Fréttablaðið - 17.03.2012, Page 22

Fréttablaðið - 17.03.2012, Page 22
17. mars 2012 LAUGARDAGUR Fyrir hvern er hagkvæmnin reiknuð, þegar kemur að því að reikna kostnað af raforku- flutnings kerfum? Hversu mikið kostar vond ímynd? Margar þjóðir eyða miklum fjármunum í að markaðssetja sig sem best þær geta. Ef við viljum að Suðurnes verði vitnisburður um 19. aldar iðnvæðingu á 21. öldinni, þá er vitaskuld best að halda áfram á þeirri braut sem Landsnet hefur markað. Eftir tíu ár verður þessi ímynd enn fjarlægari nútímanum sem gerir hana enn sérstæðari. E.t.v. er þetta í samræmi við áform ríkisstjórnarinnar. Af hverju þykir það sjálfsagt (sbr. það sem komið hefur fram í máli forstjóra Landsnets) að það skili sér beint í hærra orku- verði til almennings ef raforku- flutningskerfi sem byggt er fyrir einka fyrir tæki í Helguvík verður dýrara en Landsnet gerði ráð fyrir? Í fyrsta lagi hefur við- komandi einkafyrirtæki væntan- lega samið sérstaklega um annað og lægra orkuverð en við hin borgum. Í öðru lagi, hefði ekki átt að taka tillit til þessa í hag kvæmni- út reikningum fyrir tækisins? Var það kannski hugmyndin að almenningur stæði undir kostnaði sem snýr að umhverfi, aðlögun eða auknum gæðum almennt? Eru umhverfismál og gæði kannski alfarið á kostnað almennings – eitthvað sem greiðist eftir skatt en ekki með sköttum? Þriðja leiðin Það er eitt að byggja álver og annað hvernig það er gert. Það er eitt að byggja raforkuflutn- ingskerfi fyrir loftlínur og annað hvernig það er gert. Iðnaðarmann- virki þarf ekki að hanna með sama hætti og gert var snemma á tuttugustu öld – tímarnir eru breyttir. Auðvitað er hægt að aðlaga iðnaðarmannvirki að nútím- anum, landslaginu og samfélaginu – og í sátt við það – með umhverfis- væn sjónarmið í huga. Til þess þarf bara vilja og það kostar ekki meira ef rétt er að farið. Þriðja leiðin felur í sér lausnir sem uppfylla bæði tæknilegar og umhverfis- legar kröfur á hagkvæman hátt. Þrýstingur á breytingar eykst nú hratt með vaxandi um hverfis- vakningu og tilheyrandi um- hverfis kröfum í mannvirkja- hönnun. Það er e.t.v. ráð að hafa þetta í huga, þar sem mannvirk- in sem nú stendur til að reisa á Reykjanesskaganum munu standa þar um margra áratuga skeið. Til að forðast misskilning er rétt að taka fram að háspennumöstur í formi „skúlptúra“, eins og oft vill verða niðurstaðan í arkitektasam- keppnum um háspennumöstur, eru ólíkleg til þess að vera lausn á vandamálinu sem hér er rætt. Það krefst þekkingar að greina á milli skúlptúra annars vegar og lausna hins vegar, sem ekki bara uppfylla kröfur til tæknilegs hlutverks, umhverfis og kostnaðar, heldur jafnframt bæta þær aðferðir sem notaðar hafa verið í gegnum tíðina. Háspennustrengir í jörðu Háspennustrengur í jörðu er krefjandi framkvæmd í umhverfis- legu tilliti. Vegagerð fyrir þunga- vinnuvélar, stórir skurðir og fyllingar tilheyra slíkri fram- kvæmd. Breitt svöðusár verður eftir í landslaginu sem í íslenskum aðstæðum er oft viðkvæmt. Í sam- hengi við Suðvesturlínur er um að ræða mosa og hraun, svöðusár sem ekki verður lagað eftir á. Um þetta hefur verið