Fréttablaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 100
18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR68
Drew Barrymore segir mikilvægt að eltast við
draumana sína vegna þess að hlutirnir detti aldrei í
fangið á manni sjálfkrafa.
„Ég er stelpa sem vil láta draumana rætast. Lífið
er of stutt til að missa af einhverju. Hlutirnir ger-
ast ekki sjálfkrafa,“ sagði hin 36 ára leikkona.
Barrymore er trúlofuð Will Kopelman
en þau hafa verið saman í um eitt ár. Hún
viðurkennir að eiga erfitt með að finna jafn-
vægi á milli leiklistarinnar og einka lífsins.
„Það er mikil áskorun en margir aðrir
glíma við sama vandamál.“
Hún segist í viðtal við Belfast Telegraph
vera virkilega hamingjusöm og er alveg
sátt við að fara ekki eins mikið út á lífið
og áður. „Ég samgleðst þeim sem dansa og
skemmta sér. En í dag held ég að fólk vilji
frekar vera á Facebook en að fara á skemmti-
staði.“
Eltist við draumana
„Okkur langar til að kynna fólk
fyrir þessari fallegu menningu
og gefa smá sól í líkamann í öllu
þessu myrkri hérna,“ segir Kristín
Bergsdóttir, sem stendur fyrir
karnival hátíð á skemmtistaðnum
Faktorý á laugardagskvöld, ásamt
eiginmanni sínum Samúel Jóni
Sæmundssyni.
Þau hjónin fluttu til Rio de
Janeiro í Brasilíu í þrjá mánuði árið
2010 til að kynna sér betur samba
tónlist. „Mig hefur alltaf dreymt
um að fara út, svo við slógum
bara til. Við vorum svo heppin að
vera þarna þegar karnival hátíðin
stóð yfir og var sú upplifun alveg
ógleymanleg,“ segir Kristín.
Hún líkir hátíðinni við hinn
íslenska öskudag þar sem allir
klæði sig upp í búninga, en hún
standi þó yfir í fleiri daga. „Há-
tíðin byrjar á því að borgarstjóri
Rio afhendir fígúrunni Bóbó, sem
er leikinn af feitlögnum manni,
lyklana að borginni. Fólkið á svo
borgina í viku og hún er algjörlega
undirlögð tónlist.“ segir Kristín.
Þetta er í annað skipti sem
þau standa fyrir þessum karni-
val fögnuði hér á Íslandi, en þau
gerðu það í fyrra líka við frábærar
undirtektir þar sem fólk dansaði
stanslaust langt fram á nótt.
Kristín segir mikið lagt í
kvöldið. Þau hjón munu sjá um tón-
listina, ásamt hljómsveitum sínum,
staðurinn verður vel skreyttur og
hægt verður að fá hinn vinsæla
brasilíska drykk Caipirinha á
barnum. „Svo er bara að láta sjá
sig og hafa gaman,“ segir Kristín
hress í bragði. - trs
Alvöru karnival
stemning á Faktorý
SÓL Í LÍKAMANN Kristín og Samúel,
eiginmaður hennar, standa fyrir karnival
fögnuði í anda hátíðarinnar í Brasilíu á
Faktorý á laugardagskvöld.
Kletthálsi 3
110 Reykjavík
sími 540 4900
www.yamaha.is
Farðu lengra!
Verð kr. 2.480.000,-
eða 33.900 á mánuði*
* Fjármögnun miðast við 868 þús. króna útborgun
og greiðslur í 60 mánuði
Afgreiðslutími er tvær vikur.
FX Nytro X-TX er hrein bylting!
Þriggja strokka fjórgengisvélin skilar 130 hestöflum án áreynslu,
en er um leið einstaklega sparneytin. Þessi frábæri sleði er nú
fáanlegur tímabundið á einstöku vetrartilboði - með 150
þúsund króna afslætti auk þess sem sleðinn kemur á grófara
belti (15x144x1,75) að andvirði 200 þúsund.
VETRARTILBOÐ Á FXNYTRO X-TX
Talið er að söngvarinn Chris Brown, fyrrverandi kærasti
Rihönnu, komi fram í myndbandi hennar á næstunni.
Það væri eðlilegt ef Brown hefði ekki gengið illa í
skrokk á henni fyrir þremur árum.
ER ÞAÐ BROWN?
Gæti verið að parið fyrrverandi væri
að gefa út lag saman, aðeins þremur
árum eftir líkamsárásina umtöluðu?
RIHANNA TEKUR LAGIÐ
MEÐ KVALARA SÍNUM
Annar af upptökustjórum nýs
lags Rihönnu, Birthday Cake,
hefur látið hafa eftir sér að fljót-
lega verði gefið út myndband
með laginu með mjög umdeildum
og óvæntum breytingum. Upp-
lýsingar hafa lekið út um að þessi
breyting sé sú að fyrr verandi
kærasti söngkonunnar, og einn
umdeildasti maður heims um
þessar mundir, Chris Brown komi
til með að syngja lagið með henni
en sögusagnir af endurupptöku
sambands þeirra hafa tröllriðið
öllu að undanförnu.
Flestir muna eflaust eftir
dramatískum endi tæplega árs
langs sambands þeirra. Það var
að morgni 8. febrúar 2009 þegar
parið var í bifreið Browns á leið
heim úr fyrirpartýi Clives Davis
fyrir Grammy-verðlaunahátíðina
sem fór fram viku síðar. Brown
stöðvaði bílinn utan vegar þegar
rifrildi blossaði upp milli parsins
vegna SMS-skeyta sem hann hafði
þá fengið frá annarri konu og báru
með sér að hann ætti í framhjá-
haldi. Þar beitti hann söngkonuna
grófu líkamlegu ofbeldi, hótaði
henni lífláti, hélt um háls hennar
þar til hún missti meðvitund og
skildi hana svo eftir. Þegar lög-
reglu bar að garði var Brown
horfinn á braut og Rihanna svo illa
farin að færa þurfti hana á spítala,
með bólgur í andliti, sprungna vör,
blóðnasir og hún var mikið marin.
Þar að auki var hún með bitför á
öllum líkamanum, þó aðallega á
höndum og fingrum.
Rihanna lagði fram kæru á
hendur Brown sem var fundinn
sekur um líkamsárás og í kjöl-
farið var sett á hann nálgunar-
bann. Í júlí það sama ár gaf
hann út myndband á netinu
þar sem hann sagðist sjá eftir
gerðum sínum og bað Rihönnu
og alla aðdáendur sína af-
sökunar á hegðun sinni.
Í lok árs 2010 óskaði
söngvarinn eftir því
að nálgunarbanninu
yrði aflétt og þar sem
Rihanna mótmælti því
ekki varð honum að ósk
sinni þann 22. febrúar
2011.
Margir vilja meina
að sambandið hafi
hafist að nýju strax þá,
þó Brown hafi verið
í sambandi síðustu
mánuði. Það er þó
gr eini legt að eitthvað
er í gangi á milli
þessara tveggja. Nú
er bara að bíða og
sjá hvort mynd-
bandið komi til
með að ljóstra
upp um hvað
það sé. tinna-
ros@frettabla-
did.is