Fréttablaðið - 17.03.2012, Page 6

Fréttablaðið - 17.03.2012, Page 6
17. mars 2012 LAUGARDAGUR6 Það voru engin ráð fyrir- sjáanleg til bjargar, hvorki hér á landi né erlendis. Andri Árnason sagði varla von til þess að forsætisráðherra Íslands hefði kunnað leiðir til að sjá kreppuna fyrir og bregðast við henni þegar hún hafi komið erlendum sérfræðingum í opna skjöldu. Það er ekki hægt að skipa mönnum í sjálfsmorð. Andri sagði stjórnvöld ekki hafa haft neinar heimildir til að skipa bönkunum að selja eignir. Fullyrðingar ákæruvaldsins um að hægt sé að flytja banka milli landa eða selja eignir með því að ýta á takka eru auðvitað fráleitar. Andri sagði að meira hafi þurft til en viljann til að flytja Kaupþing úr landi. Maður veltir fyrir sér, hvað hélt byggingariðnaðurinn að hann gæti framleitt mikið af íbúðum á ári án tillits til þess hversu margir gætu keypt? Andri sagði að líta yrði fram hjá óbeinu tjóni af völdum hrunsins, enda ómögulegt að segja til um hvað hafi valdið því tjóni. Geir H. Haarde fyrir Landsdómi – dagur 9 Brjánn Jónasson brjann@frettabladid.is NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN – VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI Mannréttindaákvæði stjórnar skrárinnar koma í veg fyrir að Geir H. Haarde verði gerð refsing vegna Landsdómsmálsins vegna óljósra heimilda í lögum, sagði verjandi Geirs í gær. Hann gagnrýndi sak sóknara fyrir að sýna ekki fram á hvað Geir hefði átt að gera og hverju það hefði breytt. Heimildir til að refsa Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætis- ráðherra, fyrir þau ákæruatriði sem fjallað hefur verið um fyrir Landsdómi eru svo óljósar og mats kenndar að þær brjóta gegn mannréttindaákvæðum stjórnar- skrárinnar og mannréttindasátt- mála Evrópu. Þetta fullyrti Andri Árnason, verjandi Geirs, í mál- flutningi sínum fyrir Landsdómi í gær. Í gær lauk tveggja vikna aðal- meðferð málsins í Þjóðmenningar- húsinu með munnlegum mál- flutningi Andra. Málið var að því loknu dómtekið. Ekki er sagt fyrir um hversu langan tíma dómstóllinn hefur til að kveða upp dóm í lögum, en búist er við því að dómur falli um eða eftir miðjan apríl. Andri sagði allt rangt sem Geir sé sakaður um í ákæru sak sóknara Alþingis og að saksóknara hafi ekki tekist að sanna að Geir hafi á nokkurn hátt brotið gegn lögum í starfi sínu sem forsætisráðherra. Þrjú skilyrði verður að upp- fylla til að sannað þyki að Geir hafi gerst brotlegur við lög og sak- sóknaranum tókst ekki að uppfylla neitt þeirra, sagði Andri. Þannig hafi ekki verið sýnt fram á að sú hætta hafi verið til staðar sem ógnað hafi heill íslenska ríkisins. Ekki hafi verið sýnt fram á að slík hætta hafi verið fyrir- sjáan leg. Þaðan af síður hafi verið sýnt fram á að Geir hafi ekki gert allt sem í hans valdi stóð til að afstýra hættunni eða takmarka tjón af hennar völdum. Andri benti á að hvorki Rann- sóknarnefnd Alþingis né settum ríkissaksóknara hafi þótt yfirmenn Seðlabankans og Fjármálaeftir- litsins hafa sýnt af sér gáleysi í að draganda hrunsins. Því skjóti skökku við að Alþingi hafi sakað ráðherrann um vanrækslu þegar sama hafi ekki átt við um embættis mennina. Hann sagði frá- leitt að Geir eða aðrir hefðu getað séð kreppuna og áhrif hennar fyrir. Jafnvel æðstu yfirmenn Seðla- banka Evrópu og bandaríska seðla- bankans hafi viður kennt að hafa ekki séð ham farirnar fyrir. Þá hafi verið viðurkennt á alþjóðavettvangi að viðbrögð íslenskra stjórnvalda í hruninu hafi takmarkað verulega áhrif hrunsins. Andri gagnrýndi saksóknara