Fréttablaðið - 25.02.2012, Side 48

Fréttablaðið - 25.02.2012, Side 48
Kynning - auglýsing Kolbrún Ósk Skaftadóttir, verslunarstjóri hjá bóka-verslun Forlagsins við Fiski- slóð 39, segist bjóða upp á mesta úrval korta á landinu. Með vax- andi áhuga fólks á göngu- og fjalla- ferðum um landið eykst eftirspurn eftir vönduðum kortum. „Við erum með stærstu korta- deildina á landinu. Kort af öllum mögulegum gerðum og stærðum. Þar má nefna landsfjórðungakort, sérkort af helstu ferðamannastöð- um landsins, fuglakort með mynd- um af þeim fuglum sem sjá má í náttúru landsins, plöntukort og jarðfræðikort. Þess utan erum við með ákaflega vandað Atlaskort svo úrvalið er ótrúlega mikið en á því er landinu skipt niður í 31 hluta með yfirgripsmiklum fróðleik,“ segir Kolbrún Ósk. Ramma inn kortin Kortin er bæði hægt að fá saman- brotin en einnig flöt en þau hafa verið vinsæl til innrömmunar. „Við erum sömuleiðis með falleg, upphleypt kort sem eru mikið tekin til gjafa. Kortin er hægt að fá í gjafaöskju,“ greinir Kolbrún frá og bætir við. „Margir kaupa kort til að hengja upp á vegg á heimilinu, skrifstofunni eða í sumarbústaðnum. Við seljum til dæmis mikið af f lötu fuglakorti en við vitum að það er vinsælt að hengja það upp á vegg í sumarbú- staðnum. Þá getur fólk virt fyrir sér fuglana úti í náttúrunni og séð á kortinu hvað þeir heita. Ís- landskortin fara gjarnan á veggi á skrifstofum, skólum og ekki síður á heimilum,“ segir Kolbrún Ósk ennfremur. Kortin eru fáanleg á íslensku, ensku og þýsku. „Mér finnst vera vaxandi áhugi hjá fólki að eignast landakort. Björgunarsveitamenn koma gjarnan og kaupa kort ef þeir eru að fara á einhvern ákveð- inn stað og vilja kynna sér hann betur. Undanfarið hef ég fund- ið fyrir auknum áhuga fólks að velja kortin til gjafa. Flötu kortin hafa lækkað í verði og eru núna á sama verði og hin sem eru brotin saman.“ Göngugarpar skoða kort Alls kyns gönguhópar hafa sprott- ið upp á undanförnum árum og segir Kolbrún að göngugarparnir vilji gjarnan kynna sér gönguleið- ir áður en haldið er í ferðir. „Færri ferðast til útlanda en á móti hefur ferðum innanlands fjölgað. Svo virðist sem fólk fái um leið áhuga á ýmsum staðaheitum, örnefnum og slíkum landslagsheitum. Við erum einnig með fjölbreytt úrval af ferðabókum um gönguleiðir. Fuglavísirinn var endurútgefinn á síðasta ári og margir virðast hafa áhuga á þeirri bók, steinabókinni og bókinni um plöntur. Þessar bækur köllum við sumarbústaða- bækur því fólk vill geta flett í þeim í bústaðnum. Slíkar bækur eru ekki síður vinsælar til gjafa en kortin. Það er heilmikill fróðleik- ur um landið í þessum bókum og gaman að hafa þær við höndina.“ Kolbrún Ósk segir að fólk komi í kortadeildina í margvíslegum tilgangi. „Um daginn kom hing- að maður sem býr á Seltjarnar- nesi og vildi vita hvað eyjarnar heita sem hann sá út um gluggann sinn. Hann keypti því kort af nes- inu og gat fundið allt um Gróttu og fleiri staði í nágrenni sínu. Úrvalið af kortum og bókum um landið hefur verið að aukast umtalsvert á undanförnum árum. Síðan erum við með götukort af Reykjavík og nánasta umhverfi borgarinnar.“ Föndrað með fugla Í verslun Forlagsins á Fiskislóð 39 er sérhönnuð deild fyrir kortin og viðskiptavinir fá aðstoð við valið. „Við erum með sýnishorn af öllum kortunum þannig að fólk getur skoðað þau áður en keypt er. Vinsælustu kortin hafa verið um fuglana og síðan fjórðungskort af landinu. Landakort sem sýna allt landið hafa einnig verið mjög eft- irsótt. Ég hef heyrt af fólki sem hefur klippt niður fuglakort og föndrað með það,“ segir Kristín Ósk. Bókaverslun Forlagsins er á góðum stað á Grandanum, stutt frá Krónunni og Bónus og þar eru næg bílastæði. Áhugi á landakortum eykst stöðugt Fuglakort njóta vinsælda ekki síður en landsfjórðungskort. Fólk skreytir heimili sín með fallegum kortum. Göngugarpar vilja fræðast um gönguleiðir landsins og sumir föndra með kortin. Sumarbústaðaeigendur vilja hafa kort hjá sér og sömuleiðis fræðandi handbækur. Mikið úrval er af kortum hjá Forlaginu, landakortum, fuglakortum og jarðfræðikortum svo eitthvað sé nefnt. Hér er Kolbrún Ósk Skaftadóttir, verslunarstjóri í kortadeildinni í bókaverslun Forlagsins við Fiskislóð. MYND/VALLI KORTADEILD Kortadeild Máls og menningar og Forlagsins var stofnsett árið 1998, en meginhlutverk hennar er útgáfa landakorta af Íslandi. Helstu útgáfur deildarinnar eru ferða- og fjórðungskort, kortabækur handa ferðamönnum og Íslandsatlas. Auk þess hefur deildin gefið út 12 nákvæm sérkort, 31 atlaskort af öllu landinu, nokkrar gerðir náttúrufarskorta, barnakort og upphleypt kort. Fjórðungskortin og kortabækurnar hafa unnið til alþjóðlegra verðlauna. Heildarfjöldi kortatitla er kominn yfir 50. Nýjasta verkefni deildarinnar er útgáfa á vönduðum Ferða-Atlas, en í honum verða 78 nákvæm kort af Íslandi í mælikvarða 1:200 000 auk upplýsinga um rúmlega 100 náttúruperlur og sögustaði landsins. Ferða-Atlasinn kemur á markað í maí nk. Eini starfsmaður kortadeildar Máls og menningar frá upphafi er Örn Sigurðsson landfræðingur, en honum til aðstoðar eru kortagerðar- mennirnir Hans H. Hansen og Ólafur Valsson. Í verslun Forlagsins má finna gríðarlegt úrval af alls kyns ferða- og handbókum sem nýtast vel í fríinu og í sumarbústaðnum. Um daginn kom hingað maður sem býr á Seltjarnarnesi og vildi vita hvað eyjarnar heita sem hann sá út um gluggann sinn. Hann keypti því kort af nesinu og gat fundið allt um Gróttu og fleiri staði í nágrenni sínu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.