Fréttablaðið - 25.02.2012, Qupperneq 102
25. febrúar 2012 LAUGARDAGUR66
sport@frettabladid.is
FULLTRÚAR ÍSLANDS á HM í frjálsíþróttum innanhúss verða hlaupararnir Trausti Stefánsson og Hrafnhild Eir
Hermóðsdóttir. Trausti hefur tvíbætt met sitt í 400 m hlaupi á árinu og Hrafnhild hefur ná góðum árangri í 60 m hlaupi.
Enginn Íslendingur náði lágmarki fyrir mótið og því þarf Alþjóðafrjálsíþróttasambandið að staðfesta þátttöku þeirra.
FÓTBOLTI Það verður stór stund í
lífi knattspyrnukappans Arons
Einars Gunnarssonar á morgun er
hann gengur út á sjálfan Wembley
ásamt félögum sínum í Cardiff
City. Þar mun Cardiff mæta stór-
liði Liverpool í úrslitaleik deildar-
bikarsins.
„Þetta er klárlega stærsti leik-
urinn á mínum ferli og ég ætla
að njóta þess að spila hann. Það
munu margir fylgjast með og fólk-
ið í Cardiff er mjög spennt. Það er
fjöldi manna mættur til þess að
kveðja okkur,“ sagði Aron Einar
við Fréttablaðið skömmu áður en
liðið hélt af stað til London í gær.
„Það er mjög fín stemning hjá
okkur. Það er ró yfir mannskapn-
um en tilhlökkun samt. Það verða
allir klárir á leikdegi,“ sagði Aron
en Cardiff er klárlega litla liðið í
leiknum. Hefur allt að vinna en
engu að tapa.
„Það er jákvætt að vera minna
liðið. Við þurfum ekkert að vera
stressaðir. Ég vona að við höfum
gaman af þessu og njótum þess að
spila leikinn. Það er ekki á hverj-
um degi sem menn spila úrslitaleik
á Wembley og ég tala nú ekki um
gegn liði eins og Liverpool. Það er
allt hægt í svona bikarúrslitaleik.“
Fjöldi Íslendinga verður á vell-
inum og þar af margir ættingja
Arons sem ætla ekki að missa af
þessari stóru stund í lífi hans.
„Það eru allir að koma að norð-
an. Vinir og ættingjar. Margir
vina minna halda með Liverpool
og það verður því enn sætara ef
við náum að skella þeim,“ sagði
Aron og hló dátt.
„Það verður algjör draumur að
labba inn á völlinn fyrir framan
tæplega 90 þúsund manns. Ég verð
örugglega með kúkinn í buxunum
fyrstu tvær mínútur leiksins en
svo fer það og ég fer að njóta leiks-
ins. Ég er alltaf smá tíma í gang í
stórleikjum.“ - hbg
Aron Einar Gunnarsson verður í eldlínunni með Cardiff á Wembley á morgun er það mætir Liverpool:
Klárlega stærsti leikurinn á mínum ferli
GRIMMUR Aron Einar mun líklega ekki
gefa neitt eftir á Wembley á morgun.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Leikmenn Íslands voru
líklega enn þá að átta sig á því á
hvort markið þeir ættu að sækja
þegar boltinn lá í netinu eftir
aðeins 94 sekúndur. Heimamenn
nýttu sér ábyrgðarleysi íslensku
leikmannanna í varnarleiknum
sem horfðu á Ryoichi Maeda skalla
knöttinn í netið.
Japanar réðu ferðinni í hálf-
leiknum en færin voru af skornum
skammti á báðum endum. Þó varði
Hannes Þór einu sinni af stuttu
færi eftir hornspyrnu.
Marki undir mættu íslensku
strákarnir ákveðnir til leiks í síð-
ari hálfleik. Þeir börðust líkt og
í fyrri hálfleiknum og komu sér
í betri stöður. Skelfileg holning á
varnarlínunni á 53. mínútu varð til
þess að Jungo Fujimoto slapp einn
í gegn og kláraði færið snyrtilega.
Þriðja markið kom rúmum tíu
mínútum fyrir leikslok þegar
Tomoaki Makinu skoraði af stuttu
færi, liggjandi á bakinu.
