Fréttablaðið - 25.02.2012, Page 103

Fréttablaðið - 25.02.2012, Page 103
LAUGARDAGUR 25. febrúar 2012 67 HANDBOLTI Topplið N1-deildarinn- ar, Haukar, mæta Fram í úrslita- leik Eimskipsbikars karla sem hefst klukkan 16.00 í dag. Liðin eru búin að mætast þrisvar í vetur og hafa Haukar unnið í tvígang. Liðin mættust í deildinni fyrir stuttu síðan og þá unnu Haukar örugglega og héldu Fram í sex mörkum í fyrri hálfleik. „Við verðum að vera sterk- ir í sókninni og höfum verið að vinna markvisst í því að styrkja hana. Við erum að mæta öflugu liði sem er stöðugt. Við erum líka góðir og ætlum að selja okkur dýrt,“ sagði Einar Jónsson, þjálf- ari Fram. „Haukar gera fá mistök og við verðum að finna ráð til þess að stöðva þá. Við höfum verið að vinna í því og mætum ákveðnir og bjartsýnir til leiks.“ Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, talar varlega fyrir leik. „Þó svo við séum efstir þá er Fram-liðið afar vel mannað og öflugt. Okkar styrkur er vissu- lega vörn, markvarsla og hraða- upphlaup. Við þurfum svo að vera agaðir í sókninni,“ sagði Aron og bendir á að þó hans menn hafi komið á óvart í vetur, spilað vel og séu efstir hafi liðið ekki enn unnið neitt. „Við erum margir hverjir óreyndir og þurfum að vera með báða fætur á jörðinni. Staðan í deildinni gefur okkur ekkert í þessum leik.“ Haukar lögðu granna sína í FH örugglega í undanúrslitum keppn- innar þar sem FH skoraði aðeins fjórtán mörk og þar af fjögur í síð- ari hálfleik. Fram vann á sama tíma drama- tískan sigur á HK þar sem sigur- markið kom beint úr aukakasti er leiktíminn var liðinn. - hbg Fram þarf að komast fram hjá varnarmúr Hauka til að eiga möguleika í dag: Höfum unnið vel í sóknarleiknum HVER FÆR BIKARINN? Fyrirliðarnir Birkir Ívar úr Haukum og Halldór Jóhann frá Fram bítast hér um bikarinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HANDBOLTI Hið spræka lið ÍBV fær það verðuga verkefni að tak- ast á við hið ógnarsterka lið Vals í úrslitum Eimskipsbikars kvenna en leikurinn hefst klukkan 13.30. Það er valinn maður í hverju rúmi í liði Vals en ÍBV hefur verið að sækja í sig veðrið í vetur og mun örugglega selja sig dýrt í Höllinni í dag. „Við höfum lent í vandræð- um með þær í tvígang í vetur en erum að nálgast þær þannig að þetta verður hörkuleikur,“ sagði Ester Óskarsdóttir, fyrirliði ÍBV, borubrött fyrir leik. „Útlendingarnir í okkar liði styrkja okkur mikið. Það var ekk- ert annað í stöðunni en að fá þær. Valskonur hafa meiri reynslu en við og við þurfum að passa upp á spennustigið. Þetta er nánast landsliðið samt á móti ÍBV enda átta landsliðsmenn í Val á meðan við eigum einn leikmann sem hefur spilað með landsliðinu. Það er samt allt hægt í bikar og það vitum við.“ Hrafnhildur Skúladóttir, fyrir- liði Vals, veit sem er að þeim er spáð öruggum sigri. „Mér finnst við vera með besta liðið og við töpum sjaldan. Við förum inn sem stóra liðið en þetta er bikarleikur og við ætlum okkur að vinna,“ sagði Hrafnhild- ur sem á von á sterku liði ÍBV. „ÍBV hefur verið að styrkja sig og eru sterkari. Við vitum að þetta verður erfiður leikur og við verðum að vera tilbúnar.“ - hbg Eimskipsbikar kvenna: Valskonur sig- urstranglegri FYRIRLIÐAR Annað hvort Hrafnhildur Skúladóttir Val eða Ester Óskarsdóttir ÍBV lyftir bikarnum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 2 fyrir 1 Lambakjöt og bernaise í febrúar. Nýbýlavegi 32 www.supersub.is VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 OKKAR MAÐUR CAGE CONTENDER Á LAUGARDAG KL. 21.30 GUNNAR NELSON VS ALEXANDER BUTENKO CARDIFF CITY MÆTIR LIVERPOOL Í ÚRSLITALEIKNUM UM ENSKA DEILDABIKARINN KL. 15.45 Á SUNNUDAG. ER SEX ÁRA BIÐ RAUÐA HERSINS EFTIR TITLI Á ENDA? ARON EINAR VS GERRARD 216 KR. Á DAG Stöð 2 Sport og fylgistöðvar KAUPTU ÁSKRIFT Á STOD2.IS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.