Fréttablaðið - 25.02.2012, Blaðsíða 93
LAUGARDAGUR 25. febrúar 2012 57
Laugardagur 25. febrúar 2012
➜ Leiklist
14.00 Möguleikhúsið sýnir barnaleik-
ritið Langafi prakkari í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi. Leikritið er byggt á
sögum Sigrúnar Eldjárn og er miðaverð
kr. 2.000.
➜ Listasmiðja
13.00 LornaLAB-smiðja verður haldin
í Hafnarhúsinu, í annað skiptið á þessu
ári. Viðfangsefni smiðjunnar að þessu
sinni er stafræn frumsmíði og fer hún
fram undir handleiðslu Eriks Parr.
Smiðjan er ókeypis og öllum opin.
➜ Sýningar
16.00 Sýningin Skáskegg á VHS +
CD verður opnuð í Skaftfelli, Miðstöð
myndlistar á Austurlandi. Um er að
ræða sýningu þriðja árs nema í mynd-
list við Listaháskóla Íslands. Sýningin
stendur til 6.maí n.k.
16.00 Ungur og hæfileikaríkur málari,
Ragnar Þórisson, opnar sína fyrstu
einkasýningu í Gallerí Ágúst. Yfirskrift
sýningarinnar er Mannagerðir og er um
að ræða stór og áhrifamikil olíumálverk
sem leiða hugann að tilvistarkreppu
samtímans og firringu mannsins. Sýn-
ingin stendur til 1.apríl.
19.00 Listakonan Berglind Ágústs-
dóttir opnar sýningu sína The party I fell
in love og tónleika á Kaffistofunni að
Hverfisgötu 42b. Aðgangur er ókeypis
og allir eru velkomnir.
➜ Íþróttir
19.00 Hnefaleikafélag Akraness
stendur fyrir hnefaleikamóti í íþrótta-
húsinu við Vesturgötu á Akranesi. Margir
af færustu boxurum landsins etja kappi,
auk sterkra boxara frá Danmörku.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur.
➜ Umræður
11.30 Sigurður Ingi Jóhannsson alþing-
ismaður verður gestur á laugardags-
spjalli Framsóknar að Hverfisgötu 33.
Heitt á könnunni og allir velkomnir.
➜ Fræðslufundir
13.00 Rannsóknahópur Þórarins
Guðjónssonar dósents og Magnúsar
Karls Magnússonar prófessors býður
til fyrirlestrar í Læknagarði, byggingu
Læknadeildar Háskóla Íslands, Vatns-
mýrarvegi 16. Sagt verður frá stofn-
frumurannsóknum og tengslum þeirra
við brjóstakrabbamein.
➜ Uppákomur
16.00 Uppboð verður á listaverkum
sýningarinnar VÄGGER í Norræna hús-
inu. Verkin eru á verðbilinu 20 þúsund
til 160 þúsund. Allir eru velkomnir.
➜ Kynningar
16.00 Kínaklúbbur Unnar kynnir
Kínaferð sem farin verður í sumar, með
litskyggnusýningu og tedrykkju á Njáls-
götu 33a. Allir velkomnir meðan rúm
leyfir.
➜ Málþing
14.00 Málþing um Byggingarlist og
samfélagið verður haldið í Norræna
húsinu. Talsmenn eru arkitektar, heim-
spekingar, deildarforsetar og formenn
og munu þeir fjalla um samfélagið og
áhrif þess á byggingarlist og öfugt. Allir
eru velkomnir.
➜ Uppistand
20.00 Uppistandið Steini/Pési og gaur
á trommu verður sýnt á Græna Hatt-
inum, Akureyri. Önnur sýning verður kl.
23.00. Miðaverð er kr. 3.200.
➜ Tónlist
14.00 Söngskólinn í Reykjavík fagnar
Degi tónlistarskólanna með glæsilegri
dagskrá undir yfirskriftinni Upplyfting í
skammdeginu. Samfelld dagskrá verður
í gangi í Snorrabúð, tónleikasal Söng-
skólans, Snorrabraut 54 sem endar
á fjöldasöng um kl. 17.30. Allir eru
velkomnir og aðgangur er ókeypis.
