Fréttablaðið - 18.02.2012, Qupperneq 40
18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR40
L
INsanity, LINderella,
Super-LINtendo, The
Towering LINferno, Mr.
LINcredible, All-LIN.
Listinn yfir hnyttnar
samsetningar sem not-
aðar hafa verið til að lýsa Jeremy
Lin, leikmanni New York Knicks
í NBA-körfuknattleiksdeildinni
bandarísku, er nánast óendanlegur.
Að æði skapist í kringum tiltekna
leikmenn í íþróttinni eru engin
nýmæli en hamagangurinn í kring-
um Lin er sérstakur á margan hátt.
Fyrir einungis tveimur vikum var
hann flestum ókunnur en er nú for-
síðuefni víðast hvar á byggðu bóli.
Ástæðan er fyrst og fremst hreint
ótrúleg spilamennska í fyrstu leikj-
um hans sem byrjunarliðsmaður í
NBA, en það er ótal margt fleira í
fari og sögu Jeremy Lin sem hefur
heillað heimsbyggðina.
Hógvær hagfræðingur
Fyrir það fyrsta er Lin Bandaríkja-
maður af taívönskum uppruna (for-
eldrar hans fluttu til Bandaríkjanna
frá Taívan á áttunda áratugnum),
sá fyrsti til að spila í NBA-deild-
inni, og höfðar þannig mjög til risa-
vaxins hóps sem kann vel að meta
nýbreytnina. Sem dæmi um tak-
markaðar vinsældir körfuknattleiks
í asískum samfélögum, að minnsta
kosti lengi framan af, var Lin stöðv-
aður af miðasölumanni þegar hann
sótti fyrsta körfuboltaleikinn sinn
í San Francisco, nærri heimaborg-
inni Palo Alto í Kaliforníufylki, og
sagt að hann væri líklega að rugl-
ast. Það kvöldið væri ekkert blak
á dagskrá heldur bara körfubolti.
Aðeins fjórir bandarískir leikmenn
af asísku bergi brotnir hafa leik-
ið í þessari vinsælu deild og slíkir
brautryðjendur hafa alltaf ákveðinn
sjarma, svo ekki sé minnst á þegar
menn ryðjast fram á sjónarsviðið
með slíkum bægslagangi.
Sjálfur þykir Lin þó með hógvær-
ari mönnum, eins og margsinnis
hefur sýnt sig á blaðamannafund-
um síðustu tvær vikurnar. Hann
víkur sér fimlega undan tíðum
spurningum um sjálfan sig og
frammistöðu sína og kýs heldur að
beina athyglinni að liðsheildinni og
hæfileikum þjálfarans Mike D‘Ant-
oni. Raunar segist Lin lítil umráð
hafa yfir því hvert ferill hans stefn-
ir: slíkt sé í höndum sjálfs guðs
almáttugs. Slíkir skapgerðareigin-
leikar hljóta að hafa verið Lin ómet-
anlegir þegar hvorki gekk né rak í
boltanum í upphafi NBA-ferilsins,
sé miðað við sýnilega hæfileika og
metnað leikmannsins.
Þá er ótalin sú staðreynd að Lin
er útskrifaður hagfræðingur frá
Harvard, skóla sem hefur í gegnum
tíðina verið þekktur fyrir allt annað
en afrek á íþróttasviðinu. Harvard
hefur reyndar getið af sér tvöfalt
fleiri Bandaríkjaforseta (átta) en
NBA-leikmenn (fjóra), sem gerir
uppgang þessa 23 ára leikmanns
enn merkilegri. Í íþróttafræðunum
er talað um olnbogabörn, ólíklega
lítilmagna, og Lin passar eins og
flís við rass við lýsinguna.
Milli skips og bryggju
Ástæða þess að enginn kveikti fyrir
alvöru á möguleikunum sem búa í
Jeremy Lin fyrr en fyrir tveimur
vikum er af mörgum talin ofan-
nefnd staðreynd: dvöl hans í einum
af fremstu háskólum Bandaríkj-
anna. Í skotheldu skoðunarkerfi þar
sem litið er á nánast alla efnilega
leikmenn, hvar sem er í heiminum,
er í raun ótrúlegt að Lin hafi fall-
ið milli skips og bryggju í sjálfum
Bandaríkjunum. Aðrir hafa velt upp
þeim möguleika að staðalímyndin
sem gerir sjálfkrafa ráð fyrir að
Asíumenn sér lélegir körfubolta-
menn hafi haft sitt að segja.
Í öllu falli dugði góð frammistaða
Lin með háskólaliði Harvard honum
skammt þegar kom að nýliðavalinu
árið 2010, en þar vildi ekkert NBA-
lið velja Lin. Óvalinn komst hann
þó að hjá liðinu sem hann studdi
sem ungur drengur, Golden State
Warriors, fékk lítið að spila þrátt
fyrir góðan stuðning frá áhorfend-
um af asískum uppruna, og var að
lokum látinn fara í byrjun desember
síðastliðins. Við tók örstutt dvöl hjá
Houston Rockets áður en New York
Knicks tók við honum rétt eftir jól,
en þar var Lin hugsaður sem fjórði
valkostur í bakvarðarstöðuna.
Ballið byrjar gegn Nets
Um miðjan janúar lét Knicks Lin
spila einn leik í varadeildinni (D-
League), þar sem hann lék vel og
var kallaður aftur í aðalliðið. Þó
voru forráðamenn liðsins komnir á
fremsta hlunn með að losa sig við
bakvörðinn, en vegna slakrar spila-
mennsku og meiðsla annarra leik-
manna fékk Lin tækifæri og kom
inn á af bekknum í leik gegn New
Jersey Nets þann 4. febrúar. Í þeim
leik byrjaði ballið og Lin fór á kost-
um, skoraði 25 stig og gaf sjö stoð-
sendingar í 99-92 sigri Knicks.
Tveimur dögum síðar lék Lin
sinn fyrsta leik í byrjunarliði í NBA
gegn Utah Jazz, skoraði 28 stig og
gaf átta stoðsendingar og áhorf-
endur ætluðu vart að trúa því sem
þeir sáu. Dagarnir síðan hafa verið
samfelld sigurganga fyrir Lin og
Knicks, sem hafði unnið sjö leiki í
röð fram að viðureigninni við New
Orleans Hornets í nótt og kveikt
elda í hjörtum aðdáenda liðsins á ný
eftir ansi mörg mögur vonbrigðaár.
Þetta hefur reynst mögulegt þrátt
fyrir að helstu stjörnur liðsins hing-
að til, Carmelo Anthony og Amar‘e
Stoudemire hafi ekki leikið með
liðinu framan af. Meðal hápunkta
á þessari ótrúlegu sigurgöngu eru
glæsilegur sigur gegn Los Angeles
Lakers, þar sem Lin skoraði 38 stig,
fjórum fleiri en stórstjarnan Kobe
Bryant, og þriggja stiga sigurkarfa
á síðustu sekúndu leiks gegn Minne-
sota Timberwolves.
Lin er fyrsti NBA-leikmaður-
inn sem skorar yfir tuttugu stig og
gefur í minnsta lagi sjö stoðsend-
ingar í fyrstu fjórum leikjum sínum
sem byrjunarliðsmaður. Frá árinu
1985 höfðu aðeins fjórtán leikmenn
náð að minnsta kosti tuttugu stigum,
sjö stoðsendingum og stolnum bolta
í sex leikjum í röð. Jeremy Lin hefur
nú bæst í þennan hóp, sem telur
meðal annarra þá Magic Johnson,
Michael Jordan, LeBron James og
Chris Paul. Lin fetar því ekki í fót-
spor neinna smámenna þessa dag-
ana. Fregnir herma að hann hafi nú
fest kaup á íbúð í stóra eplinu, en
fyrir tveimur vikum var hann svo
óviss um framtíð sína að hann gisti
á sófanum hjá bróður sínum.
Heppni eða ekki?
Slíkum Öskubuskusögum fylgja
óhjákvæmilega efasemdir ýmissa.
Buzz Bissinger hjá veftímaritinu
The Daily Beast segir eina helstu
ástæðu Lin-æðisins þá að hann sé
leikmaður Knicks, „þess ömur-
lega liðs sem mistekst allt sem það
reynir. Hvaða óþekkti leikmaður
sem er, sem á nokkra góða leiki í
röð og virðist virkilega njóta þess
að spila körfubolta, verður ýktur og
auglýstur fram yfir öll skynsemis-
mörk,“ segir Bissinger og bætir við
að slíkt æði hefði aldrei orðið ef um
væri að ræða svartan leikmann en
ekki af asísku bergi brotinn.
