Fréttablaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 18
18 18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR
Straumhvörf
í stéttabaráttu
Nú hafa Hagsmunasamtök heimilanna (HH) talað fyrir
réttlætiskröfum um almennar
leiðréttingar á höfuðstól lána
og afnám verðtryggingar í rúm
þrjú ár. Þó að stjórnvöld hafi ekki
enn orðið við meginkröfum sam-
takanna njóta þær fylgis 80%
þjóðarinnar samkvæmt skoðana-
könnunum. Þá hafa um 37.500
undirskriftir safnast kröfunum
til stuðnings og ætla samtökin að
afhenda þær forseta Íslands, sem
er samkvæmt stjórnarskránni
hluti af stjórnvöldum landsins.
ASÍ fulltrúi atvinnurekenda
eða launþega?
Barátta HH hefur snúist um
kjara baráttu sem verka lýðs-
hreyfingin hefur ekki viljað taka
þátt í, nema með örfáum undan-
tekningum. Sjálf sagt hefðu sam-
tökin aldrei orðið til ef for seti ASÍ
hefði ekki lagst gegn frystingu
vísi tölunnar haustið 2008. For seti
ASÍ er ekki kjörinn í alls herjar-
kosningu heldur hafa fulltrúar,
h a ndgeng n i r for yst u n n i ,
at kvæðis rétt. Þá hefur ASÍ lagst
gegn því að stjórnir líf eyris-
sjóða verði kosnar beint af sjóðs-
félögum. Eins hefur ASÍ viljað
halda full trúum Sam taka at vinnu-
rekenda í stjórnum sjóðanna.
Afstaða ASÍ er óskiljan leg.
Þangað til við komum að þver-
sögn verka lýðs hreyfingarinnar.
Herdís Dröfn Baldvins dóttir
hefur gert doktors verkefni
um tengsl og sam gróna inn-
viði íslenska fjár mála geirans
og verka lýðs sam taka. Hún vill
meina að fjár mála leg og raun-
veru lega pólitísk völd hafi færst
í ríkari mæli í hendur ASÍ og VSÍ
og sam eigin lega hafa þessi sam-
tök verið ríkjandi í hag stjórn
Íslands síðast liðinn ára tug. Aðal-
leiðtogar ASÍ hafa myndað náin
fjárhagsleg tengsl við fulltrúa
atvinnurekanda innan stjórna
almenna lífeyrissjóðskerfisins
og ýmissa einkafyrirtækja. Sú
þversögn virðist hafa myndast að
ASÍ sé orðið mun sterkara félag
fyrir atvinnurekendur en fyrir
félagsmenn sína.
Straumhvörf í kjarabaráttu?
Ingólfur H. Ingólfsson félags-
fræðingur hefur skrifað um
hvernig hinn almenni launa-
maður skuldar nú lánardrottni
sínum að meðaltali tvöfaldar til
þrefaldar árstekjur sínar og að
vaxtakjör séu farin að skipta
meira eða jafnmiklu máli og
launakjör. Hann vakti athygli á
því að það þyrfti stéttarsamtök
skuldara rétt eins og stéttar sam-
tök launþega. HH eru vísir að
„stéttarsamtökum skuldara“ þó
þau hafi ekki enn haft aðkomu
að kjaraviðræðum, aðra en þá
að skrifa forystu ASÍ og verka-
lýðsfélaganna hvatningu í síðustu
kjaraviðræðum sem gekk út
á það að huga að lána kjörum,
almennum leiðréttingum og
afnámi verðtryggingar – en við
litlar undirtektir.
Stjórn HH hefur hug á að
bjóða verkalýðsfélögum að
ganga til liðs við HH og mynda
saman ný regn hlífar samtök
verka lýðs félaga sem ekki
myndu skilja lánakjör útundan
í baráttunni fyrir bættum hag
félagsmanna. Þak yfir höfuðið
er vissulega einn mikilvægasti
þáttur í lífi hvers manns og telst
til mannréttinda og því ekki úr
vegi að leggja mikla áherslu
á að það fáist á viðráðanlegu
verði – en ekki þeim okurlánum
sem hér hafa tíðkast. Stjórn HH
ætlar sér að leggja könnun fyrir
félagsmenn þar sem m.a. verður
spurt út í afstöðu félagsmanna
til framtíðar samtakanna. Um
leið og félagsmenn eru hvattir til
að taka þátt í könnuninni segjum
við umræðuna um stétta- og
kjarabaráttu 21. aldarinnar
hafna.
Fjármál
Andrea J.
Ólafsdóttir
formaður H
Friðrik Óttar
Friðriksson
fv. formaður HH
Þórður Björn
Sigurðsson
fv. formaður HH
AF NETINU
Brengluð sýn dómara
Þrír dómarar við Hæstarétt
virðast mér hafa kynferðis-
brenglaða sýn. Telja frambæri-
legt, að starfskona sé látin fara
í vinnuferð í sumarbústað, þar
sem yfirmaður hennar hleypur
um allsber og hegðar sér óviður-
kvæmilega á ýmsan hátt. Þegar
Hæstiréttur úrskurðar í svona
máli, hafa dómarar ekki annað á
bak við sig en persónulegt mat
á aðstæðum. Engin lög segja,
að fólk þurfi að þola þessa
tilgreindu hegðun yfirmanna
sinna. Mér finnst dómararnir
Helgi I. Jónsson, Benedikt
Bogason og Gréta Baldursdóttir
sýna brenglaða dómgreind í
úrskurði sínum. Þarna var um
að ræða skýrt kynferðislegt áreiti
yfirmanns.
http://jonas.is/
Jónas Kristjánsson
Laugardagur til lista
Í dag, kl. 13.30 heldur Guðni Tómasson listsagnfræðingur fyrir-
lestur í ráðstefnusal Arion banka, Borgartúni 19. Fyrirlesturinn
ber heitið Óróleikinn nær til Íslands. Guðni mun fjalla um
umbrot í þjóðlífi og myndlist um miðja 20. öld.
Sýnd verða verk úr safneign Arion banka.
Laugardagur til lista. Allir velkomnir.
FRÓÐLEIKUR Á FIMMTUDÖGUM
Vaxtadómur
Hæstaréttar
23. febrúar | kl. 8:30 | Borgartúni 27
Sérfræðingar KPMG munu fara yfir dóminn og
þau álitaefni sem vakna í kjölfar hans bæði hjá
einstaklingum og fyrirtækjum. Kynnt verða
áhrif af endurútreikningi lána í samræmi við
dómsniðurstöðuna.
Nýlegir dómar héraðsdóms um
skattatengd efni verða einnig kynntir.
Skráning og nánari
upplýsingar á kpmg.is
alla sunnudaga klukkan 16. Njótið vel
Hemmi Gunn
– og svaraðu nú!
Fjölbreyttur og fjörugur þáttur