Fréttablaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 40
18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR40 L INsanity, LINderella, Super-LINtendo, The Towering LINferno, Mr. LINcredible, All-LIN. Listinn yfir hnyttnar samsetningar sem not- aðar hafa verið til að lýsa Jeremy Lin, leikmanni New York Knicks í NBA-körfuknattleiksdeildinni bandarísku, er nánast óendanlegur. Að æði skapist í kringum tiltekna leikmenn í íþróttinni eru engin nýmæli en hamagangurinn í kring- um Lin er sérstakur á margan hátt. Fyrir einungis tveimur vikum var hann flestum ókunnur en er nú for- síðuefni víðast hvar á byggðu bóli. Ástæðan er fyrst og fremst hreint ótrúleg spilamennska í fyrstu leikj- um hans sem byrjunarliðsmaður í NBA, en það er ótal margt fleira í fari og sögu Jeremy Lin sem hefur heillað heimsbyggðina. Hógvær hagfræðingur Fyrir það fyrsta er Lin Bandaríkja- maður af taívönskum uppruna (for- eldrar hans fluttu til Bandaríkjanna frá Taívan á áttunda áratugnum), sá fyrsti til að spila í NBA-deild- inni, og höfðar þannig mjög til risa- vaxins hóps sem kann vel að meta nýbreytnina. Sem dæmi um tak- markaðar vinsældir körfuknattleiks í asískum samfélögum, að minnsta kosti lengi framan af, var Lin stöðv- aður af miðasölumanni þegar hann sótti fyrsta körfuboltaleikinn sinn í San Francisco, nærri heimaborg- inni Palo Alto í Kaliforníufylki, og sagt að hann væri líklega að rugl- ast. Það kvöldið væri ekkert blak á dagskrá heldur bara körfubolti. Aðeins fjórir bandarískir leikmenn af asísku bergi brotnir hafa leik- ið í þessari vinsælu deild og slíkir brautryðjendur hafa alltaf ákveðinn sjarma, svo ekki sé minnst á þegar menn ryðjast fram á sjónarsviðið með slíkum bægslagangi. Sjálfur þykir Lin þó með hógvær- ari mönnum, eins og margsinnis hefur sýnt sig á blaðamannafund- um síðustu tvær vikurnar. Hann víkur sér fimlega undan tíðum spurningum um sjálfan sig og frammistöðu sína og kýs heldur að beina athyglinni að liðsheildinni og hæfileikum þjálfarans Mike D‘Ant- oni. Raunar segist Lin lítil umráð hafa yfir því hvert ferill hans stefn- ir: slíkt sé í höndum sjálfs guðs almáttugs. Slíkir skapgerðareigin- leikar hljóta að hafa verið Lin ómet- anlegir þegar hvorki gekk né rak í boltanum í upphafi NBA-ferilsins, sé miðað við sýnilega hæfileika og metnað leikmannsins. Þá er ótalin sú staðreynd að Lin er útskrifaður hagfræðingur frá Harvard, skóla sem hefur í gegnum tíðina verið þekktur fyrir allt annað en afrek á íþróttasviðinu. Harvard hefur reyndar getið af sér tvöfalt fleiri Bandaríkjaforseta (átta) en NBA-leikmenn (fjóra), sem gerir uppgang þessa 23 ára leikmanns enn merkilegri. Í íþróttafræðunum er talað um olnbogabörn, ólíklega lítilmagna, og Lin passar eins og flís við rass við lýsinguna. Milli skips og bryggju Ástæða þess að enginn kveikti fyrir alvöru á möguleikunum sem búa í Jeremy Lin fyrr en fyrir tveimur vikum er af mörgum talin ofan- nefnd staðreynd: dvöl hans í einum af fremstu háskólum Bandaríkj- anna. Í skotheldu skoðunarkerfi þar sem litið er á nánast alla efnilega leikmenn, hvar sem er í heiminum, er í raun ótrúlegt að Lin hafi fall- ið