Fréttablaðið - 10.03.2012, Page 68

Fréttablaðið - 10.03.2012, Page 68
KYNNING − AUGLÝSINGHeilsa & næring LAUGARDAGUR 10. MARS 20124 Ég signdi yfir súpuna,“ svarar séra Aðalsteinn kampakát-ur þegar hann er inntur eftir galdri að baki verðlaunasúpunni. „Guð var því sannarlega í súp- unni enda hef ég þá trú að allt sem maður tekur sér fyrir hend- ur með gleði í hjarta og Guð sér við hlið geti ekki orðið annað en skemmtilegt og gott,“ segir séra Aðalsteinn sem fékk góða hjálp eiginkonu sinnar, Línu Hrannar Þorkelsdóttur táknmálstúlks, við súpugerðina. „Við höfum þetta þannig að ég stjórna matseldinni og Aðalsteinn brytjar, saxar og hrærir,“ útskýrir hún hláturmild, en þau hjón hafa tekið þátt í fiskréttakeppni North- ern Wave frá upphafi og ávallt með nýrri uppskrift. „Í þetta sinn notuðum við grunnuppskrift úr matreiðslu- bók, en bættum svo út í og smökk- uðum þar til við urðum ánægð og gátum drifið okkur með súpusull- ið til keppni,“ segir Lína og hlær. Séra Aðalsteinn segir þó mestu ánægjuna felast í þátttöku í sjálfri hátíðinni, en þess má geta að út- gerðarfyrirtæki í Grundarfirði gefa fiskmeti til keppninnar. „Stuttmyndahátíðin og fisk- réttakeppnin eru frábært framtak og kærkomið krydd í tilveruna á vetrarmánuðum. Grundarfjörð- ur er líka einstaklega opið samfé- lag og samkoman því eins og fín- asta kokteilboð til að sýna sig og sjá aðra,“ segir séra Aðalsteinn. En náði hann að metta 5.000 með fisk sínum eins og Kristur? „Nei, meistarinn var enda ekki með fiskisúpu, heldur tvo fiska og fimm brauð, en tugir fengu að smakka á verðlaunasúpunni.“ - þlg FÆÐA FORNMANNA Chia-fræ hafa notið mikilla vinsælda meðal heilsumeðvitaðra undanfar- ið. Chia-fræin eru rík af næringar- og andoxunarefnum. Þau eru prótínrík og innihalda allt að 30 g af prótíni í hverjum 100 g. Þau eru einnig rík af omega 3 og 6 fitusýrum. Þá eru einnig í þeim kalk, járn, magnesíum, fosfór og trefjar. Chia-fræin geta allt að tólffaldað þyngd sína ef þau eru látin liggja í vatni í dálitla stund, þau bólgna út og eru seðjandi og gefa mikla saðn- ingu. Fræin eru bragðlítil og því er lítið mál að dreifa þeim yfir annan mat, til dæmis hafragrautinn á morgnana. Saga chia-fræsins nær langt aftur í tímann, eða allt til 3.500 fyrir Krist en þau eru talin hafa verið mikilvægur hluti af fæðu Maya og Asteka. MATARDAGBÓK GEFUR YFIRSÝN Hollt mataræði er ekki síður mikilvægt en hreyfing þegar losna á við aukakílóin. Þeir sem hafa því lítinn tíma aflögu til að fara í ræktina geta náð góðum árangri með því að taka mataræðið rækilega í gegn. Þá er ráð að nýta hvert tækifæri sem gefst til hreyfingar, svo sem að hlaupa upp tröppur sem verða á vegi þínum og leggja bílnum langt frá innganginum. En til að ná böndum á neyslu óæskilegra hitaeininga er ráð að skrifa niður allt sem fer ofan í þig á hverjum degi í viku til tíu daga. Þannig færðu yfirsýn yfir það sem þú borðar. Byrjaðu svo hægt en örugglega að taka út óæskilegar hitaeiningar og búðu til matseðil til að fara