Fréttablaðið - 25.02.2012, Qupperneq 32
25. febrúar 2012 LAUGARDAGUR32
Þvottahúsið
Þvottavélin og þurrkarinn eyða miklu rafmagni. Ef
þú þarft að kaupa nýja þvottavél ættir þú að skoða
hvort hún er umhverfis- og orkumerkt. Til er nóg af
umhverfismerktu þvottaefni og svo er ágætt að hafa í
huga að langflestir nota of mikið af þvottaefni. Yfirleitt
má helminga það magn sem ráðlagt er á pakkanum. Það
er líka betra að þvo bara fullar vélar, til að spara orku,
og á eins lágum hita og hægt er. Því lægra hitastigið, því
betra fyrir umhverfið. Tvisvar sinnum meira rafmagn er
notað þegar þvegið er við 90°C heldur en við 60°C.
Eldhúsið
Það er einfalt að
gera eldhúsið mun
umhverfisvænna
með smá breytingum
á neysluvenjum. Þar
er jafnan að finna
mörg tæki sem nota rafmagn. Það má spara orku með
því að slökkva á tækjum og helst taka þau úr sambandi
(þó ekki ísskápinn, af augljósum ástæðum). Það er einnig
mikilvægt að velja lífrænar og umhverfisvottaðar vörur.
Tuskan er oftast á lofti í eldhúsinu og þess vegna er gott
að vistvænar hreinlætisvörur séu til í miklu úrvali. Það er
vert að hafa í huga að ofnotkun hreinsiefna er dýrkeypt
fyrir umhverfið. Oft má nota örtrefjaklúta eða edik, eða
hreinlega bara vatn, í staðinn fyrir sápu.
LÍF Í SÁTT OG SAMLYNDI VIÐ UMHVERFIÐ
Þ
egar Vigdís Hrefna
Pálsdóttir leikkona
og maður hennar,
Örn Úlfar Höskulds-
son þýðandi, festu
kaup á gömlu húsi
við Bergstaðastræti tóku þau strax
ákvörðun um að gera það upp með
eins sjálfbærum og umhverf-
isvænum hætti og kostur væri.
Húsið, sem er byggt á milli 1903 og
1905, var í algjörri niðurníðslu, en
það hafði verið í eigu verktaka sem
höfðu beðið þess lengi að fá að rífa
það til að byggja nýtt hús á lóðinni.
„Við höfum reynt að nýta allt sem
er heilt í húsinu og það sem fellur
til í kringum okkur. Okkur þykja
margir of gjarnir á að skipta öllu
út, henda öllu sem fyrir er og fá
sér eitthvað nýtt í staðinn. En það
er okkar afstaða að maður skiptir
ekki um neitt í gömlu húsi, nema
maður sé nauðbeygður til. Það er
tímanna tákn að einfaldast þyki að
skipta út hlutum í stað þess að laga
þá. Við það glatast oft verðmæti.“
Gæðin eru líka oft og tíðum lak-
ari í nýjum efnivið, segir Vigdís
Hrefna. „Í húsinu okkar er hæg-
vaxið 19. aldar timbur, sem er mun
vandaðra en það hraðsprottna og
ræktaða sem fæst í dag. Eldra
timbur fúnar mun síður. Húsið
okkar hafði til dæmis staðið tómt,
ókynt og gluggalaust að hluta í sjö
ár þegar við keyptum það. Það var
samt sem áður nær enginn fúi í
því. Við þökkum það gæðum timb-
ursins.“
Þegar þau Vigdís og Örn keyptu
húsið var búið var að rífa allt út
úr því, þar með talið allar hurðir,
hurðarkarma, gólflista og ofna.
Þau þurftu því að hafa allar klær
úti til að útvega sér nýja innviði.
„Við höfum fengið mikla hjálp frá
vinum og vandamönnum. Þegar
maður er að gera upp hús er líka
um að gera að vera vakandi, því
efni falla til á ótrúlegustu stöð-
um. Við erum til dæmis að smíða
grindverk núna, sem er meðal ann-
ars unnið úr timbri sem er notað
til að flytja nýtt bárujárn. Við
fengum gamla eldhúsinnréttingu
úr húsinu á móti okkur, panil frá
húsinu hér við hliðina á okkur og
lista frá öðru húsi hér við götuna.
Við fengum líka gamla pottofna
gefins og höfum við verið að viða
að okkur gömlum gluggafögum.
Við fengum meira að segja gefins
hurðir sem átti að farga en hefði
kostað mörg hundruð þúsund að
smíða.“
Þegar komið var að því að mála
húsið varð línolíumálning fyrir
valinu, en hún er unnin úr hörfræj-
um og töluvert umhverfisvænni
en olíumálningin sem flestir nota
í dag. „Við keyptum upp gamlan
lager af línolíumálningu, enda eru
það bara svona sérvitringar eins
og við sem notum svona málningu
í dag. Hún þykir of dýr, lyktsterk
og lengi að þorna. En það er mjög
gaman að mála með henni. Hún er
eins og hunang og hún binst viðn-
um, í stað þess að liggja utan á
honum eins og hjúpur,“ segir Vig-
dís Hrefna að endingu.
Með nýtnina að leiðarljósi
Þegar Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Örn Úlfar Höskuldsson keyptu gamalt hús í niðurníðslu ákváðu þau að gera það upp með
eins umhverfisvænum hætti og mögulegt er. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir spjallaði við húsfreyjuna á Bergstaðastræti 20.
HEIMA Um þessar mundir eru þau Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Örn Úlfar Höskuldsson
að smíða grindverk, sem meðal annars er unnið úr timbri sem notað er til að flytja
nýtt bárujárn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Það er mikilvægt fyrir okkur sem
neytendur að átta okkur á því að
okkar ákvarðanir skipta öllu máli,“
segir Guðrún Tryggvadóttir, konan
að baki hinni umhverfisvænu vef-
síðu Náttúran.is. „Þegar við kaupum
hluti ættum við leggja okkur eftir
því að spyrja hvaðan hlutirnir koma
og hvernig þeir eru búnir til. Þannig
fá verslanir og framleiðendur skýr
skilaboð frá okkur.“
Guðrún telur að það myndi koma
mörgum á óvart hversu mikið af
skaðlegum efnum er að finna inni
á hinu venjulega heimili og hversu
mikil sóun á náttúrugæðum eigi sér
stað í hugsunarleysi hversdagsins.
Íslendingar séu til dæmis vanir að
láta vatnið renna í stríðum straumi,
hækki í ofnunum eins og þá lystir
og láti ljós sín skína í hverju her-
bergi ef þeim sýnist svo. „Ef allir
myndu til dæmis hugsa betur um
það hvernig þeir eyða rafmagninu
sínu gætum við sparað okkur heila
virkjun. Það myndi skapa þjóðfélag-
inu mikla peninga,“ segir hún.
Það var árið 2007 sem Guðrún
og samstarfsfólk hennar opnaði
vefsíðuna natturan.is. Eftir áralanga
dvöl erlendis kom það Guðrúnu á
óvart hversu skammt á veg Ísland
var komið í umhverfisvernd og
því ákvað hún að leggja sín lóð á
vogarskálarnar til að breyta því. Hún
merkir mikla hugarfarsbreytingu hér.
„Á þessum tíma var fólk bara hissa
og sagði „hver hefur áhuga á því“
þegar ég sagði frá áformum um að
opna umhverfisvef. Í dag fæ ég allt
að 2.000 heimsóknir á dag.“
Á Náttúran.is er að finna ógrynni
af upplýsingum sem geta nýst þeim
vel sem vilja gera heimilið umhverf-
isvænna. Þar er meðal annars að
finna vistvæn innkaupaviðmið, sem
einfalda val á vörum og þjónustu
sem er síður skaðleg umhverfinu og
heilsunni. Þar er líka að finna græna
kortið, sem auðveldar fólki að finna
græn fyrirtæki, vörur og þjónustu
um allt land, og margt fleira.
Að mati Guðrúnar ætti það ekki
að vera val að vera umhverfisvænn í
neysluvenjum. „Við viljum að börnin
okkar og barnabörn lifi í þessum
heimi. Þetta er einfaldlega spurning
um hvort við ætlum að halda áfram
að búa á þessari jörð eða ekki.“
ÁKVARÐANIR NEYTENDA SKIPTA ÖLLU MÁLI
GRÆN Í HUGSUN Guðrún Tryggvadótt-
ir, sem rekur Náttúru.is, telur að það
myndi koma mörgum á óvart hversu
mikið af skaðlegum efnum er að finna
inn á hinu venjulega heimili.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1.
Þessi 7 ráð og myndirnar sem þeim fylgja eru birt með leyfi
natturan.is, upplýsingaveitu um allt mögulegt sem tengist nátt-
úru og umhverfisvænum venjum. Þar er að finna mun ítarlegri
upplýsingar um hvernig gera má heimilið umhverfisvænna.
7.
6. 5. 4.
3. 2.
UMHVERFISVÆNIR LÍFSHÆTTIR:
Heimilið
Fáðu þér göngutúr um heimilið með grænu gleraugun á nefinu...
Stofan
Sjónvarpið eyðir
yfirleitt mestri
orku í stofunni.
Raforkunotkun tækja
má takmarka með því a
slökkva á þeim, en um
10 prósent orkunotk-
unar heimilistækja leka út í gegnum tæki í biðstöðu. Leitast
ætti við að velja sparperur í stað venjulegra ljósapera. Þó þær
séu töluvert dýrari nota þær einungis um 15 til 20 prósent af
orku venjulegrar peru, auk þess sem líftími þeirra er allt að
10 sinnum lengri. Þegar húsgögn eru keypt ætti að ganga úr
skugga um að þau séu ekki úr regnskógarviði og innihaldi
ekki efni sem eru skaðleg heilsunni eða umhverfinu.
Svefnherbergið
Í svefnherberginu
skiptir máli að hús-
gögnin andi ekki
frá sér eiturefnum
á meðan sofið er.
Með því að kaupa
umhverfisvæn
húsgögn, til dæmis
FSC-vottuð eða Svansmerkt, má koma í veg fyrir það.
Margar vefnaðarvörur, á borð við sængurföt og fatnað,
eru meðhöndlaðar með sýruböðum og eiturefnum.
Mikil eiturefni eru notuð við ræktun á bómull. Því er
tvímælalaust besti kosturinn að velja vefnaðarvöru úr
lífrænt ræktaðri bómull, silki, hampi eða hör.
Barnaherbergið
Herbergi fullt af plastleik-
föngum og gerviefnum
hefur slæm áhrif á börn.
Nýlegar rannsóknir sýna að
þalöt, sem eru mýkingarefni í
leikföngum, séu mjög algeng
þrátt fyrir að geta haft hormónatruflandi áhrif. Til að koma
efnum úr umferð þurfa neytendur að taka þátt í því að
sniðganga vörur og vörumerki sem stefna heilsu barna í
hættu. Framleiðendur hafa jafnframt verið gagnrýndir fyrir að
nota eldhemjandi efni og blýmagn í óhóflegu magni. Leik-
föng sem markaðssetja á hér á landi eiga að vera CE-merkt. Í
notkunarleiðbeiningum skal varað við þeirri hættu sem fylgir
tilteknum leikföngum, ásamt upplýsingum um hvernig skuli
brugðist við henni.
Baðherbergið
Of mikið hreinlæti, með tilheyrandi notkun hreinsiefna,
getur verið dýrkeypt fyrir náttúruna. Því er mikilvægt
að nota umhverfisvænar hreinlætisvörur og hreinsivörur á
baðherberginu. Hreinsivörur úr kemískum efnum geta haft
heilsuspillandi áhrif á menn, auk þess sem þau enda að
lokum í hafinu og valda þar miklum skaða. Vistvæn húsráð
duga betur en mörg hreinsiefni. Gamalt kók hreinsar
klósettskálina mjög vel og dagblaðapappír pússar spegla
best. Edik og salt gera baðkarið aftur skjannahvítt. Svona
einfalda hluti má innleiða í daglegt líf og haft með því
jákvæð áhrif á umhverfið í stað neikvæð.
Skrifstofan
Á flestum heim-
ilum er að minnsta
kosti ein tölva.
Tölvuframleiðsla
hefur neikvæð
umhverfisáhrif,
bæði vegna þeirra
náttúrauðlinda sem framleiðsla hráefnis í tölvurnar
hefur í för með sér, flutnings efnis heimsálfa á milli og
framleiðsluferlisins við gerð tölvunnar sjálfrar. Nokkrir
tölvuframleiðendur hafa umhverfismerkið Svaninn á
framleiðslu sinni, en tölvur með Svansmerkinu uppfylla
strangar kröfur um magn þungmálma, samsetningu
plastefna, framleiðsluferli, orkunotkun, möguleika á
endurvinnslu og fleira. Orkumerki, eins og Energy Star
eða GEEA label, segja til um hvort tölva, prentari eða
ljósritunarvél er orkusuga.