Fréttablaðið - 10.03.2012, Page 54
10. mars 2012 LAUGARDAGUR
Hjallastefnan auglýsir til umsóknar stöður
leik- og grunnskólakennara í skólum
sínum fyrir haustið 2012
Hægt er að sækja um starf á vef Hjallastefnunnar, www.hjalli.
is eða á heimsíðum viðkomandi skóla. Fyrirspurnir og frekari
upplýsingar fást með því að senda tölvupóst á netfangið
starf@hjalli.is eða skólastjóra þess skóla þar sem sótt er um.
Hjallastefnan rekur 13 skóla, tíu leikskóla
og þrjá grunnskóla, í Reykjanesbæ,
Hafnarfirði, Garðabæ, Reykjavík,
Borgarbyggð og á Akureyri.
Bílastjarnan Kar ehf.
Óskum eftir að ráða bifreiðasmið á réttingaverk-
stæði okkar að Bæjarflöt 10 Grafarvogi.
Bílastjarnan er rótgróði fyrirtæki sem leggur metnað
í fagleg og vönduð vinnubrögð, öll starfsaðstaða er
eins og best verður á kosið.
Viðkomandi þarf að vera lærður Bifreiðasmiður eða
með mikla reynslu í faginu, vera stundvís, samvisku-
samur, geta starfað sjálfstætt.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Guðmundsson í síma
5678686 eða helgi@kar.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Deildarlæknir fær víðtæka þjálfun í lækningum og endurhæfingu
sjúklinga í kjölfar bráðainnlagnar á Landspítala. Starfið fer aðallega fram á
sólarhringsdeild en einnig á dagdeild og göngudeild.
Hæfnikröfur
» Almennt lækningaleyfi
» Vilji til þátttöku í áframhaldandi þróun í endurhæfingarlækningum
» Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2012. Starfshlutfall er 100% og
veitist starfið frá 1. apríl 2012 eða eftir samkomulagi.
» Upplýsingar veita yfirlæknarnir Stefán Yngvason, stefanyn@landspitali.is,
sími 543 9107 og Gísli Einarsson, gisliein@landspitali.is, sími 543 1000.
» Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og
lækningaleyfi. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um
ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
» Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Stefáni
Yngvasyni, yfirlækni, LSH Endurhæfingardeild , Grensási við Álmgerði, 108
Reykjavík.
Deildarlæknir
Endurhæfingarlækningar
Laust er til umsóknar starf deildarlæknis í endurhæfingarlækningum á
endurhæfingardeildinni á Grensási í 6-12 mánuði.
Á deildinni eru fjölbreyttum endurhæfingarverkefnum sinnt með áherslu
á endurhæfingu í kjölfar meðferðar á bráðadeildum spítalans, svo sem
heilablóðfalla, heilaskaða, mænuskaða, fjöláverka, missi útlims, ýmissa
alvarlegra veikinda og langvinnra tauga- og vöðvasjúkdóma.
Starfið getur nýst sem hluti af sérnámi í endurhæfingarlækningum en eftir
atvikum einnig í námi í öðrum sérgreinum, svo sem lyf-, tauga-, öldrunar-
eða heimilislækningum. Þá hentar starfið vel þeim sérfræðilæknum sem
vilja auka þekkingu sína og reynslu á vettvangi endurhæfingar. Fjölbreytt
teymisvinna með góðu fagfólki. Í boði er góð starfsaðstaða og þátttaka í
vísindarannsóknum.
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um
starf rafrænt á heimasíðu Landspítala, www.landspitali.is, undir „laus störf“. Tekið er mið af
jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Landspítali er reyklaus vinnustaður
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Helstu verkefni og ábyrgð
» Starfið felst í klínískri vinnu á bráðamóttöku, legu- og göngudeildum
skurðlækningasviðs auk vaktaskyldu
» Þátttaka í kennslu- og fræðslustarfi sérgreina
» Þátttaka í vísindavinnu
» Handleiðsla og kennsla kandídata og læknanema
Hæfnikröfur
» Almennt lækningaleyfi
» Færni í mannlegum samskiptum
» Öguð vinnubrögð
» Íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2012.
» Upplýsingar veita Guðjón Birgisson, yfirlæknir og Davíð Þór Þorsteinsson,
umsjónardeildarlæknir, davidtho@landspitali.is, sími 543 1000.
» Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og
lækningaleyfi. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um
ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
» Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast LSH
skrifstofu framkvæmdastjóra skurðlækningasviðs 13A við Hringbraut.
Skurðlækningasvið
Læknar í starfsnámi
Laus eru til umsóknar störf lækna í starfsnámi á skurðlækningasviði
Landspítala. Starfshlutfall er 100% og veitast störfin til tveggja ára eða
samkvæmt samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í
sumar eða samkvæmt samkomulagi. Starfsnámið nýtist til framhaldsnáms
í sérgreinum skurðlækninga.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um
starf rafrænt á heimasíðu Landspítala, www.landspitali.is, undir „laus störf“. Tekið er mið af
jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Landspítali er reyklaus vinnustaður
Vör Sjávarrannsóknarsetur við Breiðafjörð auglýsir starf forstöðumanns
Varar laust til umsóknar.
Rannsóknarsetrið var stofnað í maí árið 2006 og er markmið þess að
rannsaka vistkerfi sjávar í víðasta skilningi, með megináherslur á
vistkerfið í Breiðafirði, í þeim tilgangi að auka þekkingu á vistkerfinu og
auka arðsemi auðlindarinnar.
Forstöðumaður setursins stundar rannsóknir á framangreindum sviðum
eða öðrum sviðum tengdum vistkerfi sjávar, mótar stefnu setursins í
samvinnu við stjórn, auk þess að hafa umsjón með daglegum rekstri
þ.m.t, umsjón með fjáröflun og samræma fjáröflunarleiðir. Forstöðumaður
ber ábyrgð gagnvart stjórn setursins.
Krafist er doktorsprófs frá viðurkenndum háskóla eða jafngildi þess.
Sjálfstæði, frumkvæði, metnaður í starfi og lipurð í mannlegum
samskiptum er nauðsyn.
Æskilegt er að umsækjendur
geti hafið störf sem fyrst.
Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf berist
Vör Sjávarrannsóknarsetri við Breiðafjörð, Norðurtanga, 355 Snæfellsbæ
eða á netfangið: tyrol@simnet.is
Allar nánari upplýsingar um starfið gefur Örvar Marteinsson, GSM: 863-5026.
Umsóknarfrestur er 19. mars, 2012.
FORSTÖÐUMAÐUR
Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar
Okkur vantar hjúkrunarfræðing til starfa
við heimahjúkrun og á heilsugæslusviði
Tímabil: júní-júlí og ágúst. Starfshlutfall samkomulag
Ljósmæður
Staða ljósmóður í mæðra- og ungbarnavernd er laus
í júlí í 3-4 vikur vegna sumarleyfa
Starfshlutfall samkomulag
Sjúkraliðar
Sjúkraliða vantar í heimahjúkrun í júní, júlí og ágúst
Starfshlutfall samkomulag.
Umsóknarfrestur til 20.mars. Öllum umsóknum
verður svarað.
Sjá nánar á heimasíðu HS: www.hskrokur.is
Allar nánari upplýsingar veitir Herdís Klausen
framkvæmdastjóri hjúkrunar
Í síma 455 4011/ netfang: herdis@hskrokur.is
Hægt að sækja um rafrænt: www.hskrokur.is
Útgerðarfélag Akureyringa auglýsir eftir starfsmanni til að sinna viðhaldi vinnslutækja í landvinnslu félagsins á Akureyri.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af viðhaldi véla og tækja.
Þekking á Baader-flökunarvélum er kostur.
Iðnmenntun er æskileg en reynsla og þekking er mikilsmetin.
Snyrtimennska og sjálfstæð vinnubrögð skilyrði.
Tölvukunnátta æskileg.
Skriflegar umsóknir ásamt ferilskrá berist Samherja hf. Glerárgötu 30,
600 Akureyri, merktar Anna María Kristinsdóttir eða á netfangið anna@samherji.is.
Útgerðarfélag Akureyringa er í eigu Samherja hf. Samherji hf. er alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð með víðtæka starfsemi víðsvegar um heim.
Samherji hefur á að skipa hæfu og framtaksömu starfsfólki og stjórnendum, öflugum skipastól, umtalsverðum aflaheimildum og fullkomnum verksmiðjum
í landi. Samherji rekur eigið sölufyrirtæki sem er í viðskiptum um allan heim.
Starfsmaður
í viðhald fiskvinnsluvéla