Fréttablaðið - 16.02.2012, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 16.02.2012, Blaðsíða 53
FIMMTUDAGUR 16. febrúar 2012 37 Low Roar er listamannsnafn Ryans Karazija frá Kaliforníu. Ryan var áður meðlimur í hljómsveitinni Audrye Sessions sem gaf út sam- nefnda plötu árið 2009. Í dag er Ryan hins vegar búinn að vera búsettur á Íslandi í tvö ár og er giftur íslenskri konu. Hann vann Low Roar-plötuna bæði í Reykja- vík og Los Angeles en bandaríska plötuútgáfan Tonequake Records gaf hana út í nóvember síðast- liðnum. Ryan semur lög og texta, syngur og spilar á flest hljóð færin, en á meðal aðstoðarhljóðfæra- leikara eru tveir Íslendingar. Tón listin á plötunni er meló dískt og trega fullt indí popp. Þó að Ryan nái að skapa mjög sterka stem ningu í tón listinni þá er undir spilið oftast frekar naum hyggju legt. Söngurinn er fullur af til finningu en söng stíl Ryans hefur, réttilega, oft verið líkt við Thom Yorke, söngvara Radiohead. Low Roar er svo lítið sein tekin plata, en eftir nokkrar um ferðir í spilaranum nær hún valdi á hlustandanum. Hljómurinn er mjög flottur. Hún hefur sterka heildar mynd og er öll góð, en samt hafa lögin flest sín sér kenni. Þetta er hæg geng tónlist en áhrifa rík. Ryan er góður laga smiður og eins og áður segir eru öll lögin góð og þess vegna erfitt að taka einstök lög út úr, en ég nefni samt þrjú. Patience ein kennist af mjög flottum strengja undir leik, Friends Make Garbage (Good Friends Take It Out) er svo lítið léttara heldur en af gangurinn af plötunni, væntan- lega fyrsta lag í útvarpsspilun og Help Me er almagnað – hægt og melankólískt. Á heildina litið er Low Roar frábær plata frá listamanni sem spennandi verður að fylgjast með í framtíðinni. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Kaliforníumaðurinn og Reykvíkingurinn Ryan Karazija með firnasterka frumsmíð. Melódísk og tregafull Hurð skall nærri hælum þegar sæljón reyndi að bíta söngkonuna Shakiru í Höfðaborg í Suður- Afríku. Hún var í fríi niðri á strönd þegar hún sá nokkur sæljón og ákvað að komast nálægt þeim og smella af þeim myndum. „Eitt þeirra stökk upp úr vatninu mjög hratt og stóð hálfan metra frá mér, horfði í augun á mér, öskraði og reyndi að bíta mig,“ sagði Shakira, sem lamaðist af ótta. Bróðir hennar Tony brást snöggt við og dró hana í burtu á síðustu stundu. Sæljón vildi bíta Shakiru Í HÆTTU STÖDD Söngkonan Shakira var í hættu stödd í Suður-Afríku. Naomie Harris, sem leikur Bond- stúlkuna Eve í Skyfall, hefur lagt mjög hart að sér til að komast í form fyrir áhættuatriði myndar- innar. „Ég er að reyna að leika í öllum áhættuatriðunum sjálf. Ég hef hingað til leikið í þeim öllum. Eftir tvær vikur verður stórt áhættuatriði, þannig að ég veit ekki alveg hvort ég næ að leika í því,“ sagði hin 35 ára Harris. Daniel Craig, sem leikur 007, hefur einnig lagt hart að sér og æft í tvo tíma á dag eftir allt að fjórtán klukkustunda tökur. „Hann er alltaf í frábæru skapi og heldur andrúmsloftinu léttu,“ sagði Naomie um Craig. Æfir vel fyrir áhættuatriði Í FORMI Naomie Harris reynir að halda sér í góðu formi fyrir áhættuatriðin. NORDICPHOTOS/GETTY Tónlist ★★★★★ Low Roar Low Roar www.kexsmidjan.is Uppskrift að góðum degi: Taktu Íslandskex upp úr pakkanum, smyrðu með íslensku smjöri og leggðu ofan á ljúffengan íslenskan ost, ekki skemmir að setja dreitil af sultu á toppinn. Einnig er íslenskt grænmeti góður kostur, sem gerir það ögn ferskara í skammdeginu. Íslandskex er bragðgott kex sem hentar í öll mál fyrir þig. Goðafoss er meðal stærstu fossa á Íslandi og þykir jafnframt einn sá fallegasti. Hann er formfagur og einkar myndrænn, 12 metra hár og og skartar sínu fegursta allan ársins hring. Klettar á skeifulaga foss- brúninni greina Goðafoss í tvo meginfossa sem steypast fram af hraunhellunni skáhalt á móti hvor öðrum. Auk þeirra eru nokkrir smærri fossar eftir vatnsmagni fljótsins. Einn þeirra þrengir sér á milli meginfossanna tveggja og gefur fossinum sinn sterka svip. í alfaraleið á Norðurlandi. Opið laugard. kl. 10-14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.