15.00 Benedikt Kristjánsson tenór og
Jón Bjarnason dómorganisti í Skálholti
munu leika og syngja á tónleikum í
Skálholtsdómkirkju. Flutt verða verk
eftir Johann Sebastian Bach. Aðgangur
er ókeypis.
17.00 Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópran
og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó-
leikari halda tónleika í Salnum Kópa-
vogi. Fluttar verða aríur og ljóð eftir
Rossini, Grieg, Liszt, Wagner, Strauss,
Puccini og Verdi.
21.00 Hljómsveitirnar Mercy Buckets,
Gunslinger og Chino spila á tónleikum
á Bar 11. Allir velkomnir.
23.00 Magnús Einarsson og Tómas
Tómasson leika tónlist frá ýmsum áttum
á Ob-La-Dí, Frakkastíg 8. Aðgangseyrir
er kr. 1.000.
23.30 Skemmtistaðurinn Faktorý býður
á Kanilkvöld í níunda sinn. Að þessu
sinni er sumarþema með sjóðheitum
slögurum, léttum klæðnaði og stans-
lausum dansi. Aðgangur er ókeypis og
gestir hvattir til að mæta í sumarlegum
klæðnaði.
➜ Listamannaspjall
14.00 Hulda Hlín Magnúsdóttir mynd-
listarkona verður með listaspjall í 7Fac-
tory Gallerí að Fiskislóð 31. Er spjallið í
tengslum við einkasýningu hennar Lit-
lifun eða Chro-motion sem stendur til
11. mars. Aðgangur er ókeypis.
➜ Fyrirlestrar
13.15 Sigurður R. Helgason, fram-
kvæmdastjóri Nafnfræðifélagsins, flytur
erindi sem hann nefnir Helgi og dýrkun
steina og kletta á Íslandi á fræðslufundi
félagsins. Fundurinn verður haldinn í
stofu 106 í Odda. Allir velkomnir.
Sunnudagur 26. febrúar 2012
➜ Tónleikar
13.15 Hrólfur Sæmundsson baritón og
Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari
halda tónleika í tónleikaröðinni Klassík
í Hádeginu í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi. Flutt verður tónlist eftir
amerísku skáldin Samuel Barber og
Aaron Copland. Aðgangur er ókeypis.
Minningartónleikar um tónlistarmann-
inn Johnny Cash verða haldnir í Linda-
kirkju. Einsöngvarar verða Björgvin
Halldórsson, Regína Ósk og Svenni Þór,
Ingó Veðurguð og Arnar Ingi Ólafsson.
Óskar Einarsson tónlistarstjóri leikur
ásamt hljómsveit og stjórnar kór Linda-
kirkju. Á milli laga verða sagðar sögur af
Cash. Miðaverð er kr. 3.000.
➜ Félagsvist
14.00 Félagsvist verður spiluð í Breið-
firðingabúð, Faxafeni 14. Allir velkomnir.
19.00 Bridge, Tvímenningur, er spil-
aður í Breiðfirðingabúð Faxafeni 14. Allir
velkomnir.
➜ Kvikmyndir
15.00 Ballettinn Petrúshka við tónlist
eftir Igor Stravinsky verður sýndur í MÍR,
Hverfisgötu 105. Sýndar verða upp-
færslur tveggja af frægustu óperu- og
ballettleikhúsum Rússlands á þessu
fræga dansverki. Aðgangur er ókeypis.
22.00 Vikulegt þynnkubíó á skemmti-
staðnum Prikinu. Aðgangur ókeypis og
popp í boði.
➜ Uppákomur
15.00 Fiðlusmiðurinn Hans Jóhanns-
son segir frá aðkomu sinni að verk-
efnum og hugmyndavinnu hjá norsku
arkitektastofunni Snøghetta. Viðamikil
yfirlitssýning stofunnar stendur nú yfir
á Kjarvalsstöðum, og fer flutningurinn
fram þar.
20.00 Tómasarmessa verður haldin
í Breiðholtskirkju í Mjódd. Sérstakt
umfjöllunarefni messunnar að þessu
sinni verður Barátta við freistingar. Allir
velkomnir og aðgangur ókeypis.
