Fréttablaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 86
18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR54
krakkar@frettabladid.is
54
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Í byrjun mánaðarins breyttist
heldur betur lífið hjá syst-
kinunum Emilíönu og Jakobi, og
mömmu þeirra og pabba, þeim
Kristjáni og Júlíu. Þá stækkaði
nefnilega fjöl skyldan um heila
manneskju. Litla systirin, sem
fæddist 3. febrúar, er bæði með
dökkt hár og augu og líkist dá-
lítið syst kinum sínum tveimur,
þegar þau fæddust. Hún hefur
fengið nafnið Rebekka.
Rebekka litla átti reyndar að
fæðast tveimur vikum fyrr, en
henni leið svo vel í hlýjunni í
maganum á mömmu sinni að
hún lét bíða eftir sér. Syst-
kinin voru orðin mjög spennt
og segja að mamma þeirra
hafi verið komin með rosalega
stóran maga. En nú er maginn
á mömmu þeirra ekkert stór
lengur enda Rebekka komin
í heiminn og systkinin orðin
þrjú.
Emilíana er átta að verða
níu ára og Jakob er tveggja að
verða þriggja ára. Þau deila
herbergi og ætla kannski
að leyfa litlu systur sinni
að eiga það með þeim þegar
hún stækkar svolítið. Jakob
kinkar líka kolli þegar hann
er spurður hvort Rebekka fái
að vera með honum á leikskóla
þegar hún verður aðeins
stærri. Hann er á Laufásborg
en Emilíana er í Barnaskóla
Hjallastefnunnar í Reykjavík.
Á meðan blaðamaður er í
heimsókn hjá fjölskyldunni
tekur stóra systirin þá litlu í
fangið og gengur með hana
um gólf. Það er greinilegt að
hún kann alveg að halda á litlu
barni. Það er líka ekkert skrítið,
því hún er búin að vera stóra
systir hans Jakobs í næstum því
þrjú ár og passar hann oft fyrir
mömmu sína og pabba. „Hún
kann ekkert að tala,“ útskýrir
Jakob, áður en hann hleypur inn
í eldhús til pabba síns og fær
hjá honum bita.
Emilíönu finnst mjög gaman
að hafa eignast litla systur
núna, því hún átti bróður
fyrir. „Það eru sko alveg
fimm vinkonur mínar sem
eiga enga litla systur heldur
bara litla bræður,“ segir hún
og bætir við að vinkonurnar
langi dá lítið til að eignast
litla systur eins og hún. Samt
finnst henni líka mjög gaman
að eiga Jakob, að minnsta kosti
oftast. „Fyrst þegar hann kom
var hann svona lítill eins og
hún. En svo stækkaði hann
og stækkaði. Mér fannst hann
alveg góður þegar hann var
lítill, en ekki alltaf eftir að
hann varð stór, því þá byrjaði
hann að ráðast inn í herbergið
mitt og rústa öllu og svoleiðis,“
segir Emilíana. Hún er samt
alveg til í að eignast nokkur
systkini í viðbót, en samt ekki
eins mörg og amma hennar
á. „Langamma mín eignaðist
sextán börn! En hún bjó líka
uppi í sveit, svo það var alveg
pláss fyrir þau öll.“
holmfridur@frettabladid.is
ÞAÐ ER SKEMMTILEGT
AÐ EIGNAST NÝJA SYSTUR
Emilíana og Jakob eru ánægð með litlu systur sína og ætla kannski að leyfa henni að eiga herbergið þeirra með þeim, þegar hún
verður aðeins stærri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vala var að ljúka við bænirnar
sínar. „Góði Guð, blessaðu
mömmu og pabba og láttu
Rotter dam vera höfuðborg Hol-
lands.“
„Af hverju segir þú þetta?“
spurði mamma hennar
undrandi.
„Af því ég skrifaði það á próf-
blaðið í dag.“
Pabbi, hvenær verð ég nógu
gamall til að gera allt sem mig
langar til?“
„Ég veit það ekki. Enn hefur
enginn orðið svo gamall.“
„Mamma, kennarinn spurði mig
í dag hvort ég ætti nokkur yngri
systkini sem ekki væru byrjuð
í skóla.“
„Og hvað sagði hann þegar þú
sagðir að þú værir einkabarn.“
„Guði sé lof!“
Á bolludaginn eiga börn að bregða á glens og vekja
heimilisfólkið með flengingu. Það er gamall og góður
siður sem á sér um hundrað ára sögu hér á landi.
Af þessum sökum hefur dagurinn stundum verið
kallaður flengingardagur.
Áður fyrr, meðan hús voru almennt ólæst í
borginni, þekktist það jafnvel að börn gengju í hús
ná grannanna og flengdu þá í rúminu og sá þótti
mestur sem flesta gat flengt. Að launum áttu börnin
að fá eina eða tvær bollur. Sumir fullorðnir reyndu að
kaupa sig frá flengingum með því að bjóða bollur
gegn því að sleppa.
Sumir þylja einhverjar þulur um leið og þeir láta
höggin dynja, ein er svona:
Tvíbaka, bolla, kringla krans,
þetta gefur Imba Brands.
Bolluvendirnir eru yfirleitt gerðir úr löngum prikum og
litríkum pappírsræmum og þá er auðvelt að búa til.
En líka má nota litla trjágrein eða hvað sem er.
Tvíbaka, bolla, kringla, krans
KIDS.GOV heitir bandarískur vefur sem heldur utan um vefsíður sem
sérstaklega hafa verið hannaðar fyrir börn og unglinga af opinberum aðilum í
Bandaríkjunum. Dæmi um efni á Kids.gov: Listgreinar, tölvur, leikir, heilsa og
líkamsrækt, peningar, stærðfræði, vísindi, félagsfræði og ótalmargt fleira.