Fréttablaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 48
Fræðsluhlutverk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins verður styrkt
enn frekar, en stefnt er að því að auka samstarf skóla- og frístunda-
sviðs Reykjavíkurborgar og garðsins. Nú er í athugun hvernig nýta
megi garðinn og umhverfi hans til fræðslustarfs með börnum, til
dæmis í líffræði og undirgreinum hennar.
Ekki þarf að tjalda miklu til, né
fara illa með fjárhag fjölskyldunn-
ar til að láta drauma barna rætast
á öskudaginn. Bæði er leikur einn
og skemmtun fyrir börn og for-
eldra að föndra öskudagsbúninga
saman og börnin stolt yfir að klæð-
ast afrakstri sínum í búningagerð-
inni.
Á Heimsdegi barna í Gerðu-
bergi í fyrra var Kristín Þóra með
búningasmiðju þar sem hún bauð
börnum að bregða sér í gervi blóð-
sugunnar Drakúla greifa frá Tran-
sylvaníu. Sjá má einfalt snið að
skikkju hans hér á síðunni ásamt
vígtönnum, en efniviður er stór,
svartur plastpoki, rauður krep-
pappír og jólarautt krulluband.
Hvítt pappakarton er notað til
tannsmíða og festast vígtennurnar
af sjálfu sér með munnvatni blóð-
suganna.
Á nýliðnum Heimsdegi barna í
Gerðubergi um síðustu helgi stóð
Kristín Þóra aftur fyrir búninga-
smiðju fyrir börn og nú snerist
ævintýrið um vetrarríkið; heim
snædrottninga og snækónga. Efni-
viður í skikkjur þeirra er hinn
sami: stór, hvítur ruslapoki með
samanbrotnum kraga úr bláum
kreppappír, rykktum saman með
bláu krullubandi og kóróna úr
pappa, álpappír og silfruðu jóla-
skrauti.
Ævintýrin lifna við
Á öskudag gefst börnum tækifæri til að feta opinberlega í fótspor eftirlætis sögupersóna sinna. Í Menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi hefur textílhönnuðurinn Kristín Þóra Guðbjartsdóttir kennt börnum að
útbúa eigin öskudagsbúninga á Heimsdegi barna og gefur hér hugmyndir að tveimur þeirra.
SNIÐ OG AÐFERÐ ÁLFAKÓRÓNU
Í kórónuna þarf
hvítt karton, um
5 cm á breidd
og 60 cm langt.
Álpappír er vafið
utan um hvíta
pappann og ef
þarf þá er límt
saman með
límbandi að innanverðu. Sex bútar
af álpappír, um 12x12 cm er kuðlað
saman, snúið upp á og límdir á
innanverða kórónuna til að mynda
ísoddana. Kórónan heft saman og
annað glitrandi skraut heft eða límt
framan á kórónuna.
MYND/KRISTÍN ÞÓRA GUÐBJARTSDÓTTIR
Ruslapoki er tekinn og botn klipptur af, síðan er pokinn klofinn. Fyrst er pokinn
klipptur til og svo er kreppappír brotinn saman (meiri fylling næst í kragann ef
kreppappírinn er hafður tvöfaldur) og saumaður með umbúðakrullubandi og
stoppunál í skikkjuna. Sama snið á skikkju dugar fyrir álfakóngafólkið, fyrir utan
það að ekki er klippt meðfram slánni í boga heldur beint.
Hvítur pappi eða karton er notaður í vampírutennurnar.
MYND/KRISTÍN ÞÓRA GUÐBJARTSDÓTTIR
Undurfríð snædrottning klæðist ævintýralega fögrum klæðum
sem glitra og ljóma í myrkrinu, eins og sjá má á tilkomumikilli
kórónu hennar og glæsilegri slá.
Drakúla greifi er ákaflega fölur, með blóðrauðar varir og rauð
augu. Undan efri vör hans glittir í hvítar tennur – eins og sjá
má er Drakúla hryllilegur!
SNIÐ FYRIR SKIKKJU OG TENNUR DRAKÚLA
Nethylur 2, sími: 587-3355 www.rokky.is
Burt´s bees barnalínan er náttúruleg, ofnæmisprófuð og rannsökuð af barnalæknum.
Barnaolía - Mild og nærandi
fyrir húðina. Inniheldur Aloe Vera
Bossakrem - Virkt og gott krem.
Inniheldur A & E vítamín
Kroppakrem - Áhrifaríkt á viðkvæma
og þurra húð ungbarnsins.
Fæst í apótekum
Náttúruleg
umönnun
Icepharm
a