Fréttablaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 110
18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR78
PERSÓNAN
„Þetta á eftir að vera skemmtilegt,“ segir sjónvarps-
maðurinn Logi Bergmann Eiðsson.
Logi Bergmann verður kynnir á Edduverðlaunahá-
tíðinni í Gamla bíói í kvöld. Starf kynnisins virðist æ
meira snúast um að gera grín að bransanum, en hinn
breski Ricky Gervais hefur til að mynda vakið mikla
athygli fyrir frammistöðu sína á Golden Globe-verð-
launahátíðum síðustu þriggja ára. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins ætlar Logi að varpa bombum.
„Ég veit það ekki,“ segir hann og hlær. „Mér finnst
að maður eigi að vera skemmtilegur, og ef ég móðga
einhvern, þá verður bara að hafa það. Er það ekki?“
Logi segir það skyldu sjónvarpsmanna að reyna
að vera skemmtilegir. Sjálfur ætlar hann að reyna.
„Maður getur gert grín að hlutunum, en maður má
ekki vera mjög dónalegur,“ segir hann. „Það er hægt
að segja ótrúlegustu hluti ef þeir eru fyndnir. Það
er annað mál ef maður er að drulla yfir fólk. En mér
finnst að það mætti aðeins pönkast í fólki. Ég veit
ekki hvað ég geng langt, það fer eftir því hvernig
hlutirnir raðast.“
Logi kynnti síðast Edduverðlaunin fyrir áratug
og segist ekki muna hvenær hann vann síðast, en
í ár er þáttur hans Spurningabomban tilnefndur
sem skemmtiþáttur ársins. Logi er spenntur fyrir
verkefninu og segir af nægu að taka. „Þetta er búið að
vera ágætisár. Það er heilmikið búið að gerast. Ekki
hægt að kvarta undan því,“ segir hann.
Hátíðin verður sýnd á Stöð 2 og hefst klukkan 21.
- afb
Pönkast í bransanum á Eddunni
Sindri Már Sigrúnarson
Aldur: 27
ára.
Starf:
Húðgatari.
Foreldrar:
Sigrún Jóns-
dóttir og
Sigmundur
Gunnarsson.
Fjölskylda:
Á einn lítinn
strák og níu
systkini.
Búseta:
Ísafjörður og
Reykjavík.
Stjörnumerki: Vog.
Sindri Már lét húðflúra hljómsveitar-
nafnið Endless Dark á höfuð sitt.
Krassandi ævintýraleikrit
í leikstjórn Sigga Sigurjóns
MIÐASALA Á NETINU: LEIKFELAG.IS
NETFANG: MIDASALA@LEIKFELAG.IS
MIÐASÖLUSÍMI: 4 600 200
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX
FRAMLEITT AF LEIKFÉLAGI AKUREYRAR Í SAMSTARFI VIÐ BORGARLEIKHÚSIÐ
Lau 18/2 kl.16 UPPSELT
Lau 18/2 kl.19 UPPSELT
Sun 19/2 kl.16 UPPSELT
Fim 23/2 kl.19 örfá sæti laus
Fös 24/2 kl.19 UPPSELT
Lau 25/2 kl.16 UPPSELT
Lau 25/2 kl.19 UPPSELT
Sun 26/2 kl.16 UPPSELT
Fim 1/3 kl.19 örfá sæti laus
Fös 2/3 kl.19 örfá sæti laus
Lau 3/3 kl.16 ný sýning
Lau 3/3 kl.19 örfá sæti laus
Lifestream Bowel+
meltingarensímin tryggja betri meltingu,
meiri upptöku á næringaefnum og góða
líðan í maga og ristli.
Regluleg inntaka tryggir vellíðan.
Inniheldur:
Meltingarensím • HUSK trefjar
5 teg acidofilusgerla • Inulin FOS
Nútíma meðhöndlun á matvælum
eyðileggur ensímin í matnum,
því skortir flesta meltingarensím
nema við séum reglulega á hráfæði.
lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar
Fæst: Apótekum, heilsubúðum og Krónunni.
Bragðgott, 2 tsk á dag
ATLI ÖRVARSSON: HANN ER ÓTRÚLEGA LJÚFUR MAÐUR OG KURTEIS
Veitir stjörnunni Anthony
Hopkins tónlistarráðgjöf
STARFAR MEÐ HOPKINS
Atli Örvarsson hefur starfað með stór-
leikaranum Anthony Hopkins að
undanförnu.
aðstoðaði hann m.a. við gerð tón-
listarinnar við myndirnar Englar
og djöflar, Pirates of the Caribbean
og Frost/Nixon.
Vegur hans í Hollywood hefur
verið að aukast smátt og smátt
undan farin ár. Hann hefur upp
á eigin spýtur samið tónlist við
fjölda kvikmynda og sjónvarps-
þátta, þar á meðal Season of the
Witch, The Code og Law and Order.
