Fréttablaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 18. febrúar 2012 23
Á síðustu 20 árum hefur fjöldi ferðamanna til Íslands fjór-
faldast úr 150 þús. í 600 þús. –
milljón innan fárra ára er því
ekki óraunhæft mat. Umræða,
stefnumótun og skipulag hlýt-
ur að taka mið af þessari fyrir-
sjáan legu þróun. Á meðan hætta
er á að farið verði yfir þolmörk
ferðamannastaða á Suðurlandi
eru kostir Vesturlands van nýttir.
Undirstaða framþróunar er ný
hugsun í samgöngumálum svæð-
isins; tengja það betur til hring-
aksturs á bundnu slitlagi, innan
svæðis og með tengingu við
önnur landssvæði. Lykil atriði er
tenging í gegnum Lundarreykja-
dal um Uxahryggi til Þingvalla.
Um 60 km leið og tiltölulega
hagkvæm framkvæmd. Þannig
skapast möguleikar á hringakstri
á bundnu slitlagi frá höfuðborgar-
svæðinu um Vesturland og Suður-
land.
Þetta byði upp á fjölbreytta nýja
ferðamöguleika. T.d. hringferð
með a.m.k. jafn marga athyglis-
verða áfangastaði og nú er boðið
upp á þegar farinn er hringurinn
á þjóðvegi 1, en mun hagkvæmari
hvað varðar: orku, akstur, slit á
vegum, nýtingu tækja og vinnu-
tíma, ásamt því að fjölga ánægju-
stundum ferðamanna. Einn-
ig myndi slík vegagerð dreifa
umferð á álagstímum sumarsins
og efla þar með öryggi á vegum
þegar stór hluti ferðamanna færir
sig til eftir veðri, á milli land-
svæða eftir Suðurlands- og Vest-
urlandsveginum. Svo og: lengja
ferðatímann og styrkja ferða-
mennsku utan háannatíma. Þann-
ig þjónar veggerðin bæði svæð-
isbundinni atvinnu uppbyggingu
jafnt sem heildarhagsmunum
ferðaþjónustu á Íslandi enda hefur
stjórn Samtaka ferða þjónustunnar
tilnefnt þessa veggerð sem for-
gangsverkefni í samgöngumálum.
Meira þarf til. Lengi hefur verið
rætt um uppbyggðan fjallveg yfir
Kaldadal í stað þeirrar niður-
gröfnu, stórgrýttu forar slóðar
sem þar er. Slík framkvæmd
og tenging við bundið slitlag á
Uxahryggjavegi myndi stórefla
upplifun og aðgengi og hnykkja á
sérstöðu svæðisins. Bundið slitlag
um Skógarströnd myndi stuðla að
því að gera Vesturland að heild-
stæðara ferðasvæði; skapa ferða-
mannaleið milli Snæfellsness og
Dalabyggðar og afar skemmti-
legan hringakstur með tengingu
við núverandi vegi, auk þess að
tengja saman byggðarlög.
Það er örugglega vandasamt
verk að setja saman samgöngu-
áætlun. Endanleg útfærsla og
ákvörðunartaka er í höndum fólks
sem fær greitt fyrir þá vinnu og er
treyst til að gæta hagsmuna sinna
landsvæða. Öllum er kunnugt um
að úr minna fjármagni er að spila
og því mikilvægt að jafnræðis-
og sanngirnissjónarmið séu höfð
í hávegum við útdeilingu fjár-
muna. Innanríkisráðherra hefur
stigið fram og sagt að Vestfirðir
eigi að fá hlutfallslega mest til
að bæta samgöngur á því land-
svæði umfram annars staðar.
Með réttu ætti þetta að þýða að
NV-kjördæmi fengi verulegt, sér-
tækt viðbótarframlag til þess að
standa undir slíku átaki. En svo
er ekki. NV-kjördæmi fær aðeins
14% eða 3,8 milljörðum meira
heldur en NA-kjördæmi. Sú upp-
hæð er óverulegur hluti þess sem
fyrirhugað er til vegabóta á Vest-
fjörðum.
Stóra myndin er þessi: Fyrir
Alþingi liggur samgöngu áætlun,
sem er stefnumótandi til 12
ára. Búið er að tilgreina 30,625
milljarða til ákveðinna vegafram-
kvæmda í NV-kjördæmi. Þar af
fara 25,245 milljarðar eða 82% til
Vestfjarða en 5,380 milljarðar eða
18% til annarra vegaframkvæmda
í kjördæminu. Ef slæmar vega-
samgöngur á Vestfjörðum eru
afleiðing sniðgöngu undanfar-
inna ára og áratuga, þá er þessi
nýja samgönguáætlun áframhald
þeirrar vitlausu stefnu – með
öfugum formerkjum. Nú skal snið-
ganga hin svæðin í NV-kjördæmi
þ.m.t. áðurnefndar vegabætur um
Uxahryggi og Lundarreykjadal,
Kaldadal og Skógarströnd.
Annaðhvort í ökkla eða eyra.
Kunna þeir sem stjórna þessum
málum sér ekki meðalhóf? Það
hlýtur að vera eðlileg krafa að
líta til heildarinnar; og ekki getur
samviskubit stjórnmálamanna út
af fortíðinni verið grund völlur
framtíðarákvarðana á þessum
vettvangi. Vestfirðir eru um þriðj-
ungur af flatarmáli NV-kjör dæmis
og Vestfirðingar tæpur fjórðung-
ur af íbúafjölda kjördæmisins. Eru
slík viðmið grundvöllur til skipt-
ingar á því fé sem verja á til sam-
göngubóta? Varla. Út frá hverju
skal ganga? Undan farið hafa
þingmenn NV-kjördæmis viðr-
að skoðanir sínar hvað fiskveiði-
stjórn og kvóta varðar; talað um
sanngirni og jafnræði og varað
við samþjöppun í skiptingu fiski-
kvótans. Hvernig eiga þessi hug-
tök við þegar kemur að skiptingu
vegakvóta kjör dæmisins?
Samgöngur skipta íbúa lands-
byggðar afar miklu máli og eru
undir staða atvinnu upp byggingar
fram tíðarinnar. Þær eru alls ekki
einka mál innan ríkis ráð herra.
Hverjar eru for sendur þess að
sitjandi ráð herra og með virkir
þing menn ákveða: 82% Vest firðir
og 18% rest? Eru þær vandað-
ar og fag legar eða ósanngjarnt
offors á kostnað annarra íbúa NV-
kjördæmis og ferðaþjónustunnar í
heild?
Sanngjörn skipting: 82% - 18%?
Samgöngumál
Steinar Berg
Ísleifsson
ferðaþjónustubóndi
Búið er að tilgreina 30,625 milljarða til
ákveðinna vegaframkvæmda í NV-kjör-
dæmi. Þar af fara 25,245 milljarðar eða
82% til Vestfjarða en 5,380 milljarðar eða 18% til
annara vegaframkvæmda í kjördæminu.
ÚRVAL ÚTSÝN | LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK | SÍMI 585 4000 | FAX 585 4065 | INFO@UU.IS | WWW.URVALUTSYN.ISFerðaskrifstofa
ÚRVALSFÓLK (60+) ATHUGIÐ!
HÚLLUM HÆ Í LÁGMÚLANUM
SUNNUDAGINN 19. FEBRÚAR FRÁ KLUKKAN 13:00 TIL 16:00
Sérstakt tilboðsverð á ferðum, skemmtanastjórar kynna ferðir sínar, happdrætti,
veitingar í boði og heitt á könnunni. Við hlökkum til að sjá þig!
Blómaeyjan Tenerife er sannkölluð
sólarparadís. Einstök náttúrufegurð
og veðursæld. Kjartan Trausti reynir
að yngja sig upp og aðra í þessari
spennandi ferð fyrir Úrvalsfólk.
Þjóðgarðurinn El Teide heillar
og enginn sleppir verslunar- og
menningarferð til höfuðborgarinnar
Santa Cruz de Tenerife.
Í ferð með Úrvalsfólki er hópurinn
samstæður og þú nýtur samvista
við jafnaldra, vini og kunningja.
Skemmtanastjóri er með í
sólarlandaferðum og skipuleggur
fjölbreytta dægradvöl t.d. leikfimi,
spilavist og skemmtikvöld. Farið
er saman út að borða, í dans og
danskennslu, golf og mínígolf
ásamt fjölmörgum öðrum
skemmtilegum uppákomum. Að
ógleymdum frábærum skoðunar-
ferðum í fylgd reyndra fararstjóra.
* Innifalið: Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn.
ÚRVALSFÓLK (60+)
FERÐALÖG OG FRÁBÆR FÉLAGSSKAPUR
SKELLTU ÞÉR Í FERÐ MEÐ ÚRVALSFÓLKI Í VOR!
AFSLÁTTUR
12.000 kr.
Á MANN EF BÓKA
Ð
ER Á SUNNUDAG
á mann miðað við 2 fullorðna í tvíbýli með
hálfu fæði í 24 nætur.
HÓTEL GALA
24 nætur með hálfu fæði
TILBOÐSVERÐ:
Almennt verð: 223.900 kr.-
211.900 KR.-*
HÓTEL LA SIESTA
24 nætur með hálfu fæði
TILBOÐSVERÐ:
Almennt verð: 228.900 kr.-
216.900 KR.-*
TENERIFE 21. APRÍL - 15. MAÍ (24 NÆTUR)
21.apríl til 15.maí (24 nætur)
Skemmtanastjóri: Kjartan Trausti