Alþingis harðlega fyrir að rannsaka ekki málið til fullnustu áður en það var flutt fyrir Lands- dómi. Ekkert liggi fyrir hvað Geir hafi átt að gera til að afstýra tjóni, eða hverjar afleiðingarnar hefðu verið hefði hann gert eitthvað það sem saksóknarinn hafi nefnt sem mögulegar aðgerðir stjórnvalda. Þá sagði hann saksóknarann ekki hafa lagt mat á beint tjón sem Geir eigi að hafa valdið. Andri vísaði í vitnisburð Steingríms J. Sigfús- sonar, sem tók við sem fjármála- ráðherra eftir hrunið. Steingrímur sagði fyrir Landsdómi að beint tjón ríkisins hafi einskorðast við endur- fjármögnun Seðlabankans. Andri sagði þá endurfjár mögnun hafa verið nauðsynlega vegna svokallaðra ástarbréfaviðskipta bankans. Bankastjórar Seðla- bankans hafi tekið allar ákvarðanir um þau viðskipti og Geir hvergi komið nærri. Þá verði að líta til þess að Seðlabankinn sé sjálfstæð stofn- un og ekki undir beinu boðvaldi ráð- herra. Því beri Geir ekki ráðherra- ábyrgð á aðgerðum bankans. Vanræksla samráðshópsins Í fyrsta ákæruliðnum, lið 1.3, er Geir ákærður fyrir að hafa vanrækt að gæta þess að störf samráðshóps stjórnvalda um fjármálastöðugleika væru markviss og skiluðu árangri. Andri sagði saksóknara hafa mis- tekist algerlega að skýra hvað átt sé við með þessum ákærulið. Þar með talið hvað hafi vantað upp á til að starf samráðshópsins teldist mark- visst, og hvað hafi verið tilætlaður árangur af starfi hópsins. Tilgangur hópsins var einfaldur, og kemur fram í samkomulagi sem gert var þegar hann var stofnaður, sagði Andri. Hópnum hafi verið ætlað að vera samráðsvettvangur milli Seðlabankans, Fjármálaeftir- litsins og þeirra ráðuneyta sem hafi haft með fjármálastöðugleika að gera. Þessu samráði sagði Andri að hafi verið sinnt af hópnum og hann því skilað tilætluðum árangri. Það er síðari tíma spuni hjá Rann- sóknarnefnd Alþingis að hópurinn hafi átt að semja einhvers konar við- bragðsáætlun, sagði Andri. Hann sagði fráleitt að álykta að hópurinn hefði átt að gera eitthvað sem ekki hafi verið á hans verksviði, og tala svo um vanrækslu þegar hópurinn hafi ekki sinnt því verkefni. Slíkt geti ekki bakað Geir refsiábyrgð. Smækka banka og senda úr landi Í öðrum ákæruliðnum, lið 1.4, er Geir ákærður fyrir að hafa ekki haft frumkvæði að virkum aðgerðum ríkisvaldsins til að draga úr stærð bankakerfisins, til dæmis með því að einn bankanna flytti höfuð stöðvar sínar úr landi. Segir allar ásakanir á hendur Geir rangar Orðrétt „Ég er mjög feginn að þessum þætti málsins er lokið,“ sagði Geir H. Haarde, sem ákærður er fyrir Landsdómi, þegar aðalmeðferð málsins var lokið fyrir dóminum í Þjóðmenningarhúsinu seinnipart dags í gær. „Ég mun bíða úrslita þessa máls alveg ókvíðinn. Ég er saklaus af þessum ákæruliðum öllum saman og er bjart- sýnn hvað varðar niðurstöðu dómsins,“ sagði Geir. „Nú tekur dómstóllinn málið í sínar hendur, og leggur mat á hvort ég hafi framið refsiverð afbrot í mínum störfum. […] Ég treysti þessum dóm- stóli fullkomlega til að ráða fram úr því,“ sagði Geir. „Ég tel að þetta ferli sem hefur átt sér stað hér í Þjóðmenningarhúsinu sé mjög lærdómsríkt. Það hefur verið fróð- legt að fylgjast með vitnaleiðslunum, og málflutningi sækjanda og verjanda. En ég geri ráð fyrir því að ýmsir sem stóðu að þessum ákærum og þessum réttarhöldum hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum með margt af því sem hér hefur komið fram,“ sagði Geir. „Ég er saklaus af þessu öllu saman“ LOKADAGURINN Andri Árnason, verjandi Geirs H. Haarde, átti sviðið í Landsdómi á síðasta degi