eftir. Leitaðu ráðlegg- inga næringarfræðings ef þú vilt tryggja að þú fáir öll nauðsynleg næringarefni hvern dag. Guð í fiskisúpunni Aðalsteinn Þorvaldsson, sóknarprestur í Grundarfirði, eldaði með eiginkonu sinni guðdómlega fiskisúpu til fyrstu verðlauna í harðri samkeppni um bestu fiskisúpuna á stuttmyndahátíðinni Northern Wave. Hjónin fluttu á Snæfells- nes þegar Aðalsteinn vígðist til prests í Grundarfjarðarkirkju 2008. Þar búa þau með tveimur börnum og ketti, enda segir presturinn að engin tíu ár taki að verða Grundfirðingur; það gerist samdægurs, um leið og fólk flytji í bæinn. 1 kíló ýsa eða þorskur 700 g rækjur 3 laukar, smátt skornir 350 g gulrætur, skornar í sneiðar 15 hvítlauksgeirar, smátt skornir 2 rauðir chilipipar, kjarnhreinsaðir og saxaðir smátt 1 rauð paprika, smátt skorin 250 g sveppir, skornir í bita ólífuolía 2 dósir (400 ml) tómatar með oregano, hvítlauk og basilíku. 1 dós (400 ml) tómatar, maukaðir með töfra- sprota. 4 msk. fersk basilíka 600 ml vatn 1 grænmetis- teningur 2 fiskiteningar 6 dl kókosmjólk ½ l rjómi 2 msk. sweet mangó chutney 400 g smurostur með rækjum 3 dl mysa 4 msk. púrtvín 1 hálfdós kurlaður ananas ásamt safa 2 tsk. paprikuduft 1 tsk. oregano 1 tsk. cayenne-pipar salt og svartur pipar eftir smekk Brúnið í potti í ólífuolíu lauk, gul- rætur, hvítlauk, chilipipar, papriku og sveppi. Setjið því næst vatn, teninga, tómata, kókosmjólk og rjóma út í pottinn og hitið að suðu. Bætið þá mangó chutney, smurosti, mysu, púrtvíni, ananas og kryddi út í súpuna og látið malla í 25 mínútur. Skerið fisk í munnbita og látið malla með súpunni í 4 mínútur. Takið þá pottinn af hellunni, bætið rækjum saman við og látið bíða í 5 til 8 mínútur. GUÐDÓMLEGA FISKISÚPAN fyrir 10 til 12 manns Hjónin Aðalsteinn Þorvaldsson og Lína Hrönn Þorkelsdóttir hafa tekið þátt í fiskrétta- keppni Northern Wave frá upphafi. Þau sigruðu í ár með uppskrift að fiskisúpu. Námskeið í ræktun mat- og kryddjurta Skráning og upplýsingar í síma 578 4800 og á www.rit.is Matjurtaræktun, tvö kvöld - mánudagana 12. og 19. mars kl. 19:30 - 22:00. Verð kr. 12.800.- Kryddjurtaræktun - fimmtud. 12. mars kl. 17:00 - 19:00. Verð kr. 4.500.- Leiðbeinendur: Auður I Ottesen og Jón Guðmundsson Staðsetning námskeiða: Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Íþróttamiðstöðin í Laugardal, hús 2, 3 hæð, Engjavegi 6. Námskeið í ræktun ávaxtatrjáa og berjarunna Skráning og upplýsingar í síma 578 4800 og á www.rit.is Ræktun ávaxtatrjáa, 2 kvöld - fimmtudagana 15. mars og 22. mars kl. 19:30 - 22:00. Verð kr. 12.800.- Ræktun berjarunna - fimmtud. 15. mars kl. 17:00 - 19:00. Verð kr. 4.500.- Leiðbeinandi: Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur Staðsetning námskeiða: Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Íþróttamiðstöðin í Laugardal, hús 2, 3 hæð, Engjavegi 6. alla sunnudaga klukkan 16. Njótið vel Hemmi Gunn – og svaraðu nú! Fjölbreyttur og fjörugur þáttur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.