skrifað í Frétta- blaðinu (Gústaf Adolf Skúlason, 25. nóvember 2011). Engu að síður ber að ígrunda þennan valkost vel, ef valið stendur á milli þess og þeirrar lausnar sem Landsnet býður upp á. Hér þarf bráðnauð- synlega að kanna þriðju leiðina. Að lokum Hér er ekki mælt gegn loftlínum sem slíkum, við þurfum rafmagn. Hér er bent á að valkostirnir eru fleiri en tveir. Í þriðju leiðinni er að finna aðrar lausnir sem gætu verið grundvöllur að meiri sátt um framkvæmdir en þær sem hér er rætt um – stóriðnaðarfram- kvæmdir. Það má ekki gleyma því að niðurgrafinn háspennu- strengur út eftir Reykjanes- skaganum veldur óafturkræfu umhverfisraski. Jarðstrengur er því frá umhverfissjónarmiðum að vissu leyti vafasöm framkvæmd. Kostnaðar hliðin er þekkt og hefur verið rædd mikið í fjölmiðlum. Fjárfesting í orkuflutnings- kerfum er skv. sérfræðingum áhættuminnsta fjárfestingin sem hægt er að gera í orku geiranum í dag. Umhverfisslys vofir nú yfir Reykjanesi og með breyttri hugsun má enn koma í veg fyrir það. Um leið er fjárfest í nýrri sýn, forsendum og aðferðum – þekkingu. Nútíma verkfræði býr yfir mýmörgum möguleikum til þess að skapa nýjar raunveru- lega hagkvæmar og umhverfis- vænar lausnir sem endurspegla samtímann og getu hans til að leysa flókin verkefni vel. Forðumst umhverfisslys á Reykjanesskaga. Greinina má lesa í fullri lengd á: www.linudans.org 19. aldar iðnvæðing á Suður- nesjum? Menn afla sér peninga með ýmsum hætti. Langflestir stunda heilbrigða atvinnustarfsemi sem gagnast þeim sjálfum og þá ekki síður þeim sem hjá þeim vinna og þjóðfélaginu öllu. Það köllum við atvinnuvegi landsins. Aðrir brjóta lög og reglur samfélagsins til að afla fjár. Þeir tilheyra gjarnan und- irheimum þjóðfélagsins og eru ekki hluti af atvinnulífinu. Svo eru enn aðrir sem stunda atvinnustarfsemi sem lög ná ekki yfir en samræmist ekki vitund okkar sem viljum siðað þjóðfélag. Undir þennan flokk vil ég fella svokölluð smálánafyrirtæki sem bjóða lán á okurvöxtum. Það er langt handan eðlilegra viðskiptahátta að á Íslandi skuli vera opinberlega boðið upp á lán- veitingu gegn vöxtum sem eiga sér varla aðra samsvörun hvað vaxta- kjör varðar en þegar inn heimtir eru vextir á fíkniefnaskuldir í þeim ógeðfellda heimi. Á heima- síðu smálánafyrirtækis er tafla yfir þau vaxtakjör sem í boði eru. Þar eru ársvextir vegna smálána á vegum þess tilgreindir frá 390,9% þeir lægstu, en allt upp í 657,0% þeir hæstu. Þessi fjárplógsstarf- semi lýtur hvorki gildandi lögum um fjármálafyrirtæki, þar sem smálánafyrirtækin lána fyrir eigin reikning, eða lögum um neytenda- lán vegna þess hve lánstíminn er skammur. Markhópur þessara aðila er unga fólkið okkar. Þú bara skráir þig og svo bíða þeir eftir að þú sendir þeim sms og þá renna blóð peningarnir inn á reikninginn sam stundis. Einfalt, auðvelt og freistandi. Hagur lánveitandans er augljós. Ef þú getur ekki borgað að fullu þá er ekkert vandamál að slá lán ofan á lán. Engir lánasamningar eru undir- ritaðir og engin athugun er gerð á því hvort lántakinn sé fyllilega með- vitaður um afleiðingar lán tökunnar eða hvort hann sé borgunar maður