aðalmeðferðar í málinu á hendur Geir í Þjóðmenningarhúsinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Geir hafði enga lagaheimild til að gípa til beinna aðgerða gegn bönkunum til að selja eignir eða flytja höfuðstöðvar sínar úr landi, og fráleitt hefði verið að reyna slíkar aðgerðir í aðdraganda hrunsins, sagði Andri. Hann átaldi saksóknara Alþingis fyrir að hafa ekki á nokkurn hátt sýnt fram á hvernig Geir hefði átt að fara að því að þvinga bankana til slíkra aðgerða. „Það blasir við að aðgerðir af hálfu ákærða voru bæði óheimilar og ólöglegar,“ sagði Andri. Hann sagði að afar vanhugsað hefði verið að setja lög sem hefðu heimilað slíka valdbeitingu, og raunar óvíst að slík lög hefðu komist í gegnum Alþingi á þessum tíma. Andri benti á að allar eftir- litsstofnanir hafi talið bankana trausta, en með því að þvinga bank- ana til að selja eignir langt undir raunvirði hefðu stjórnvöld mögu- lega getað ýtt bönkunum í þrot sumarið 2008, og vafasamt væri að slíkt hafi verið hlutverk stjórn- valda. Engar sönnur hafa verið færðar um að flutningur Kaupþings úr landi á árinu 2008 hafi verið mögu- leiki, sagði Andri. Engu að síður sé það talið refsivert að mati saksókn- ara. Hann sagði bæði Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið hafa vitað að slíkur „hreppa flutningur“ á banka væri ómögulegur á þessum tíma, og því hafi þessar stofnanir ekki eytt tíma eða fyrirhöfn í þau áform. Flytja Icesave í breskt dótturfélag Í þriðja ákæruliðnum, lið 1.5, er Geir ákærður fyrir að hafa ekki fullvissað sig um að unnið væri að flutningi Icesave-reikninganna frá útibúi Landsbankans í Bretlandi í dótturfélag með virkri aðkomu ríkis valdsins. Ekki er á nokkurn hátt raunhæft eða eðlilegt að ætla að Geir hafi sem forsætisráðherra átt að vera í forystu sveit þeirra sem unnu að því að færa Icesave-reikninga Lands- bankans í dótturfélag, sagði Andri. Hann sagði að Geir hefði sem for- sætisráðherra vitað að málið hafi verið í vinnslu hjá Lands bankanum fyrir atbeina Fjármálaeftirlitsins. Ekkert hafi gefið til kynna að málið fengi ekki viðeigandi meðferð hjá eftirlitinu. Flutningur reikninganna í dótturfélag hafi verið flóknir eins og langdregnar samningaviðræður stjórnenda Landsbankans og breska fjármálaeftirlitsins hefðu borið með sér, sagði Andri. Þau mál hafi ein- faldlega verið í ferli þar til fjár- málakerfið hafi hrunið. „Það var ekki þannig að það væri hægt að ýta á takka og klára þetta,“ sagði Andri. Hann benti á að sam- ráðshópur stjórnvalda hefði fundað ítrekað um málið, en alltaf ályktað að rétt væri að Fjármálaeftirlitið héldi áfram að vinna í málinu, og óþarfi hefði verið að kalla ráðherra að málinu. Ræða ógn á ríkisstjórnarfundum Í fjórða ákæruliðnum, lið 2, er Geir ákærður fyrir að hafa látið fyrir farast á ríkisstjórnarfundum að ræða um þá ógn sem steðjað hafi að íslenska fjármálakerfinu. Ekki er hægt að segja að Geir hafi brotið lög með því að hafa ekki rætt yfirvofandi fjármálakreppu á nægi- lega mörgum ríkisstjórnarfundum, enda ekki tiltekið í stjórnarskrá að ræða þurfi mál oft, sagði Andri. Hann benti á að í stjórnarskrá segi að fjalla eigi um mikilvæg málefni á fundum ríkisstjórnarinnar, en ekki gerð krafa um að málið sé sett á formlega dagskrá. Andri sagði vitni sem komu fyrir Landsdóm, sem sátu með Geir í ríkis stjórninni, hafa tekið af öll tví- mæli um að ástandið á fjármála- mörkuðum hafi sannarlega verið rætt í ríkisstjórn, og því útilokað að sakfella Geir í þessum ákærulið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.