Tölfræðingurinn og rithöfundur-
inn Nate Silver bendir á hinn bóginn
á að árangur Lin geti hreinlega ekki
verið tilviljun. „Körfubolti byggir
mun minna á heppni en til dæmis
hafnabolti, sérstaklega hjá bak-
verði sem er svo mikið með boltann
í hverjum leik. Miðlungs bakvörð-
ur gæti hugsanlega náð einni slíkri
leikjaröð á ferlinum, en mun lík-
legra er að hún beri vitni um gæði
stjörnuleikmanns.“
Í öllu falli er ljóst að Jeremy Lin
hefur vakið meiri athygli en flestir
aðrir leikmenn síðustu ár og jafnvel
áratugi í íþróttaheiminum.
LINdælis Öskubuskuævintýri
Um fátt er meira rætt í íþróttaheiminum þessa dagana en ótrúlegan uppgang Jeremy Lin, leikmanns New York Knicks í NBA,
sem var öllum ókunnur fyrir tveimur vikum. Kjartan Guðmundsson leit yfir sögu bakvarðarins sem heillað hefur heimsbyggðina.
HLEGIÐ AÐ MÓTHERJUNUM Kobe Bryant og félagar í LA Lakers reyna af veikum mætti að stöðva Jeremy Lin í leik liðanna á
föstudaginn fyrir viku, þar sem bakvörðurinn fór á kostum, skoraði 38 stig og gaf sjö stoðsendingar. NORDICPHOTOS/GETTY
GAMAN AÐ FYLGJAST MEÐ KNICKS
Davíð Óskar Ólafsson framleiðandi var áhorfandi á
leik New York Knicks gegn New Jersey Nets í byrjun
mánaðarins, þegar Jeremy Lin kom af bekknum og gerði
28 stig.
„Þetta var fyrsti sigurleikur Knicks í langan tíma. Ég
vissi ekkert hver Jeremy Lin var en salurinn
trylltist þegar hann fór að setja öll þessi
skot niður. Jeremy Lin-æðið fór af
stað þennan dag og það var yndisleg
stemning á leiknum,“ segir Davíð og
bætir við að Lin hafi alla burði til að ná
mjög langt í íþróttinni. „Ég sá vel að
hann er góður að lesa leikinn,
góður skotmaður og snöggur.
Núna fær hann að spila meira
og verður pottþétt mjög
góður.“
Sömu helgi bar New
York Giants sigurorð af New
England Patriots í Super-
bowl-leiknum og því góð
stemning í borginni. „Ætli
ég hafi ekki komið með
góða strauma með mér
frá Íslandi,“ segir Davíð.
Varð vitni að upphafi æðisins
„Það er sérstaklega gaman að vera Knicks-aðdáandi
þessa dagana og New York-hjartað mitt er óvenju stórt,“
segir Hanna Eiríksdóttir, verkefnastýra UNIFEM, sem
hefur fylgst vel með sigurgöngu liðsins síðustu vikur.
Hanna segir oft reyna á að vera stuðningsmaður
Knicks, en liðið hefur átt litlu gengi að fagna síðustu
ár. „Í raun lifi ég enn á sumrinu 1999
þegar við vorum neðsta liðið inn í
úrslitakeppnina en komumst samt í
úrslitaleikinn, þar sem við skíttöpuð-
um reyndar fyrir San Antonio. Patrick
Ewing meiddist en Allan Houston,
Latrell Sprewell og Marcus Camby
drógu vagninn. það var stórkostlegt
ferðalag. Þess vegna ætla ég að njóta
þessarar sigurgöngu meðan hún endist.“
Hanna bjó lengi í Flórída og sótti leiki
með Knicks þegar liðið heimsótti
Orlando. „Ég hef aldrei farið á
leik í Madison Square Garden
en það er á listanum mínum.
Mig dreymir um að vera þar á
góðum leik, í góðum sætum
og helst við hliðina á Spike
Lee,“ segir Hanna.
Nýt þess meðan það endist