fyrir skuldinni. Ég held að það dytti t.d. engum bankastarfsmanni í hug að veita drukknum einstaklingi lán. En það gerist þarna. Afleiðingarnar af þessari starfsemi hafa verið skelfilegar í nágrannalöndum okkar þar sem nokkur reynsla er komin á. Fjölmörg ungmenni hafa tapað fjárhagslegu sjálfstæði sínu í við- skiptum við þessi „fyrirtæki“. Þetta má ekki gerast hér á Íslandi líka. Fyrrverandi efna- hagsráðherra, Árni Páll Árna- son, sá þessa hættu og lýsti því yfir að hann vildi beita sér fyrir löggjöf sem setur þessari ógeð- felldu starfsemi lagaumgjörð. Því miður entist hann ekki í embætti til að koma því í verk. Nú vil ég skora á alþingismenn að taka sér í hár og lyfta höfði upp úr dægur- þrasinu. Þarna er verk að vinna og það strax áður en illa fer. Brýn nauðsyn er á löggjöf sem heimilar ekki óbreytta starfsemi af þessu tagi. Sú löggjöf verður að fela í sér tvennt. Að þessum aðilum verði óheimilt að gera lánasamninga sem ekki eru skrif legir, og hitt að lánveitingar fari ekki fram utan opnunartíma fyrirtækjanna. Skítt með allar tilskipanir ESB í þessum efnum. Framtíð fjölmargra íslenskra ungmenna skiptir hér öllu máli. Fjarvera Talsmanns neytenda í þessu máli er illskiljan- leg enda þótt hann hafi verið utan þjónustusvæðis vegna anna sinna undan farið eins og alþjóð hefur séð og heyrt. Blóðpeningar.is Orkumál Magnús Rannver Rafnsson lektor í verkfræði við HiST University College í Þrándheimi Fjármál Óðinn Sigþórsson Einarsnesi HÚSGAGNAHÖLLIN Bíldshöfða 20 Reykjavík sími 585 7200 OPIÐ Virka daga 10-18 laugardaga 12-18 sunnudaga lokað 0% VEXTIR - Húsgagnahöllin býður nú upp á vaxtalaus lán til allt að 12 mánaða NÚNA 20% AFSLÁTTUR MODENA sófasett. 2 sæta sófi B:156 D:90 H:82 cm. 3 sæta B:218 D:90 H:82 cm. ASPEN La-z-boy stóll. B:85 D:85 H:100 cm. Fæst svörtu eða brúnu leðri. 111.980 FULLT VERÐ: 139.980 ÞÆGINDI & GÆÐI Á GÓÐU VERÐI! NÚNA 20% AFSLÁTTUR FULLT VERÐ: 209.990 2 SÆTA 183.990167.990 FULLT VERÐ: 229.990 3 SÆTA BIM Ísland stendur fyrir kynningarfundi um notkun (BIM) upplýsingalíkana við mannvirkjagerð þann 22. mars 2012 í Laugardalshöll, fundarsal 1 - inngangur A ALLIR VELKOMNIR OG AÐGANGUR ÓKEYPIS Dagskráin er eftirfarandi og hefst stundvíslega kl.13.00 13:00 – 13:10 Inngangur Orri Hauksson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins lýsir næstu skrefum í notkun BIM líkana frá hönnun til framkvæmda 13:10 – 14:20 FMOS Hönnuðir kynna BIM líkan vegna hönnunar Framhaldsskólans í Mosfellsbæ og Jóhann Örn Guðmundsson starfandi „BIM developer“ í Noregi kynnir gerð verkáætlana úr BIM- líkani 14:20 – 15:00 Ice consult Kynning á notkun BIM líkana við rekstur mannvirkja 15:00 – 15:20 Kaffi – hlé Kaffiveitingar 15:20 – 15:35 Kynning frá Tækniskólanum Ingibjörg Birna Kjartansdóttir kennari við Tækniskólann kynnir fyrirhuguð nám- skeið skólans um BIM fyrir verktaka , þ.e. hvernig verktakar geta nýtt sér BIM líkön í framkvæmdum 15:35 – 17:00 Pihl a/s Reynsla Pihl a/s af notkun BIM líkana í framkvæmdum erlendis Verktakar og hönnuðir ! BIM – Frá hönnun til framkvæmdar www.bim.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.