Arnór Smárason, líflegasti leik-
maður Íslands í leiknum, lagaði
stöðuna með marki úr vítaspyrnu
í viðbótartíma.
Hafa verður í huga að þótt bæði
lið hafi verið vængbrotin voru
fleiri lykilmenn fjarri góðu gamni
hjá Íslandi. Til marks um það var
Hallgrímur Jónasson sá eini sem
byrjaði líka í síðasta landsleik
Íslands en fjórir Japanar voru í
sigurliði þeirra gegn Dönum á
HM 2010. Ekki var að marka
mikla breytingu á leik Íslands frá
síðustu árum. Líkt og undir stjórn
Ólafs Jóhannessonar var ýmislegt
jákvætt í leik liðsins en úrslitin
vonbrigði.
„Við vorum frekar sofandi í
upphafi leiksins. Fengum á okkur
skyndisókn eftir aukaspyrnu og
hefðum aldrei átt að leyfa þeim
að skora. Svona gerist stundum
í fótbolta en þetta var alls engin
draumabyrjun,“ sagði landsliðs-
þjálfarinn Lars Lagerbäck við
Fréttablaðið eftir leikinn. „Ég er
sérstaklega ósáttur við fyrstu 25
mínútur leiksins því við vorum
allt of rólegir og værukærir í
okkar aðgerðum. Við vorum ekki
að verjast vel og misstum svo bolt-
ann nánast um leið og við náðum
honum,“ sagði Svíinn en honum
fannst íslenska liðið vinna sig
ágætlega inn í leikinn.
„Smám saman lagaðist okkar
leikur og mér fannst strákarnar
spila ágætlega. Ég er samt fyrst
og fremst ánægður að hafa feng-
ið þennan leik. Það var gott fyrir
leikmennina að spila á erfiðum
útivelli fyrir framan fullt af fólki.
Liðið vantar svona reynslu. Okkar
vegferð hófst núna í Japan og von-
andi endar hún á góðum stað.“
Voru einhverjir leikmenn í
íslenska liðinu sem Lagerbäck
fannst standa upp úr í þessum
leik?
„Mér fannst Hannes standa sig
vel í markinu í fyrri hálfleik. Eftir
að hafa fengið á sig mark strax í
upphafi þá lét hann það ekki koma
sér úr jafnvægi. Hann var mjög
öruggur í öllum sínum aðgerðum
og gerði engin mistök. Hann sýndi
að hann býr yfir miklum andleg-
um styrk,“ sagði þjálfarinn og
hrósaði fleirum.
„Flestir leikmenn mættu til
leiks með rétt hugarfar og lögðu
sig alla fram. Helgi fyrirliði átti
mjög góðan leik og var alltaf að.
Hann keyrði liðið áfram allan tím-
ann.“
Lagerbäck segir að þessi ferð til
Japan hafi verið jákvæð byrjun á
hans landsliðsþjálfaraferli.
„Auðvitað var fúlt að tapa og
mér líkar það alls ekki. Bæði ég
og liðið náum að læra með því að
fara í svona leiki. Vonandi verður
stígandi hjá okkur í framhaldinu.
Ég er því ánægður með ferðina,
ekki úrslitin og tel að við hefðum
getað spilað aðeins betur.“ - ktd, hbg
NÝR ÞJÁLFARI EN SAMA ÚTKOMA
Frumraun íslenska landsliðsins í knattspyrnu undir stjórn Lars Lagerbäck gegn Japan lauk með 3-1 tapi.
Líkt og svo oft áður var ljósa punkta að finna í leik íslenska liðsins en úrslitin voru vonbrigði.
BASL Miðverðirnir Hjálmar Jónsson og Hallgrímur Jónasson náðu ekki nógu vel saman fyrir miðri vörn liðsins. NORDIC PHOTOS/AFP
MMA Íslendingar fá loksins að
fylgjast með einum umtalaðasta
íþróttamanni þjóðarinnar, Gunn-
ari Nelson, í beinni útsendingu í
kvöld.
