Þórólfsdóttir Sigurður Þórðarson María Lárusdóttir barnabörn, langömmubörn, langalangömmubörn og fjölskyldur. Elsku hjartans mamma, tengdamamma og amma, Guðrún Hjörleifsdóttir (Guggú) lést í faðmi fjölskyldunnar á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 13. febrúar. Útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 21. febrúar kl. 15.00. Ragnhildur Bergþórsdóttir Sigurbergur M. Ólafsson Atli Bergþórsson Sólrún Helga Örnólfsdóttir Eleonora Bergþórsdóttir Hekla Mekkín, Hlynur Snær, Sindri Freyr og Alísa Rán Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Baldur Skarphéðinsson Dalbraut 27, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 12. febrúar. Halla Björg Baldursdóttir Magnús Páll Albertsson Gísli Baldursson Ragnheiður Sigurgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Elskuleg frænka okkar, Ingibjörg Halldórsdóttir Kambsmýri 6, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar sunnudaginn 5. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að hennar ósk. Sigurbjörg Andrésdóttir og aðstandendur. Elskuleg dóttir okkar, systir, mágkona og frænka, Vilhelmína Guðmundsdóttir sem lést þriðjudaginn 7. febrúar, verður jarðsungin föstudaginn 17. febrúar kl. 13.00 frá Hjallakirkju í Kópavogi. Guðmundur Ottósson Anna Þóra Sigurþórsdóttir Grétar Karlsson Ólöf Ólafsdóttir og frændsystkini. Hvað gerum við fyrir og með hönnuðum? er yfirskrift fundar í Listasafni Reykjavíkur, Hafnar- húsi í kvöld klukkan 20. Þar kynna Bjarnheiður Jóhannsdóttir og Guð- mundur Óli Hilmisson þjónustu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og helstu styrki og stuðningsmögu- leika. Sérstök áhersla verður lögð á Átak til atvinnusköpunar sem er styrkáætlun fyrir nýsköpunar- verkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköp- unarfyrirtækja en næsti umsókn- arfrestur er til 1. mars. Fundurinn er liður í fyrirlestra- röð Hönnunarmiðstöðvar, Listahá- skólans og Listasafns Reykjavíkur. Kynna styrki til nýsköpunar HAFNARHÚS Fundurinn verður í Listasafni Reykjavíkur. Þrjú íslensk ungmenni munu keppa í Stora Dalsdansen, norrænni/baltneskri sólóballettkeppni sem haldin er árlega í Svíþjóð og verður að þessu sinni í Falun í mars. Þetta eru þau Ellen Mar- grét Bæhrenz, Þórey Birgisdóttir og Karl Friðrik Hjaltason, öll nemendur við Listdansskóla Íslands. Þau sigruðu í undankeppni sem Félag íslenskra list- dansara hélt nýlega í Gamla bíói. Ellefu keppendur á aldrinum 16-19 ára tóku þátt í undankeppninni og fengu viðurkenningarskjöl fyrir. Sigur- vegararnir hlutu verðlaunagripi, ásamt 40 þúsund króna ferðastyrk úr minn- ingarsjóði Svandísar Þulu Ásgeirsdótt- ur en sjóðurinn var stofnaður 2. des- ember 2008 þegar tvö ár voru liðin frá því Svandís Þula lést í bílslysi, aðeins fimm ára gömul. Hún hafði stundað ballettnám í Ballettskóla Eddu Schev- ing í rúm tvö ár áður en hún dó. - gun Dansað til sigurs ÞAU TAKA ÞÁTT Í STORA DALDANSEN Þórey Birgisdóttir, Ellen Margrét Bæhrenz og Karl Friðrik Hjaltason. MYND/HEIÐA KRISTÍN RAGNARSDÓTTIR Vífill Oddsson heiðursfélagi VFÍ HEIÐURSFÓLK Vífill Oddsson, Guðmundur Guðmundsson, Sólveig Þorvaldsdóttir, Steinar Friðgeirsson og Steindór Guðmundsson. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Þórdís Tryggvadóttir myndlistarkona, lést föstudaginn 10. febrúar 2012. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 17. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Sigríður Egilsdóttir Ólafur Jóhann Ólafsson Helga Egilsdóttir Björgúlfur Egilsson Lísa Pálsdóttir Tryggvi Egilsson Elín Magnadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri Jón Tryggvason fyrrum húsgagnabólstrari, síðast til heimilis að Jóruseli 8 í Reykjavík, lést föstudaginn 10. febrúar sl. Jarðarförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 17. febrúar nk. kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á barnaupp- eldissjóð Thorvaldsensfélagsins eða aðra líknarsjóði. Hrefna Magnúsdóttir Auður Jónsdóttir Víðir Ástberg Pálsson Petra Jónsdóttir Kristjana Þórdís Jónsdóttir Jóhannes Karl Sveinsson Jón Tryggvi Jónsson Svala Breiðfjörð Arnardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Yndislegi faðir okkar, tengdafaðir og afi, Halldór Ásgeirsson lést að heimili sínu að Kjarnalundi, Akureyri, sunnudaginn 12. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 20. febrúar kl. 13.30. Ásgeir Halldórsson Jónína Halldórsdóttir Pétur S. Georgsson Guðrún Halldórsdóttir Hafliði Þ. Brynjólfsson Stefán Halldórsson Júlía Árnadóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, Haukur A. Bogason sem lést á Hrafnistu í Reykjavík þann 11. febrúar, verður jarðsunginn frá Áskirkju í Reykjavík 17. febrúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Guðlaug Jónsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.