milli skips og bryggju í sjálfum Bandaríkjunum. Aðrir hafa velt upp þeim möguleika að staðalímyndin sem gerir sjálfkrafa ráð fyrir að Asíumenn sér lélegir körfubolta- menn hafi haft sitt að segja. Í öllu falli dugði góð frammistaða Lin með háskólaliði Harvard honum skammt þegar kom að nýliðavalinu árið 2010, en þar vildi ekkert NBA- lið velja Lin. Óvalinn komst hann þó að hjá liðinu sem hann studdi sem ungur drengur, Golden State Warriors, fékk lítið að spila þrátt fyrir góðan stuðning frá áhorfend- um af asískum uppruna, og var að lokum látinn fara í byrjun desember síðastliðins. Við tók örstutt dvöl hjá Houston Rockets áður en New York Knicks tók við honum rétt eftir jól, en þar var Lin hugsaður sem fjórði valkostur í bakvarðarstöðuna. Ballið byrjar gegn Nets Um miðjan janúar lét Knicks Lin spila einn leik í varadeildinni (D- League), þar sem hann lék vel og var kallaður aftur í aðalliðið. Þó voru forráðamenn liðsins komnir á fremsta hlunn með að losa sig við bakvörðinn, en vegna slakrar spila- mennsku og meiðsla annarra leik- manna fékk Lin tækifæri og kom inn á af bekknum í leik gegn New Jersey Nets þann 4. febrúar. Í þeim leik byrjaði ballið og Lin fór á kost- um, skoraði 25 stig og gaf sjö stoð- sendingar í 99-92 sigri Knicks. Tveimur dögum síðar lék Lin sinn fyrsta leik í byrjunarliði í NBA gegn Utah Jazz, skoraði 28 stig og gaf átta stoðsendingar og áhorf- endur ætluðu vart að trúa því sem þeir sáu. Dagarnir síðan hafa verið samfelld sigurganga fyrir Lin og Knicks, sem hafði unnið sjö leiki í röð fram að viðureigninni við New Orleans Hornets í nótt og kveikt elda í hjörtum aðdáenda liðsins á ný eftir ansi mörg mögur vonbrigðaár. Þetta hefur reynst mögulegt þrátt fyrir að helstu stjörnur liðsins hing- að til, Carmelo Anthony og Amar‘e Stoudemire hafi ekki leikið með liðinu framan af. Meðal hápunkta á þessari ótrúlegu sigurgöngu eru glæsilegur sigur gegn Los Angeles Lakers, þar sem Lin skoraði 38 stig, fjórum fleiri en stórstjarnan Kobe Bryant, og þriggja stiga sigurkarfa á síðustu sekúndu leiks gegn Minne- sota Timberwolves. Lin er fyrsti NBA-leikmaður- inn sem skorar yfir tuttugu stig og gefur í minnsta lagi sjö stoðsend- ingar í fyrstu fjórum leikjum sínum sem byrjunarliðsmaður. Frá árinu 1985 höfðu aðeins fjórtán leikmenn náð að minnsta kosti tuttugu stigum, sjö stoðsendingum og stolnum bolta í sex leikjum í röð. Jeremy Lin hefur nú bæst í þennan hóp, sem telur meðal annarra þá Magic Johnson, Michael Jordan, LeBron James og Chris Paul. Lin fetar því ekki í fót- spor neinna smámenna þessa dag- ana. Fregnir herma að hann hafi nú fest kaup á íbúð í stóra eplinu, en fyrir tveimur vikum var hann svo óviss um framtíð sína að hann gisti á sófanum hjá bróður sínum. Heppni eða ekki? Slíkum Öskubuskusögum fylgja óhjákvæmilega efasemdir ýmissa. Buzz Bissinger hjá veftímaritinu The Daily Beast segir eina helstu ástæðu Lin-æðisins þá að hann sé leikmaður Knicks, „þess ömur- lega liðs sem mistekst allt sem það reynir. Hvaða óþekkti leikmaður sem er, sem á nokkra góða leiki í röð og virðist virkilega njóta þess að spila körfubolta, verður ýktur og auglýstur