Fréttablaðið - 25.02.2012, Page 40
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is s. 512 5411.
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
1 Miðaldastemning í Kantaraborg
Canterbury er borg í Kent í suðaustur-
hluta Englands. Miðaldastemning ríkir
í borginni þar sem er að finna fallega
dómkirkju, krár, leikhús og róman-
tískar gönguleiðir að miðaldakastala í
smáþorpinu Chilham.
2 Vín og ristað brauð í Mendocino í Kaliforníu
Eitt besta leyndarmál Kaliforníu er
strandferðalag norður af San Fransico frá
Sonoma-héraði til Mendocino. Mendoc-
ino-bær þykir afar fallegur og hentugt
að gista í bænum og fara þaðan í ferðir á
vínekrur í grenndinni.
3 Panama og Kólumbía
Cartegna er bærinn sem Gabriel García
Márquez notaði sem sögusvið bókar
sinnar Ástin á tímum kólerunnar. Hún
þykir ein rómantískasta borg Suður-
Ameríku.
4 Ástarlest til Churchill í Manitoba
Norðurljósin eru líklega það sem helst
dregur elskendur til hins kalda smá-
bæjar Churchill í Manitóba í Kanada.
Reyndar er bærinn helst þekktur fyrir ís-
birni sem oft leggja leið sína um svæðið.
5 Helgi á Íslandi
Lonely Planet bendir á að ferðalag til
Íslands frá bæði austurströnd Banda-
ríkjanna og Englandi taki skamma stund.
Norðurljósin, náttúran og heitar laugar
eru talin upp sem helsta aðdráttarafl
elskenda.
Rómantískir
áfangastaðir
Ísland er einn af sex stöðum sem Lonely Planet telur upp
sem ákjósanlega en óhefðbundna rómantíska áfangastaði.
Listinn var tekinn saman í tilefni Valentínusardagsins en
á við hvenær sem er ársins fyrir ástfangin pör.
5
1
4
3
2
AUÐVELT AÐ SKREPPA TIL BRIGHTON
Það tekur aðeins hálfa klukkustund með rútu frá Gatwick-flugvelli til
Brighton sem er við suðurströnd
Bretlands. Bærinn er vinsæll
sumarleyfisstaður Breta og
hefur yfir sér rómantískan blæ. Í
miðbænum eru þröngar götur
þar sem fjölda veitingastaða
má finna. Verslunarmiðstöð er
skammt þar frá með þekktum
og vinsælum verslunum eins og
H&M og Mothercare. Í nágrenn-
inu má síðan finna litlar sérversl-
anir jafnt með fatnað sem hluti
fyrir heimilið.
Á veturna er Brighton vinsæll
háskólabær en á sumrin sækir
fólk á ströndina. Helgarferðir eru
vinsælar, þá er legið í sólbaði á
ströndinni á daginn og veitinga-
húsin heimsótt á kvöldin. Brighton er stutt frá London og reglulegar
lestarferðir á milli svo auðvelt er að skreppa þangað. Brighton hentar
þeim sem vilja rólegra umhverfi en stórborgin býður upp á en engu að
síður margt spennandi að gerast. Leikhús- og tónlistarlíf er líflegt.
Í Brighton er tívólí niðri á bryggju og þangað sækja margir ferðamenn.
Frá því í apríl er boðið upp á útsýnisferðir í tveggja hæða strætisvögnum.
Leiðsögn er í gegnum heyrnartæki. Eitt af því sem vekur gjarnan athygli
ferðamanna er Royal Pavillon sem Georg IV lét reisa. Höllin er byggð í
indverskum stíl og hefur yfir sér ævintýralegan blæ. Auðvelt er að rata
um Brighton og strætisvagnar eru stöðugt á ferðinni vilji menn fara í
skoðunarferð með þeim.
Þröngar og skemmtilegar götur eru í Brig-
hton þar sem eru veitingahús og verslanir.
Á ströndinni í Brighton með tívolíið í bakgrunni.
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
12.-22. maí
Fararstjóri: Trausti Hafsteinsson
Marokkó
Einstakt tækifæri til að líta stundarkorn inn í nýjan heim og kynnast nokkrum
völdum stöðum í Marokkó.
Innifalið: Flug til Jerez og frá Malaga, skattar, gisting á góðum 3*/ 3*+ hótelum í 10 nætur með hálfu fæði
inniföldu. Kynnisferðir samkvæmt dagskrá. Sigling frá / til Spáni til Afríku Akstur til og frá flugvelli og á milli
áfangastaða. Íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Netverð: 249.900 kr. á mann í tvíbýli
Ævintýri í