Fréttablaðið - 17.03.2012, Page 42

Fréttablaðið - 17.03.2012, Page 42
KYNNING − AUGLÝSINGFermingargjafir LAUGARDAGUR 17. MARS 20124 Gjafir sem endast Það er margt sem hugur fermingarbarna girnist enda eiga þau lífið fram undan. Símar, fartölvur, húsgögn í herbergið, myndavélar og utanlandsferðir eru þar á meðal. Umræddar gjafir eru þó ekki á færi allra og það má láta sér detta ýmislegt annað í hug. Gefðu spegil. Sjálfsmyndin mótast sem aldrei fyrr í kringum fermingaraldur- inn og fáir aldurshópar spegla sig meira. Gefðu fallegan spegil í herbergið. Þú getur verið viss um að hann verður í stöðugri notkun. Gefðu ferðatösku. Góð ferðataska eru lífstíðareign og kemur yfirleitt að góðum notum. NORDICPHOTOS/GETTY Gefðu myndaalbúm. Standir þú barninu nærri áttu eflaust myndir af því við ýmis tilefni; úr fjölskylduboðum, útilegum, utanlandsferðum og úr daglegu lífi. Þetta geta jafnvel verið myndir sem unglingurinn og foreldrar hans hafa aldrei séð og vekja eflaust lukku. Það er ekki verra að dunda sér við að skreyta albúmið en í föndur- verslunum fást alls kyns fallegir límmiðar til að gera gjöfina enn persónulegri. Gefðu landakort eða hnött. Stór landakort og flottir hnettir fást víða. Kortin er hægt að ramma inn eða hengja beint upp á vegg og fara vel í unglingaher- bergi. Láttu teiknibólur fylgja með svo fermingarbarnið geti merkt inn á kortið staði sem það hefur heimsótt og staði sem það langar til að sækja heim. Gefðu tíma í hljóðveri. Hver vill ekki eiga upptöku af sér að syngja uppáhaldslagið? Það getur verið óborganlegt að eiga slíka upptöku seinna og upplagt að grafa hana upp fyrir stórveislur og brúð- kaup síðar um ævina. Gefðu tré. Fermingarbarnið getur gróðursett það í garðinum og það vex með því. Það getur verið gaman að vitja þess seinna og segja börnum og barnabörnum frá því að þarna sé fermingartréð orðið fullvaxta. Amma fermdist í sveit árið 1924 Prestssonurinn Þórður Sigurðarson, sem fermdist árið 2003, tók viðtal við ömmu sína, Svanfríði Guðnýju Kristjánsdóttur frá Braut- arhóli, daginn fyrir eigin fermingu. Svanfríður er látin en Frétta- blaðið fékk leyfi til að birta spjallið. „Ég fæddist 1910 svo fermingin hefur verið 1924. Þetta var á hvítasunnu. Ég hafði gengið til prestsins á Völlum fyrir ferm- inguna. Presturinn, séra Stefán Kristinsson, spurði okkur út úr í kirkju og hlýddi okkur yfir. Ég kunni nú marga sálma, milli fjörutíu og fimmtíu. Flest fermingarbörnin höfðu metnað og vildu kunna sem flesta sálma því presturinn vildi það. Fermingarmessurnar voru alltaf fjölmennar. Á þessum hvíta- sunnudegi var hríðarveður. Engu að síður var kirkjan troðfull og þurfti að setja inn aukastóla. Börnin voru miklu fleiri í sveitinni þá en nú. Mörg systkini á hverjum bæ. Fermingarkjóll að láni Ég var í hvítum kjól og mér var kalt. Kjóllinn var þunnur og fínn. Ég átti hann ekki því hann var fenginn að láni. Fermingarkjólar voru hvítir og ónothæfir fyrir aðra daga og voru því lánsföt. Ég fékk síðan sparikjól fyrir önnur tilefni. Þetta var áður en kyrtlarnir komu til sögunnar. Ég var í dönskum skóm sem svo voru kallaðir. Þeir voru svart- ir og ágætir. Við fórum út að Völlum þar sem presturinn bjó og svo skiptum við stelpurnar um föt inni á kontór prests- ins. Vinkona mín var með kyrtil og í skaut- búningi. Þegar við vorum búin að fara í ferming- arfötin gengum við út í kirkju með fjölskyldum okkar. Við feng- um sérstakt sæti í messunni. Þegar stólræðan var búin var sunginn fermingarsálmur: „Lát þennan dag, ó Drottinn, nú.“ Þá færðum við okkur upp að altarinu og settumst þar. Presturinn hélt ræðu númer tvö, fermingarræðuna, og talaði beint til okkar. Síðan vorum við fermd. Við þurftum ekki að svara prestinum með öðru en jáyrði því yfirheyrslur voru búnar í spurningum. Svo tók presturinn í hönd okkar um leið og hann var búinn að ferma. Það var engin altaris- ganga í guðsþjónustunni en hún var í vikunni á eftir. Sauðburður hafði áhrif Þetta var eftirminnilegur dagur. Við vinkonurnar, og allir krakkar á þessum tíma, tókum fermingarheitið alvarlega. Við vildum tilheyra Guði. Það var engin veisla. Börnunum sem fermdust og foreldrum þeirra var boðið inn á prestssetrið. Þegar við komum heim skipti ég um föt, enda var sauðburður og allir að sinna skepnunum. Ég fór að ná saman kindunum sem voru úti. Það var ekki vonskuveður en nauðsynlegt að koma skepnunum inn. Það var ekki til siðs að gefa margar gjafir á þessum tíma. Ég fékk fermingarkort og Gísli bróðir minn hafði keypt notað úr, sem hann gaf mér. Pabbi og mamma gáfu mér kind.“ Svanfríður Guðný Kristjánsdóttir frá Brautarhóli með ferm- ingarsystur sinni, Önnur Stefánsdóttur frá Gröf. Þær fermdust árið 1924 að Völlum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.