fram yfir öll skynsemis- mörk,“ segir Bissinger og bætir við að slíkt æði hefði aldrei orðið ef um væri að ræða svartan leikmann en ekki af asísku bergi brotinn. Tölfræðingurinn og rithöfundur- inn Nate Silver bendir á hinn bóginn á að árangur Lin geti hreinlega ekki verið tilviljun. „Körfubolti byggir mun minna á heppni en til dæmis hafnabolti, sérstaklega hjá bak- verði sem er svo mikið með boltann í hverjum leik. Miðlungs bakvörð- ur gæti hugsanlega náð einni slíkri leikjaröð á ferlinum, en mun lík- legra er að hún beri vitni um gæði stjörnuleikmanns.“ Í öllu falli er ljóst að Jeremy Lin hefur vakið meiri athygli en flestir aðrir leikmenn síðustu ár og jafnvel áratugi í íþróttaheiminum. LINdælis Öskubuskuævintýri Um fátt er meira rætt í íþróttaheiminum þessa dagana en ótrúlegan uppgang Jeremy Lin, leikmanns New York Knicks í NBA, sem var öllum ókunnur fyrir tveimur vikum. Kjartan Guðmundsson leit yfir sögu bakvarðarins sem heillað hefur heimsbyggðina. HLEGIÐ AÐ MÓTHERJUNUM Kobe Bryant og félagar í LA Lakers reyna af veikum mætti að stöðva Jeremy Lin í leik liðanna á föstudaginn fyrir viku, þar sem bakvörðurinn fór á kostum, skoraði 38 stig og gaf sjö stoðsendingar. NORDICPHOTOS/GETTY GAMAN AÐ FYLGJAST MEÐ KNICKS Davíð Óskar Ólafsson framleiðandi var áhorfandi á leik New York Knicks gegn New Jersey Nets í byrjun mánaðarins, þegar Jeremy Lin kom af bekknum og gerði 28 stig. „Þetta var fyrsti sigurleikur Knicks í langan tíma. Ég vissi ekkert hver Jeremy Lin var en salurinn trylltist þegar hann fór að setja öll þessi skot niður. Jeremy Lin-æðið fór af stað þennan dag og það var yndisleg stemning á leiknum,“ segir Davíð og bætir við að Lin hafi alla burði til að ná mjög langt í íþróttinni. „Ég sá vel að hann er góður að lesa leikinn, góður skotmaður og snöggur. Núna fær hann að spila meira og verður pottþétt mjög góður.“ Sömu helgi bar New York Giants sigurorð af New England Patriots í Super- bowl-leiknum og því góð stemning í borginni. „Ætli ég hafi ekki komið með góða strauma með mér frá Íslandi,“ segir Davíð. Varð vitni að upphafi æðisins „Það er sérstaklega gaman að vera Knicks-aðdáandi þessa dagana og New York-hjartað mitt er óvenju stórt,“ segir Hanna Eiríksdóttir, verkefnastýra UNIFEM, sem hefur fylgst vel með sigurgöngu liðsins síðustu vikur. Hanna segir oft reyna á að vera stuðningsmaður Knicks, en liðið hefur átt litlu gengi að fagna síðustu ár. „Í raun lifi ég enn á sumrinu 1999 þegar við vorum neðsta liðið inn í úrslitakeppnina en komumst samt í úrslitaleikinn, þar sem við skíttöpuð- um reyndar fyrir San Antonio. Patrick Ewing meiddist en Allan Houston, Latrell Sprewell og Marcus Camby drógu vagninn. það var stórkostlegt ferðalag. Þess vegna ætla ég að njóta þessarar sigurgöngu meðan hún endist.“ Hanna bjó lengi í Flórída og sótti leiki með Knicks þegar liðið heimsótti Orlando. „Ég hef aldrei farið á leik í Madison Square Garden en það er á listanum mínum. Mig dreymir um að vera þar á góðum leik, í góðum sætum og helst við hliðina á Spike Lee,“ segir Hanna. Nýt þess meðan það endist
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.