Fréttablaðið - 10.03.2012, Page 37
Kynningarblað Te og virkni þess, matardagbók,
smáréttir og smurbrauð, uppskriftir og fróðleikur.
HEILSA
LAUGARDAGUR 10. MARS 2012
&NÆRING
HOT YOGAZUMBA
Seltjarnarnes
Egilshöll
Kringlan
Ögurhvarf
MosfellsbærSpöngin
Kynntu þér glæsilegt úrval opinna hóptíma á worldclass.is
ÓKEYPIS ZUMBA TÍMAR Á 7 STÖÐUM
FYRIR VIÐSKIPTAVINI WORLD CLASS
Laugar
ÓKEYPIS HOT YOGA TÍMAR Á 3 STÖÐUM
FYRIR VIÐSKIPTAVINI WORLD CLASS
Seltjarnarnes
Egilshöll
Laugar
Hvítt te er minnst unnið. Það þykir hafa mikla yfirburði
yfir önnur te en tínsla laufanna fer fram á vorin áður en
þau hafa náð fullum þroska. Óþroskuð laufin eru þakin
örfínum hvítum þráðum. Eftir tínslu eru þau gufusoðin
og þurrkuð. Hvítt te er dýrara en önnur te enda talið allt
að þrisvar sinnum virkara en grænt te. Bragðið er sætt
en hefur samt sem áður mildan kryddkeim og eru mat-
reiðslumenn víða um heim farnir að nota það í matar-
gerð, bragðsins vegna.
Grænt te er unnið þannig að telaufin eru gufusoðin
og þurrkuð fljótlega eftir tínslu. Það hefur verið mjög
vinsælt á Vesturlöndum síðustu ár en Kínverjar hafa
drukkið það frá fornu fari. Grænt te er ríkt af andoxun-
arefnum og er talið styrkja ónæmiskerfið. Rannsóknir
gefa til kynna að með neyslu á grænu tei megi draga úr
hættunni á krabbameini og hjarta- og æðasjúkdómum.
Grænt te innheldur mun meira koffín en svart.
Svart te er unnið þannig að telaufin eru látin gerjast og
dökkna áður en þau eru þurrkuð. Það er söluhæsta teið
á Vesturlöndum.
Oolong-te er lítið þekkt í Evrópu. Neysla þess er hins
vegar umtalsverð í Kína og Taívan. Telaufin eru einung-
is látin hálfgerjast áður en þau eru þurrkuð.
Jurtate eru unnin úr jurtum og innihalda ekkert koff-
ín enda koma telaufin hvergi við sögu. Jurtirnar eru þó
taldar hafa mismunandi virkni. Jurtate er oft merkt með
orðinu „infusion“ til aðgreiningar frá tei úr telaufum. Al-
geng jurtate hér eru kamillute, engiferte, pipar myntute
og fennelte. Jurtum er oft blandað saman við hefðbund-
ið te en þá er ekki um eiginlegt jurtate að ræða. Te er
gjarnan bragðbætt með sítrusávöxtum og ýmsum berj-
um.
Heimildir: natturan.is, heilsubankinn.is, lyfja.is
Virkni í kroppinn
Te er sá drykkur sem hvað mest er drukkið af í heiminum á eftir vatni. Til eru fjórar
megintegundir af tei en vinnsla telaufanna ákvarðar flokkunina. Telaufin innihalda
koffín en magnið er mismikið eftir vinnsluaðferðum. Jurtate inniheldur ekki koffín.
Jurtirnar eru þó margar hverjar taldar hafa ákveðna virkni.
Jurtate hafa ýmsa virkni. Fennelte er meðal annars talið hjálpa til við meltinguna eftir þunga máltíð. Það er auk þess talið hafa
þvagræsandi áhrif og er konum með blöðrubólgu ráðlagt að drekka það.
Kanilte er nokkuð útbreitt. Það er
einstaklega bragðgott og talið örva
blóðrásina, draga úr kvefeinkennum
og óþægindum í maga.
Kamillute er talið róandi og slakandi
og er fólki gjarnan ráðlagt að drekka
það fyrir svefninn og til að slá á
streitu og kvíða. Það er einnig talið
styrkjandi fyrir meltinguna og þykir
gott eftir saðsaman kvöldverð.
Margir drekka te þegar kvef og
aðrar pestir sækja að enda gott að
fá eitthvað heitt í hálsinn og hita
í kroppinn. Algengt er að kreista
sítrónusneið út í alls kyns te. Þannig
má næla sér í auka vítamínskammt
auk þess sem sítrónan er frískandi.
Eins finnst mörgum gott að
bragðbæta tebollann með hunangi
og sumir hella mjólkurslettu út í til
að gefa því meiri fyllingu.
Engiferte er talið róa meltinguna. Það
hitar líkamann og losar um ógleði,
en engifer hefur löngum verið notað
gegn ógleði og ferðaveiki. Það er
einnig notað til að lina kvefeinkenni
eins og höfuðverk og hálsbólgu.
Ólíkar vinnsluaðferðir
telaufanna ákvarða
hvernig te er flokkað.
Piparmyntute er hressandi og
hjálpar til við meltingu. Það þykir
einnig losa um kvef og stíflað nef.