Fréttablaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 2
18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR2
FÓLK Aðsókn og útlán á Amts-
bókasafninu á Akureyri hafa
aukist mikið á síðustu vikum.
Bókasafnið hefur opnað sýningu
um yndislestur og einnig barna-
bókasetur, en amtsbókavörðurinn
segir almenna umræðu um lestur
barna einnig hafa ýtt við fólki.
„Við tókum eftir því að barna-
bókunum í barnadeildinni hjá
okkur fækkaði, þær bara hurfu,“
segir Hólmkell Hreinsson amts-
bókavörður. Hann segir að til
hafi verið aukaeintök af bókum
í geymslu og því hafi verið hægt
að bæta við bókum.
„Þá fórum við að gefa því gaum
að það væri mikið af fólki að
koma með börnin sín.“ Í kjölfarið
hafi starfsfólkið veitt því athygli
að fólk hafi komið til að fá ný
bókasafnsskírteini, margir hafi
framvísað gömlum skírteinum
sem eru ekki lengur í notkun og
margir sögðust ekki hafa komið
á bókasafnið í langan tíma fyrr
en nú.
„Okkur fannst þetta afskap-
lega gleðilegt og ánægjulegt og
rekjum þetta beint til þessarar
umræðu. Það er mjög ánægju-
legt að fólk skuli bregðast við,
það vísar til þess að menn séu
að vakna, segir Hólmkell. Hann
segir umræðu í samfélaginu
og fréttir af dvínandi áhuga og
lestrargetu barna hafa náð til
fólks.
„Og það sem mér finnst ekki
síður mikilvægt er upplifunin af
því ef fólk er farið að lesa fyrir
börnin sín. Það er gott fyrir for-
eldrana og börnin.“
Fyrir hálfum mánuði var opnað
Barnabókasetur á bóka safninu
í samstarfi við Háskólann á
Akureyri og Minjasafnið. Sam-
hliða því var opnuð sýningin
Yndis lestur æsku minnar, þar
sem þekkt fólk var fengið til að
birta hugleiðingar um minnis-
stæða barnabók.
„Í kringum opnunina varð
mikil umræða á Akureyri, sem
kemur í framhaldi af umræðunni
á landsvísu. Ég held að þetta sé
allt að hjálpast að. Það er ekki
bara af því að við gerðum þetta
hér. Fólk sér líka að þarna er
eitthvað sem það getur gert í
málunum, sem er bæði gott og
einstaklega ódýrt.“
thorunn@frettabladid.is
Barnabækur rifnar
úr hillum bókasafns
Fleira fólk leggur leið sína á Amtsbókasafnið á Akureyri en áður. Starfsfólkið
tengir fjölgunina við umræðu um lestur barna. Mjög ánægjulegt að fólk skuli
bregðast við og lesa fyrir börnin, segir Hólmsteinn Hreinsson amtsbókavörður.
BARNABÓKASETRIÐ Líflegt hefur verið um að litast á Barnabókasetrinu, sem hefur
verið opið í tvær vikur í dag. MYND/AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI
Ragnar, hvað búa eiginlega
margir í Mosfellsbæ?
„Nógu margir til að borða tuttugu
þúsund bollur.“
Ragnar Hafliðason er bakari í Mosfells-
bakaríi þar sem mannskapurinn er í óða
önn að baka yfir 20 þúsund bollur fyrir
bolludaginn.
IÐNAÐUR Framkvæmdir hófust í
gær við byggingu nýrra stúdenta-
garða á lóð Háskóla Íslands.
Framkvæmdirnar eru stærstu
bygginga framkvæmdir á Íslandi
frá haustinu 2008, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu.
Páll Hjaltason, formaður skipu-
lagsráðs Reykjavíkur, og Lilja
Dögg Jónsdóttir, fulltrúi stúdenta,
hófu framkvæmdirnar í gær.
Fjögur hús munu rísa á svæðinu,
og í þeim verða 297 íbúðir. Gert
er ráð fyrir því að fyrri áfanga
ljúki í lok júlí á næsta ári en þeim
ljúki í heild í lok ársins 2013.
