Fréttablaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 80
18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR48
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
timamot@frettabladid.is
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Íris Jónsdóttir
Arnartanga 35, Mosfellsbæ,
lést á Landspítalanum Fossvogi laugardaginn
11. febrúar sl. Útför hennar fer fram frá Lágafellskirkju
mánudaginn 20. febrúar kl. 13.00.
Kristján Þór Valdimarsson
Hrafnhildur Gísladóttir
Ósk Kristjánsdóttir
Lúðvík Aron Kristjánsson Lis Ruth Klörudóttir
og barnabörn.
80 ára afmæli
Örn Geirsson
Í tilefni dagsins tekur hann á móti
vinum og vandamönnum
í salnum í Gullsmára 13, í dag kl. 17.
Gestum er bent á að koma með góða
skapið en blóm og g jafir afþakkaðar.
24 tíma vakt
Sími 551 3485
Davíð H. Ósvaldsson S: 896 8284 Óli Pétur Friðþjófsson S: 892 8947
ÞEKKING–REYNSLA–ALÚÐ
ÚTFA
RARÞJÓNUSTA
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Helgi Þór Sigurðsson
bifvélavirki, Framnesvegi 17, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, mánudaginn
13. febrúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 21. febrúar kl. 13.00.
Anna Lydía Helgadóttir Ólafur Ívar Jónsson
Theódór Helgi Helgason
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
Haukur Pálsson
húsasmíðameistari,
Sléttuvegi 15, Reykjavík,
lést á Landspítala Landakoti sunnudaginn
12. febrúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 20. febrúar kl. 15.00.
Guðrún Helga Hauksdóttir Jóhann Örn Guðmundsson
Gunnar Haraldur Hauksson Kristín Jóna Guðjónsdóttir
Sigurjón Páll Hauksson Sigríður Valdís Karlsdóttir
Kristín Hulda Hauksdóttir Gylfi Jónasson
Haukur Hauksson Dögg Jónsdóttir
Unnur Erna Hauksdóttir Ólafur Örn Valdimarsson
Jónas Guðgeir Hauksson Sigrún Guðmundsdóttir
Júlíana Hauksdóttir Loftur Ólafur Leifsson
Guðfinna Hauksdóttir Hafliði Halldórsson
og fjölskyldur.
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
Snorra Snorrasonar
fyrrv. flugstjóra,
Smáraflöt 11, Garðabæ,
sem lést á heimili sínu í 21. janúar. Sérstakar þakkir
fá hjúkrunarfræðingar Karitas fyrir framúrskarandi
umönnun.
Nanna Nagtglas Snorrason
Jón Karl Snorrason Þórey Jónsdóttir
Snorri Snorrason Guðrún Magnea
Rannversdóttir
Helga Guðrún Snorradóttir Gísli Tryggvason
Haukur Snorrason Hadda Björk Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför bróður
okkar, mágs og frænda,
Ingólfs Árnasonar
vélstjóra.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjúkrunarheimilisins
Markar við Suðurlandsbraut fyrir einstaklega hlýja
og góða umönnun.
Ingibjörg Árnadóttir
Þorbjörg Kjartansdóttir
Þuríður Árnadóttir Júlíus Jón Daníelsson
Sigurður Jónsson Vibeke Jónsson
Arnheiður Árnadóttir Theódór Óskarsson
Halldóra Árnadóttir Benedikt Sveinn Kristjánsson
og systkinabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Baldur G. Bjarnasen
flugvélstjóri,
lést á heimili sínu sunnudaginn 12. febrúar.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 20. febrúar klukkan 15.00.
Þórdís Baldursdóttir Gísli Guðmundsson
Óskar Baldursson Sigrún Birgisdóttir
Sigtryggur Baldursson Sigrún Hrafnsdóttir
Guðjón Þór Baldursson
53
„Þessir tónleikar endurspegla þá
starfsemi sem Stórsveitin hefur staðið
fyrir í tuttugu ár. Þar verður litið um
öxl og meðal annars leikin músík
eftir gesti sveitarinnar gegnum árin
sem margir eru mjög þekktir í hinum
alþjóðlega djassheimi,“ segir tónlistar-
maðurinn Sigurður Flosason. Hann
stjórnar afmælistónleikum Stór sveitar
Reykjavíkur í Kaldalónssal Hörpu
í dag klukkan 15. Sérstakir gestir á
sviðinu verða söngvararnir Kristjana
Stefánsdóttir og Ragnar Bjarnason.
Hlutar úr efnisskrám sem stjórnað
hefur verið af félögum í sveitinni á
liðnum árum verða og á dagskránni í
Hörpu að sögn Sigurðar. „Svo höfum
við unnið með fólki úr poppgeiranum
og munum meðal annars flytja nýja
útsetningu eftir Gunnar Þórðarson
sem Ragnar Bjarnason syngur. Einnig
tökum við lög af plötum sem við höfum
gert þannig að það verður komið víða
við. Þetta verður skemmtilegt og
fjölbreytt prógramm.“
Stórsveit Reykjavíkur hélt sína
fyrstu æfingu 17. febrúar 1992
undir stjórn Sæbjarnar Jónssonar
(1938-2006), stofnanda hennar. „Það
voru margir sem ólust upp undir
handarjaðri Sæbjörns að einhverju
leyti því hann stjórnaði stórsveitum
bæði í Tónmenntaskóla Reykjavíkur
og innan lúðrasveitarinnar Svans.
Nokkra pilta langaði að spila í alvöru
„bigbandi“ og Sæbjörn greip það á lofti.
Þannig varð Stórsveit Reykjavíkur til,“
lýsir Sigurður sem kveðst ekki hafa
verið meðal stofnenda sveitarinnar
heldur byrjað að spila með henni fáum
árum seinna.
Sex til sjö aðalverkefni hafa verið
hjá Stórsveit Reykjavíkur á hverju ári,
auk þess sem fleira fellur til. Nýr og
nýr stjórnandi er ráðinn hverju sinni
til að auka fjölbreytnina, að sögn Sig-
urðar. „Svo æfum við ekki reglulega
heldur er tekin þétt törn fyrir hvert
verkefni þannig að starfið er lotu-
bundið,“ lýsir hann.
Sveitin hefur gefið út fimm geisla-
diska í eigin nafni og auk þess tekið
þátt í samstarfsverkefnum með öðrum
listamönnum, svo sem Bubba Morthens
og Sálinni hans Jóns míns. Hún hlaut
Íslensku tónlistar verðlaunin sem jazzf-
lytjandi ársins árið 2005 og var útnefnd
tónlistarhópur Reykjavíkurborgar árið
2010. „Stórsveit Reykja víkur hefur litið
á sig sem nokkurs konar sinfóníuhljóm-
sveit rytmískrar tónlistar á Íslandi,“
segir Sigurður. „Nýtt efni og gamalt,
innlent og erlent hefur því verið lagt
að jöfnu á hinum fjölmörgu tónleikum
hennar.“ gun@frettabladid.is
HIN TVÍTUGA STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR: HELDUR TÓNLEIKA Í HÖRPU Í DAG
Litið um öxl og leikin verk
sem tengjast sögu sveitarinnar
STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR Á ÆFINGU Sigurður Flosason stjórnar sveitinni á afmælistónleikunum
í Hörpu í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HALLGRÍMUR HELGASON rithöfundur á afmæli í dag.
„Lífið allt er löngun ein, laufið þráir aðra grein.“