Núna síðast gerði hann samning
við Paramount Pictures um að
semja tónlistina við rándýra hasar-
mynd byggða á ævintýrinu um
Hans og Grétu sem verður frum-
sýnd síðar á árinu.
freyr@frettabladid.is
„Hann er ótrúlega ljúfur maður
og eins kurteis og almennilegur
í framkomu og hægt er að vera,“
segir Atli Örvarsson, tónskáld í
Hollywood.
Atli hitti nýverið stórleikarann
Anthony Hopkins í hljóðveri sínu í
Santa Monica. Þeir ræddu um sam-
starf í tónlistinni en Hopkins hefur
gert töluvert af því að semja tón-
list, þar á meðal við kvikmyndir
sem hann hefur sjálfur leikstýrt.
„Það var sameiginlegur vinur
okkar sem stakk upp á mér til
að hjálpa honum. Í rauninni var
hann að leita að einhverjum til
að hjálpa sér við útsetningar. Ég
hugsaði með mér að maður gæti
dregið einhvern lærdóm af því að
sitja í klukkutíma með Anthony
Hopkins,“ segir Atli. „Við hittumst
um daginn og hann talaði um að við
myndum vinna með þetta meira.
Hann er með ýmsar hugmyndir
í pokahorninu. Hann er búinn að
vera að semja í gegnum tíðina og
vill koma því í fastara form,“ segir
hann og bætir við í léttum dúr: „Ég
djókaði með að það yrði sett sem
skilyrði áður en ég hitti hann að
hann væri búinn að fá sér stað-
góðan morgunverð.“ Vísar hann
þar í Óskarsverðlaunahlutverk
Hopkins sem mannætan Hannibal
Lecter í Silcence of the Lambs.
Hlé er á samstarfi þeirra um
þessar mundir vegna þess að
Hopkins þurfti að drífa sig til Bret-
lands til að leika þar í nýrri mynd.
Þeir munu taka aftur upp þráðinn
síðar á árinu.
Atli er sjálfur staddur hér á
landi. „Ég fékk tilnefningu til
Eddu-verðlaunanna fyrir tónlistina
fyrir Eagle og ákvað að nota það
sem afsökun til að skreppa heim
og heimsækja vini og vandamenn.“
Atli hefur búið í tæp tuttugu
ár í Bandaríkjunum. Hann hefur
unnið töluvert undir leiðsögn hins
þekkta tónskálds Hanz Zimmer og
„Við erum að taka þennan mat og gera
hann með hjartanu,“ segir Sigurður Karl
Guðgeirsson, einn af eigendum veitinga-
staðarins Roadhouse við Snorrabraut, sem
verður opnaður í dag.
Sigurður ætlar að bjóða upp á bandarískan
mat sem verður nánast allur útbúinn á staðn-
um. „Þessir staðir eru með allt þetta verk-
smiðjuframleidda dót,“ segir hann. „Við erum
að fara aftur til upprunans. Við erum t.d að
laga frönskurnar sjálf. Það tók okkur ellefu
daga að ná þeim góðum. Lauk hringirnir eru
búnir til á staðnum, hamborgararnir eru 140
grömm, vanalega eru þeir 120. Við erum að
gera borgarana eins og í Ameríkunni. Við
reykjum grísahnakka á staðnum, gerum
okkar eigið hvítlauks majones. Við keyptum
reykofn á staðinn svo við getum reykt rifin
sjálfir. Ég er mikill rifjamaður og mér hefur
fundist vanta almennileg rif á Íslandi.“
Talandi um rif þá ætla Sigurður og félagar
að reykja þau á þrenns konar hátt: Með epla-
viði, hikkoríuviði og kirsuberjaviði.
Sigurður rekur einnig suZushii í
Kringlunni og rekur Roadhouse ásamt Ástu,
konunni sinni, og Gunnari Chan. Það tók sjö
mánuði að gera upp húsnæðið sem hýsti áður
sjoppuna Ríkið ásamt öðru, en pláss er fyrir
allt að 112 manns í salnum. Dr. Gunni valdi
tónlist staðarins sem er frá fimmta, sjötta
og sjöunda áratugnum. „Við ætlum að fara í
gamla tímann og gera þetta eins og í gamla
daga,“ segir Sigurður. „Það er drifkrafturinn
okkar.“ - afb
Tók 11 daga að ná frönskunum góðum
GAMLI TÍMINN DRIFKRAFTURINN Sigurður Karl hefur
opnað veitingastaðinn Roadhouse sem sækir í gamla
tímann. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GERIR GRÍN AÐ
BRANSANUM Logi
veit ekki hversu
langt hann ætlar
að ganga í gríninu
á Eddunni í kvöld.