Gunnar keppir þá í blönduðum
bardagaíþróttum, MMA, í Dublin
á Írlandi. Gunnar mætir Alexand-
er Butenko sem er sagður gríðar-
sterkur og helsta von Austur-
blokkarinnar í MMA.
Til stóð að Árni Ísaksson
myndi einnig berjast í kvöld en
andstæðingur hans dró sig úr
keppni þannig að Gunnar sér
einn um að halda uppi heiðri
Íslands í Dublin.
Stöð 2 Sport sýnir beint frá
bardögum kvöldsins og hefst
útsending klukkan 21.30.
Blandaðar bardagaíþróttir:
Gunnar í
beinni í kvöld
TILBÚINN Gunnar er í toppformi og klár
í slaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Það fer fram afar áhuga-
verður handboltaleikur í Kaup-
mannahöfn á morgun þegar Íslend-
ingaliðin AG og Kiel mætast.
Þetta er lokaleikur liðanna í D-
riðli en Kiel er í efsta sæti rið-
ilsins með einu stigi meira en
AG. Þetta er því hreinn úrslita-
leikur um efsta sætið í riðl-
inum.
Það er löngu orðið
uppselt á leikinn sem
fram fer í Boozt.com-
höllinni en forráða-
menn AG segja að
þeir hefðu vel getað
fyllt Parken hefðu þeir farið með
leikinn þangað.
Arnór Atlason, Ólafur Stefáns-
son, Guðjón Valur Sigurðsson og
Snorri Steinn Guðjónsson verða
allir í liði AG og Aron Pálmarsson
verður með Kiel sem Alfreð Gísla-
son þjálfar.
Leikurinn hefst
klukkan 16.00 og
er í beinni útsend-
ingu á Sporttv.is. - hbg
Stórleikur hjá AG og Kiel í Meistaradeildinni:
Úrslitaleikur í Köben
ARON PÁLMARSSON Mætir fjórum
félögum úr landsliðinu í Köben í
dag. NORDIC PHOTOS/BONGARTS
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
85
36
0
2/
12
Lægra
verð
í Lyfju
Voltaren dolo 25 mg
15%
afsláttur
Tilboðið gildir til 5. mars.
Iceland Express-deild karla
Valur - Tindastóll 61-74 (36-39)
Stig Vals: Marvin Jackson 18/14 fráköst, Birgir
Björn Pétursson 14, Kristinn Ólafsson 13, Hamid
Dicko 4, Alexander Dungal 4, Snorri Þorvaldsson
4, Ragnar Gylfason 2, Benedikt Blöndal 2.
Stig Tindastóls: Friðrik Hreinsson 19, Curtis
Allen 15/10 fráköst, Þröstur Leó Jóhannsson 14,
Svavar Atli Birgisson 8, Igor Tratnik 8, Maurice
Miller 6, Helgi Freyr margeirsson 2, Helgi Rafn
Viggósson 2.
Þór Þorl. - Keflavík 75-65 (42-30)
Stig Þórs: Darrin Govens 22, Blagoj Janev 21,
Matthew Hairston 15/20 fráköst, Guðmundur
Jónsson 10, Darri Hilmarsson 7.
Stig Keflavíkur: Jarryd Cole 24, Charles Parker
15/10 fráköst, Kristoffer Douse 9, Magnús Þór
Gunnarsson 6, Halldór Örn Halldórsson 6, Valur
Orri Valsson 3, Arnar Freyr Jónsson 2.
KR - Fjölnir 106-82
STAÐAN
Grindavík 17 16 1 1554-1334 32
Stjarnan 17 11 6 1495-1411 22
Þór Þorl. 17 11 6 1440-1361 22
KR 17 11 6 1510-1554 22
Keflavík 17 11 6 1522-1408 22
Snæfell 17 9 8 1587-1504 18
Tindastóll 17 8 9 1444-1504 16
Njarðvík 17 8 9 1452-1455 16
Fjölnir 17 6 12 1448-1533 14
ÍR 17 6 11 1479-1570 12
Haukar 17 4 13 1322-1425 8
Valur 17 0 17 1275-1569 0
ÚRSLIT