Fréttablaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 22
18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR
Umræðan um almenna lækkun hús næðis skulda
lands manna heldur áfram.
Stjórn völd þykjast hafa lækkað
hús næðis skuldir heimilanna
um 200 milljarða nú þegar og
halda því fram að ekki sé hægt
að gera meira. Þetta stenzt hins
vegar ekki skoðun. Fyrir til-
stilli stjórnvalda hafa húsnæðis-
skuldir landsmanna aðeins
lækkað um einhverja 30–40
milljarða með ótrú lega flóknum,
sér tækum aðgerðum. Lang mesti
hluti 200 milljarðanna er kominn
til vegna hæstaréttardóms um
ólögmæti gengistryggðra lána.
Ef eitthvað reyndi ríkisvaldið
að hindra, að slíkur úrskurður
yrði felldur, lyfti a.m.k. ekki litla
fingri til að flýta fyrir honum.
Dómurinn hefur hins vegar haft
í för með sér, að höfuðstóll gengis-
tryggðra húsnæðisskulda hefur
lækkað umtalsvert. Á sama tíma
hefur höfuðstóll verðtryggðra
skulda hækkað stjórnlaust. Það er
ekki mikill jöfnuður í því.
Forsætisráðherra og grátkór
lífeyrissjóðanna eru óspör á að
segja, að það sé óðs manns æði
að fara í almenna 20% skulda-
leiðréttingu. Stjórnvöld yrðu
talin skaðabótaskyld nema sam-
þykki allra kröfuhafa eða lán-
veitenda fengist, sem verður að
teljast ólíklegt. Verðmiðinn sé
um 200 milljarðar miðað við, að
húsnæðisskuldirnar séu 1.000
milljarðar. Almenningi er svo
talin trú um, að ríkissjóður/
skattgreiðendur verði að greiða
þennan kostnað, nánast sama
dag og leiðrétting eigi sér stað.
Menn virðast ekki átta sig á
því, að heildarupphæð húsnæðis-
lána er bókfært virði (væntingar
um endurgreiðslu) þeirra miðað
við, að þær innheimtist að fullu
á 25–40 ára lánstíma. Er það lík-
legt? Þúsundir heimila ráða illa
við að greiða af stökk breyttum,
verðtryggðum húsnæðislánum
og því sennilegt, að mikil afföll
verði á virði lánasafnsins á
næstu árum. Með því að lækka
höfuðstól lánanna um 10–15%,
gæti innheimtan orðið öruggari,
greiðsluviljinn meiri, og lána-
stofnanir myndu innheimta
hærra hlutfall skuldanna en ella.
Ef til vill meira en sem nemur
höfuðstólslækkuninni.
Hér er varpað fram þeirri
hugmynd að breyta lánskjara-
vísitölunni með einfaldri aðgerð,
það er að hreinsa burt allar inn-
lendar skattbreytingar og önnur
álíka ósanngjörn áhrif og nota
framvirkt veldismeðaltal vísi-
tölunnar til að draga úr miklum
sveiflum á henni. Það er ef til
vill ekki óeðlilegt, að lánskjör
Íslendinga versni við að kaffi
hækki í Brazilíu. Það gildir hins
vegar ekki, þegar ríkið hækkar
virðisaukaskatt skyndilega um
1%, eykur tekjuskatt eða álögur
á áfenga drykki og benzín.
Á sama hátt geta sparifjár-
eigendur ekki ætlazt til að
banka inni stæður þeirra hækki
af þeim sökum. Tökum dæmi
frá stóru nágrannalandi okkar,
Þýzkalandi. Þar var virðis-
aukaskattur hækkaður um heil
3% fyrir nokkrum árum, úr
16 í 19%, til að rétta af fjár-
hag ríkisins. Við það hækkaði
verðlag í Þýzkalandi. Skyldi
einhverjum þýzkum sparifjár-
eiganda hafa látið sér detta í hug
að heimta hlutfallslega hækkun
á bankainnistæðu sinni af þeim
sökum eða lánastofnunum að
hækka húsnæðislán?
Hefði vísitala með ofan-
greindum formerkjum verið
innleidd á Íslandi 1995 í stað
hrárrar neyzluvísitölu, væri
hún núna um 20% lægri en nú-
verandi lánskjaravísitala. Réttlát
breyting á vísitölunni þyrfti að
vera afturvirk til 1. september
2008, en ef það kynni að skapa
ríkinu skaðabótaskyldu er betra
en ekki að breyta vísitölunni
strax framvirkt til að koma í veg
fyrir, að almenningur verði með
öllu eignalaus eftir nokkur ár.