➜ Dansleikir
20.00 Félag eldri borgara í Reykjavík
heldur dansleik í félagsheimili sínu,
Stangarhyl 4. Danshljómsveitin Klassík
leikur létta danstónlist. Aðgangseyrir er kr.
1.500, en kr. 1.300 fyrir félagsmenn FEB.
➜ Tónlist
16.00 Sveitadúettinn Pikknikk, skip-
aður þeim Sigríði Eyþórsdóttur og
Þorsteini Einarssyni, mun spila á Vetrar-
tónleikaröðinni í Merkigili. Merkigil er
heimili söngvaskáldanna Uni og Jóns
Tryggva, á Eyrarbakka. Aðgangur er
ókeypis en frjáls framlög eru vel þegin.
16.00 Tristano Project leikur jazztónlist
eftir píanistann Lennie Tristano í Nor-
ræna Húsinu. Haukur Gröndal, Ólafur
Jónsson, Agnar Magnússon, Þorgrímur
Jónsson og Scott McLemore skipa
bandið. Aðgangur er ókeypis.
16.00 Tríó Reynis Sigurðssonar leikur
jazz-skotið efni úr ýmsum áttum á Café
Haití.
➜ Leiðsögn
14.00 Harpa Árnadóttir myndlistarkona
mun veita leiðsögn um sýninguna
Handverk frú Magneu Þorkelsdóttur
sem nú stendur yfir í Þjóðminjasafni
Íslands. Leiðsögnin er ókeypis og allir
eru velkomnir.
➜ Fyrirlestrar
16.00 Jón Yngvi Jóhannsson flytur
fyrirlestur um samskipti Gunnars
Gunnarssonar og
Halldórs Laxness í
Gljúfrasteini. Fyrir-
lesturinn er liður í
Verki mánaðarins
sem í vetur er
í samstarfi við
Bókmennta- og
listfræðistofnun
Háskóla Íslands
undir yfirskriftinni Ferðafélagar.
Aðgangur er ókeypis og allir eru
velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
LA BOHÈME
GIACOMO PUCCINI
HULDA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR · GISSUR PÁLL GISSURARSON / ÞÓRA EINARSDÓTTIR · GARÐAR THÓR CORTES
ÁGÚST ÓLAFSSON · HRÓLFUR SÆMUNDSSON · JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON
HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR · BERGÞÓR PÁLSSON
HLJÓMSVEITARSTJÓRI: DANÍEL BJARNASON · LEIKSTJÓRI: JAMIE HAYES
LEIKMYND: WILL BOWEN · BÚNINGAR: FILIPPÍA ELÍSDÓTTIR · LÝSING: BJÖRN BERGSTEINN GUÐMUNDSSON
FÖSTUDAGINN 16. MARS KL. 20 - FRUMSÝNING
LAUGARDAGINN 17. MARS KL. 20 - 2. SÝNING
LAUGARDAGINN 31. MARS KL. 20 - 3. SÝNING
SUNNUDAGINN 1. APRÍL KL. 20 - 4. SÝNING
LAUGARDAGINN 14. APRÍL KL. 20 - 5. SÝNING
FÖSTUDAGINN 20. APRÍL KL. 20 - LOKASÝNING
MIÐASALA Í HÖRPU OG Á WWW.HARPA.IS
KYNNING Á LA BOHÈME
Á VEGUM VINAFÉLAGS ÍSLENSKU ÓPERUNNAR
KALDALÓNI Í HÖRPU ÞRIÐJUDAGINN 28. FEBRÚAR KL. 20:00 - 22:00
Gunnsteinn Ólafsson tónlistarmaður mun annast kynninguna.
Hulda Björk Garðarsdóttir og Gissur Páll Gissurarson, sem fara með hlutverk
Mimi og Rodolfo í La Bohème, munu segja frá hlutverkum sínum og
syngja atriði úr óperunni við undirleik Antoníu Hevesi.
Kynningin er einungis ætluð félagsmönnum Vinafélags Íslensku óperunnar.
Aðgangur er ókeypis.
Unnt er að skrá sig í Vinafélagið á staðnum og er félagsgjaldið 3.500 kr. á ári.
Vinafélagar njóta m.a. 10% afsláttar af miðum á almennar óperusýningar
á vegum Íslensku óperunnar.