Kostnaðurinn við verkið verður
um þrír milljarðar. - þeb
Athöfn við Háskóla Íslands:
Hófu byggingu
stúdentagarða
HAFIST HANDA Þau Páll og Lilja Dögg
byrjuðu verkið í gærdag. Áætlað er að
garðarnir rísi á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
DANMÖRK Alls eru 405 einstak-
lingar á lista dönsku ríkislög-
reglunnar yfir fólk sem er
saknað. Lýst er eftir um 1.600
manns á ári hverju.
Þetta kemur fram á Politiken,
en undanfarið hefur staðið yfir
leit um allt land að Jeanett Rask
Thomas, miðaldra konu sem
hvarf á föstudag í síðustu viku.
Umtalsvert fleiri karlar en
konur eru í hópi þeirra sem saknað
er, en karlarnir eru alls 345.
Talsmaður ríkislögreglunnar
segir við Politiken að í sumum til-
fellum sé um að ræða sjálfsmorð,
en afar sjaldgæft sé að fólk flýi
og hefji nýtt líf undir nýju nafni
innan Danmerkur. - þj
Dularfull mannshvörf:
405 er saknað
í Danmörku
SAMGÖNGUR Mikil aukning hefur
orðið á hjólreiðum í Reykja-
vík, samkvæmt nýrri og viða-
mikilli ferðavenjukönnun. 3,8%
aðspurðra fara allra ferða sinna á
reiðhjóli, en aðeins 0,8% svöruðu
á þennan veg árið 2002 þegar
sambærileg könnun var gerð.
Flestar ferðir voru farnar á
reiðhjóli í miðborginni, Vestur-
bæ, Laugardal og Árbæ eða 6-7%.
61% aðspurðra segjast hjóla allt
árið um kring eða hluta úr ári, en
39% aldrei.
Könnunin var unnin af Capa-
cent-Gallup. Í úrtaki voru 10.140
og var svarhlutfall tæplega 35%.
- shá
39% fólks hjólar aldrei:
Mun fleiri nota
hjól eingöngu
Á SELTJARNARNESI Sífellt fleiri hjóla til
vinnu og í tómstundum sínum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
gefið ákæru á hendur þremur
mönnum vegna skotárásar í
Bryggjuhverfinu í nóvember.
Skotið var í gegnum afturrúðu
bíls með afsagaðri haglabyssu
en enginn særðist í árásinni.
Mennirnir hafa setið í gæsluvarð-
haldi vegna málsins. Mennirnir
eru taldir tengjast vélhjólasam-
tökunum Outlaws og ljóst þykir
að árásin tengist uppgjöri vegna
fíkniefnaviðskipta. Ekki var búið
að birta öllum sakborningum
ákæruna síðdegis í gær. - sh
Sitja enn í varðhaldi:
Þrír ákærðir
fyrir skotárás
HEILBRIGÐISMÁL Konur með aðrar
silíkonfyllingar en hina umdeildu
PIP púða leita nú í auknum mæli
til Leitarstöðvar Krabbameins-
félagsins eftir ómskoðun, segir
yfirlæknir á stöðinni.
„Umræðan í samfélaginu hefur
gert þessar konur áhyggju fullar,“
segir Kristján Sigurðsson yfir-
læknir. „Það er mikið álag á
símanum hjá okkur alla daga þar
sem beðið er um tíma í óm skoðun,
þó svo ekki sé um PIP brjósta-
fyllingar að ræða. Og það truflar
starfsemi Leitarstöðvarinnar.“
Kristján sendi öllum læknum
bréf í vikunni þar sem hann benti
á að hægt sé að fá ómskoðun á
fleiri stöðum en á Leitarstöðinni.
Dæmi eru um að læknar skrifi
út beiðni um ómskoðun fyrir
konur með silíkon án þess að
nokkur einkenni séu fyrir hendi
sem bendi til þess að púðar séu
sprungnir.
Alls voru 42 konur með PIP
brjóstafyllingar ómskoðaðar
síðustu tvo daga. Samkvæmt
upplýsingum frá Landlæknis-
embættinu er þó ekki búið að taka
saman nýjustu tölur um lekatíðni,
en þær verða birtar á mánudag.
68 prósent af þeim 105 konum
sem skoðaðar voru á síðustu
tveimur vikum voru með leka
púða. Alls hafa nú 147 konur með
PIP púða verið skoðaðar á Leitar-
stöðinni. - sv
Yfirlæknir Leitarstöðvar segir konur með aðrar silíkonfyllingar en PIP áhyggjufullar:
Trufla starfsemi Leitarstöðvar
NÝJA-SJÁLAND Dómstóll á Nýja-Sjá-
landi hefur komist að þeirri niður-
stöðu að kínverskum fjárfestum
sé óheimilt að kaupa þarlendar
bújarðir í stórum stíl.
Kínverska félagið Shanghai
Pangxin stefndi að því að festa
kaup á sextán slíkum jörðum
á átta þúsund hektara svæði á
norðureyju Nýja-Sjálands. Þar
sem um var að ræða meira en
fimm hektara lands sem metið
var á meira en sem nemur tíu
milljörðum króna þörfnuðust við-
skiptin samþykkis frá Skrifstofu
um erlendar fjárfestingar.
Samþykkið var veitt með þeim
rökum að fjárfestingin myndi skila
sér út í hagkerfið með bættum
afköstum býlanna.
Nýsjálensk bændasamtök höfðu
mótmælt sölunni og boðist til að
kaupa bújarðirnar sjálf.
Nú hefur dómstóll úrskurðað
kaup Kínverjanna ólögmæt,
meðal annars á grundvelli þess að
í félaginu væri ekki næg þekking
á mjólkuriðnaði, sem væri for-
senda fyrir samþykki erlendrar
fjárfestingar í geiranum. Þá taldi
dómarinn enn fremur að býlin á
jörðunum væru svo illa stödd að
litlu skipti hver keypti þau – sam-
félagslegur ávinningur af slíkum
viðskiptum yrði alltaf mikill.
Talsmaður Shanghai Pangxin
sagðist þrátt fyrir dóminn
bjartsýnn á að af sölunni yrði. - sh
Kínverskir fjárfestar ætluðu að kaupa sextán bújarðir í Nýja-Sjálandi:
Jarðakaup Kínverja dæmd ólögmæt
NÝJA-SJÁLAND Það er víðar en á Íslandi sem deilt er um landakaup kínverskra fjár-
festa.
SJÁVARÚTVEGUR Hafrannsóknar-
stofnun ákvað í gær að auka
loðnukvóta ársins um tæp 38
þúsund tonn. Verður kvóti ársins
því um 591 þúsund tonn í stað 553
þúsund tonna eins og gert hafði
verið ráð fyrir.
Kemur aukningin til þar sem
kvóti, sem úthlutaður hafði verið
erlendum skipum, hefur ekki
verið nýttur. Rennur hann því í
staðinn til íslenskra skipa.
Samkvæmt yfirliti Fiskistofu
er rúmur helmingur kvótans
þegar kominn á land eða um 307
þúsund tonn. - mþl
Leyfilegt að veiða meiri loðnu:
Kvótinn aukinn
um 38.000 tonn
SPURNING DAGSINS
Aðalfundur Félags Leiðsögumanna verður haldinn
mánudaginn 27. Febrúar kl. 20:00 á Kaffi Reykjavík
Dagskrá:
1. Skýrsla félagsstjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári
2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu
3. Tillögur um lagabreytingar
4. Drög að fjárhagsáætlun lögð fram og tillaga um stéttarfélagsgjald
og fagfélagsgjald
5. Kosning formanns eða lýsing formannskjörs
6. Kosning til stjórnar, varastjórnar og trúnaðarráðs, sem og í aðrar nefndir
(ritnefnd, skólanefnd, fræðslunefnd og kjaranefnd) og trúnaðarstöður.
7. Kosning eins félagskjörins skoðunarmanns reikninga og varamanns til
tveggja ára.
8. Önnur mál.
Stjórn Félags Leiðsögumanna
konur með PIP
brjóstapúða
hafa nú verið
skoðaðar af þeim 393 sem
fengu boð um ósmskoðun
frá velferðarráðuneytinu.
147
Við tókum eftir því
að barnabókunum
í barnadeildinni hjá okkur
fækkaði, þær bara hurfu.
HÓLMKELL HREINSSON
AMTSBÓKAVÖRÐUR