Með þessari aðgerð er hægt
að lækka húsnæðisskuldirnar
framvirkt án skaðabótaskyldu
fyrir ríkið. Að sjálfsögðu munu
verðtryggðar innistæður lækka
að sama skapi sem er eðlilegt.
Þetta gæti ef til vill orðið grund-
völlur sátta í þjóðfélaginu. Taka
verður undir með Jóhönnu, að
bezta lausnin er sú að skipta um
gjaldmiðil, taka upp evru. Sú
lausn mun hins vegar taka allt of
langan tíma. Heimilin verða öll
komin á hausinn áður, ef ekkert
verður aðhafzt nú þegar.
Ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar ákvað 1983 að
afnema vísitölutengingu launa
til að reyna að koma böndum á
verð bólguna sem þá grasseraði.
Næstu ár á eftir fundu laun þegar
áþreifanlega fyrir því. Verð-
tryggður höfuðstóll húsnæðis-
lána jókst hratt í 30% verðbólgu,
en launin stóðu nánast í stað.
Sigtúnshópurinn svokallaði, en
Ögmundur Jónasson, núverandi
innanríkisráðherra, var aðal-
talsmaður hans, vakti óspart
athygli á þessu óréttlæti. Full-
trúar launþega í verkalýðshreyf-
ingunni tóku undir það, andstætt
því sem nú gerist. Það leiddi til
þess, að lánskjaravísitölunni
var breytt með lögum í janúar
1989 og launavísitala reiknuð
inn í hana að einum þriðja. Þetta
dró verulega úr hækkun verð-
tryggðra skulda landsmanna á
næstu mánuðum og misserum.
Tvö fjármálafyrirtæki fóru í mál
og kröfðust þess að verðtryggð
skuldabréf sem þau áttu skyldu
greidd samkvæmt gömlu vísi-
tölunni og báru fyrir sig eignar-
rétt skv. stjórnarskrá. Viðskipta-
ráðherra hefði ekki haft vald til
að breyta vísitölugrunni verð-
tryggingar skuldanna. Ríkið
vann málin á báðum dóms stigum.
Taldi Hæstiréttur að ríkis-
valdið hefði sett verðtryggingu
á með lögum og hefði því rétt til
þess að breyta vísitölunni með
þeim hætti sem var gert. Þess
vegna var ekkert aðhafzt, þegar
lánskjaravísitölunni var breytt
aftur 1995, en á ný voru það
helztu forvígismenn launþega-
samtaka sem kröfðust þessa.
Þeir töldu að vísitalan frá 1989
væri orðin of óhagstæð fyrir
launafólk.
Það vekur því nokkra athygli,
að 2012 berjast forsvarsmenn
launþega hvað harðast gegn
því að milda áhrif vísi tölunnar.
Lánskjaravísitalan, sem nú er
í gildi, er óskadraumur fjár-
magnseigenda. Hún mælir allar
breytingar sem geta valdið
hækkun hennar þeim í hag,
hvort sem einhver rök eða skyn-
semi eru fyrir því. Hagsmunir
skuldara eru hins vegar fyrir
borð bornir.
Lækkun húsnæðisskulda
Fjármál
Júlíus
Sólnes
fv. umhverfisráðherra
Sími: 561 1433
Austurströnd 14
Hringbraut 35
Fálkagötu 18
Lönguhlíð
góðar
ástæður
til að heimsækja
...okkur
3
mánudaga-föstudaga...........7.30 -17.30
laugardaga.........................8.00 -16.00
KONUDAGUR....................8.00 -18.00
BOLLUDAGUR....................7.30 -18.30
B
O
LLU
R
Á
B
O
LLU
D
A
G
IN
N
U
R
Á
UU
D
U
D
U
D
G
A
G
A
G
A
G
INININ
NNN
B
R
A
U
Ð
O
G
R
Ú
N
STY
K
K
I
A
LLA
D
A
G
A
B
R
A
U
Ð
O
G
R
Ú
N
S
A
L
A
L
A
LLALALA
DDD
G
A
G
A
G
A
G
AAA
B
O
LLU
O
B
O
B
O
B
O
LLLLLLUUUU
STY
K
K
I
K
A
K
A
Á
R
SIN
S 2
0
1
2
Á
K
O
N
U
D
A
G
IN
N
PREN
TU
N
.IS
Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi
á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur