Fréttablaðið - 25.02.2012, Page 42
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 20124
Meirihluti bakpokaferðalanga skilur snjallsímana sína eftir heima áður en þeir leggja í hann samkvæmt nið-
urstöðum rannsóknarteymis á vegum TNT-
ferðasýningarinnar sem haldin er í London ár
hvert og ber upp á þriðja mars næstkomandi.
Þrátt fyrir að framleiðendur keppist við að
hanna smáforrit í snjallsíma sem ætlað er að
vísa ferðamönnum veginn hvar sem þeir eru í
heiminum kjósa flestir að fara eftir munnleg-
um ábendingum heimafólks eða annarra sem
þekkja til.
Þúsund bakpokaferðalangar á aldrinum 18 til
35 ára voru spurðir og kusu 73 prósent að leita
eftir munnlegum ábendingum á meðan 14 pró-
sent notuðu samskiptavefi og smáforrit í síman-
um í leit að upplýsingum og áhugaverðum stöð-
um að skoða. 85 prósent þeirra sem áttu black-
berry-síma og 68 prósent þeirra sem áttu iPhone
sögðust kjósa að skilja símana eftir heima. Enn
fremur sögðust 90 prósent kjósa að nota hefð-
bundna digital-myndavél í stað símamyndavél-
arinnar.
„Þrátt fyrir að gömlu góðu póstkortin séu
á undanhaldi og unga fólkið noti aðrar sam-
skiptaleiðir, er ljóst að það tekur mannleg sam-
skipti enn þá fram yfir tæknina og þykir hrein-
lega ekki eftirsóknarvert að eyða fríinu í að
vafra um í símanum,“ segir Kevin Ellis, fram-
kvæmdastjóri TNT-ferðasýningarinnar.
Munnlegar ábendingar
fram yfir smáforrit
Bakpokaferðalangar reiða sig frekar á munnlegar ábendingar frá heimafólki og öðrum sem þekkja til en upplýsingar
í smáforritum snjallsíma á ferð sinni um heiminn.
73 prósent bakpokaferðalanga leita eftir munnlegum ábendingum en 14 prósent nota samskiptavefi og smáforrit.
NORDICPHOTOS/GETTY
Flugrúta Kynnisferða ehf. hefur um árabil verið eftir-sóttur valkostur bæði meðal
innlendra og erlendra ferða-
manna. Þórarinn Þór markaðs-
stjóri Kynnisferða segir vinsæld-
irnar ekki ástæðulausar þar sem
hvorki sé hægt að hugsa sér þægi-
legri, fljótlegri, öruggari né ódýr-
ari ferðamáta á innlendum mark-
aði í dag.
„Við erum með ferðir bæði frá
Keflavík og Reykjavík í tengslum
við allar komur og brottfarir frá
Keflavíkurflugvelli. Brottfarir frá
flugstöðinni eru um 45 mínútum
eftir lendingu hvers flugs. Rúturn-
ar fara á fimmtán til tuttugu mín-
útna fresti þaðan þannig að þetta
gengur mjög hratt fyrir sig,“ bend-
ir hann á. Hann bætir við að tíðar
brottfarir séu frá Umferðarmið-
stöðinni BSÍ til f lugstöðvarinn-
ar. „Til dæmis
getur hentað
fólki sem kemur
utan af landi og
ætlar að f ljúga
út, að hvíla lúin
bein og gista á
hóteli eða gisti-
heimili á höf-
uðborgarvæð-
inu og taka síðan flugrútuna út á
Keflavíkurflugvöll daginn eftir.
Flugrútan er einnig kjörinn ferða-
máti fyrir þá sem lenda í Keflavík
og fljúga áfram samdægurs inn-
anlands frá Reykjavík,“ segir Þór-
arinn.
Mikið er lagt upp úr þægind-
um og notalegheitum í f lugrút-
unni og sem dæmi um það hafa
Kynnisferðir nýverið aukið þjón-
ustuna við farþegana með því að
innleiða þráðlaust net í allar rútur,
sama hvert leiðin liggur og er það
notendum að kostnaðarlausu að
sögn Þórarins. „Þetta styttir fólki
stundir meðan það bíður eftir að
rútan leggi af stað og auðvitað
meðan á ferðalaginu sjálfu stend-
ur.“
Kynnisferðir bjóða ýmsa fleiri
möguleika fyrir ferðamenn. Þór-
arinn nefnir þá helstu. „Við seljum
svokallaða rútupassa sem gerir
fólki kleyft að ferðast innan ákveð-
ins tímaramma innanlands, bæði
styttri vegalengdir og lengri. Einn-
ig bjóðum við upp á göngupassa á
nokkrum af vinsælustu göngu-
leiðum landsins. Dagsferðir út frá
Reykjavík fyrir erlenda ferðamenn
eru reknar allt árið og sömuleið-
is setjum við saman „pakka” fyrir
hópa,“ segir hann og bendir á
heimasíðuna www.re.is en þar má
finna frekari upplýsingar.
Erum ávallt til taks
Flugrútan er starfrækt allan sólarhringinn, alla daga ársins. Hún er til taks þegar
flugvélar lenda á Keflavíkurflugvelli og flytur farþega að Umferðarmiðstöðinni á BSÍ.
Þórarinn Þór, markaðsstjóri Kynnisferða, segir flugrútuna einn besta ferðamáta sem völ er á á innlendum markaði.
EKIÐ UM BANDARÍKIN
Einn vinsælasti þjóðvegur
Bandaríkjanna er númer 66
(Route 66) en bæði hefur verið
sungið um hann og gerðir sjón-
varpsþættir. Vegurinn liggur frá
Chicago til Los Angeles. Margir
hafa farið þessa frægu braut
á mótorhjóli en aðrir velja að
keyra. Þegar undirbúa á slíka ferð
er gott að vera vel skipulagður.
Best er að panta hótel fyrirfram á
upphafs- og lokastað ferðarinnar.
Önnur gisting getur verið til-
viljanakennd á leiðinni en einnig
er hægt að panta á netinu með
dagsfyrirvara. Bílaleigubíllinn
þarf að vera rúmgóður með loft-
kælingu. Nauðsynlegt er að hafa
kælitösku í bílnum og fylla hana
reglulega með vatni og nesti. Þá
er GPS-tæki ómissandi í svona
ferð. Mælt er með því að aka ekki
lengur en þrjá til fjóra tíma á dag
til að ofþreyta sig ekki. Með því
móti er hægt að stoppa á fleiri
stöðum og skoða sig um.
Þórarinn Þór
Ævintýraferð
Seychelleseyjar í Indlandshafi
5. til 21. október 2012
Seychelles
Ferðalag til Seychelleseyja í
Indlandshafi er upplifun sem lætur
engan ónsnortinn. Gestamóttakan
býður nú í annnað sinn uppá
ferðalag þangað. Eyjarnar liggja 4°
sunnan við miðbaug og þarna er
alltaf hlýtt og notalegt en sjaldnast
of heitt. Við munum lenda á Mahé
og siglum þaðan til Praslin þar sem
við verðum í 5 daga í sól, sandi
og sjó. Á Praslin er frumskógur
sem er á heimsminjaskrá UNESCO
sem við heimsækjum og þeir sem
vilja geta farið í golf á unaðslega
fallegum 18 holu velli. Köfun er
einnig í boði fyrir þá sem vilja.
Næst er dvalið í 4 daga á eyjunni
La Digue og farið nokkra áratugi
aftur í tímann; þar er friðsæld,
kyrrð og strendurnar engu líkar.
Leigubíll eyjunnar heitir Thomas
og er 12 ára gamall uxi sem
dregur farþegakerru. Gaman er
að hjóla um eyjarnar enda nánast
engir bílar. Að endingu er siglt til
Mahe og síðstu 5 dögunum eytt
við ströndina Beau Vallon. Við
munum heimsækja kryddgarð og
sjáum m.a. pipar á trjánum og
vanillu. Göngu- og veiðiferðir
verða í boði ásamt snorkelferðum
en sjávarlífið er stórkostlegt við
eyjarnar. Flogið er frá Frankfurt
til Mahe og sömu leið til baka.
Hringdu í Gestamóttökuna í s íma 551 1730
e ð a s ko ð a ð u w w w. yo u r h o s t . i s
Gestamóttakan
Kirkjutorg 6, IS-101 Reykjavík
Sigurjón M. Egilsson
stýrir Sprengisandi
á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur