Fréttablaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 88
18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR56
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. sálar, 6. málmur, 8. skarð, 9. blása,
11. tveir eins, 12. umfang, 14. kölski,
16. tónlistarmaður, 17. traust, 18. for,
20. gangflötur, 21. skjótur.
LÓÐRÉTT
1. hreinsiefni, 3. númer, 4. gjaldmiðill,
5. styrkur, 7. lævís, 10. angra,
13. stefna, 15. ekkert, 16. kóf, 19. slá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. anda, 6. ál, 8. rof,
9. púa, 11. ll, 12. ummál, 14. satan,
16. kk, 17. trú, 18. aur, 20. il, 21. frár.
LÓÐRÉTT: 1. sápu, 3. nr, 4. dollari, 5.
afl, 7. lúmskur, 10. ama, 13. átt, 15.
núll, 16. kaf, 19. rá.
Ennþá mjög
taktlaus!
Aldrei aftur
Maggi!
Skilurðu það?
102,103,
104 ...sjáðu
pabbi!
105...
Haha!
Billi, skórnir þínir
eru ekkert smá
hommalegir!
Ég er
hommi,
Palli.
Ég veit.
Ég meinti ekki að
þeir væru sam-
kynhneigðir. Ég
meinti að þeir væru
asnalegir.
Af hverju mistúlkar
fólk alltaf allt sem ég
segi?
KLÓSETTIN Í
SKOTLANDI
ERU ÖÐRUVÍSI.
Samkvæmt þjónustu-
deildinni verður búið
að gera við bílinn á
morgun.
Einmitt það
sem ég
óttaðist.
Af hverju? Ertu
í vandræðum
með lánsbílinn?
Bara eitt. Þegar ég er búinn að setja bílstólinn, kollinn
og bleyjupokann í bílinn þá er ekkert pláss
eftir fyrir börnin.
Undanfarið hefur töluvert verið rætt og ritað um það hvort trúfrelsisákvæði
stjórnarskrárinnar geri menn undanþegna
landslögum um hatursáróður ef þeir geta
fært rök fyrir því að mannhatrið sé trúar-
leg afstaða. Minna hefur verið rætt um
það hvaða sálarmein valdi því að kristni
sumra skuli brjótast út í hatursáróðri en
ekki kærleiksáróðri. Jesús frá Nasaret
var jú einhver mesti áróðursmeistari
kær leikans sem uppi hefur verið: „Elska
skaltu náungann eins og sjálfan þig.“
ÞAÐ ER rétt að í Gamla testamentinu er
kynlíf tveggja karlmanna sagt viður-
styggð (3M 18.22; 20.13). Á báðum þess-
um stöðum er líka tekið fram, nánast
í næstu setningu á undan eða eftir, að
fólk skuli ekki sofa hjá á meðan konan
er á túr (18.19; 20.18). Af einhverjum
ástæðum virðast þeir, sem mest er í
nöp við hommaskap, alveg láta
hjá líða að berjast með sama
offorsi gegn því að fólk sé
að gera dodo þegar Rósa
frænka er í heimsókn –
þótt Guð þeirra hafi alveg
jafnmikla andstyggð á
því. Þeir, sem byggja vilja
hjónabandsskilning sinn
á Gamla testamentinu,
verða auk þess að sam-
þykkja fjölkvæni (1Kron
3.1-9 o.fl.), kynlífsþrælkun og nauðung-
arstaðgöngumæðrun (1M 16.1-4) og að
nauðgari geti komist hjá refsingu með því
að kvænast fórnarlambi sínu og greiða
föður þess skaðabætur (5M 22.28-29).
Þeir, sem beita Gamla testamentinu fyrir
sig í þessari umræðu, eru greinilega að
velja það sem hentar fordómum þeirra úr
safni fyrirmæla sem þeim dettur ekki í
hug að taka önnur ákvæði úr alvarlega. Ég
leyfi mér að fullyrða að erfitt sé að finna
nokkra bók, sem verr er til þess fallin að
byggja kristinn hjónabandsskilning á, en
ritasafn Gamla testamentisins – alltjent
ef lögbók hirðingjaþjóðar frá bronsöld er
skilin bókstaflega og hvorki er reynt að
lesa þetta ritasafn í samhengi ritunartíma
síns og menningarsögulegs bakgrunns,
innbyrðis samhengi sögunnar, sem þar er
sögð, né að greina kjarnaboðskap hennar.
Þeir, sem lesa Gamla testamentið með
þessum hætti, mættu hafa hina kristilegu
grundvallarafstöðu í huga: „Dæmið ekki
og þér munuð eigi verða dæmd.“ (Lúk
6.37)
EN Á hverju eigum við þá að byggja
„kristinn“ hjónabandsskilning? Þetta kann
að hljóma langsótt en kannski væri óvit-
laust að byggja hann á Kristi sjálfum: „Á
því munu allir þekkja að þér eruð mínir
lærisveinar ef þér berið elsku hver til
annars.“ (Jóh 13.35)
Áróðursmeistari kærleikans
„Bókin er kraftmikil,
ánetjandi og hjartnæm.“
K R ISTJA NA GU ÐBR A N DSDÓT T IR / DV
„Ég var heltekin af bókinni …
Hungurleikarnir
eru ótrúlegir.“
ST EPHE N IE ME Y ER , HÖF U N DU R L JÓSA SK IP TA
HEFJUM LEIKA!
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi Rvk
Akureyri
Reykjanesbæ
Húsavík
Vestmannaeyjum
Tvær góðar!
5.990,-
Spandy heimilisryksugan
• 1600W
• afar hljóðlát
• mikill sogkraftur > 18KPA
• Hepa filter
• margnota poki
Drive ryksuga í bílskúrinn
• 1200W
• 20 lítra
• sogkraftur > 16KPA
• fjöldi fylgihluta
6.990,-