Fréttablaðið - 17.03.2012, Side 73
KYNNING − AUGLÝSING Fermingargjafir17. MARS 2012 LAUGARDAGUR 7
UM 90% UNGMENNA KJÓSA AÐ FERMAST
Ferming hefur alla tíð verið mikilvæg athöfn í augum Íslendinga og rausnarlega er lagt
í veisluhöld og gjafir. Nokkuð algengt er að ungmenni sem ekki voru skírð í barnæsku fái
skírn fyrir ferminguna. Í ár eru það unglingar sem fæddir eru árið 1998 sem hafa gengið til
prestsins í vetur og fengið fermingarfræðslu. Um hundrað íslensk börn fermast erlendis, þar
af 56 í Noregi og 24 í Svíþjóð.
Samkvæmt upplýsingum frá Biskupsstofu eru 4303 ungmenni hér á landi á fermingaraldri.
Þar af eru 3587 í þjóðkirkjunni, eða 83%, sem fermast þetta vorið. Að auki eru tæplega 5%
þessara ungmenna í lútersku fríkirkjunum. Þegar kaþólsku kirkjunni er bætt við má gera ráð
fyrir að um 90% unglinga fermist í kristnum kirkjum.
Þá má geta þess að árið 1962 fermdust tæplega 95% ungmenna á Íslandi í kristnum
kirkjum. Alls voru 3711 börn á fermingaraldri 1. janúar það ár. 3284 fermdust í þjóðkirkjunni
og 235 í lúthersku fríkirkjunum. Árið 2002 fermdust um 4200 börn í þjóðkirkjunni af þeim
4628 sem voru í þeim árgangi, eða 90 prósent.
BORGARALEG FERMING
„Hátíðleg athöfn sem ekki
tengist kirkju eða kristni en er
haldin fyrir börn á fermingaraldri
(í kjölfar fræðslu um siðfræðileg
og félagsleg efni.)“ Þannig er
borgaraleg ferming skilgreind í
íslenskri orðabók.
Siðmennt hefur boðið upp á
borgaralega fermingu allt frá 1989.
Líkt og börn í kristinni fermingar-
fræðslu þurfa börn sem fermast
borgaralega að sækja námskeið
þar sem ýmislegt er til umræðu.
Á vef Siðmenntar www.sidmennt.
is segir að íslenska orðið ferming
sé þýðing á latneska orðinu con-
firmare sem merki meðal annars
að styðja og styrkja. Ungmenni
sem fermist borgaralega séu ein-
mitt studd í því að vera heilsteyptir
og ábyrgir borgarar í lýðræðis-
legu samfélagi en megintilgangur
borgaralegrar fermingar sé að
efla heilbrigð og farsæl viðhorf
unglinga til lífsins og kenna þeim
að bera virðingu fyrir manninum,
menningu hans og umhverfi.
Hápunktur borgaralegu fermingar-
innar er virðuleg lokaathöfn sem
foreldrar barnanna skipuleggja og
stjórna með hjálp Siðmenntar. Þar
eru börnin í aðalhlutverkinu. Þau
koma fram prúðbúin, flytja ávörp,
ljóð og sögur, spila á hljóðfæri og
dansa svo fátt eitt sé nefnt. Að
lokum fá þau afhent skrautritað
skjal til staðfestingar því að þau
hafi lokið fermingarnámskeiðinu.
Ekki er nauðsynlegt að vera
skráður í Siðmennt og raunar er 16
ára aldurstakmark til slíkrar skrán-
ingar. Foreldrar fermingarbarns
þurfa heldur ekki að vera meðlimir
Siðmenntar. Öllum er frjálst að
fermast borgaralega, hvort sem
fólk er skráð í trúfélög eður ei.
Heimild: sidmennt.is/
visindavefur.is
UM FERMINGUNA
Fermingar snúast um meira
en veislu og gjafir, eins og fram
kemur á heimasíðu Þjóðkirkjunn-
ar www.kirkja.is. Þar er ferming
fyrst og fremst skilgreind sem
staðfesting á trú. Það er að segja,
unglingurinn staðfestir skuld-
bindingu foreldra og guðfeðgina
í skírnarathöfninni. Hann fer með
trúarjátninguna, vinnur ferm-
ingarheit og þiggur fyrirbæn og
blessun. Áður þarf hann að hafa
lagt stund á fermingarfræðslu hjá
presti sínum eða fermingarfræð-
ara. Börn mega reyndar frá unga
aldri ganga til altaris ásamt for-
eldrum sínum þótt reglan sé að
þau neyti í fyrsta sinn kvöldmál-
tíðarsakramentisins við fermingu
eða meðan á fermingarfræðslu
stendur.
Gefðu sparnað
í fermingargjöf
Fermingarkortið er inneignarkort sem hentar þeim vel sem vilja gefa sparnað
í fermingargjöf. Lands bankinn greiðir 5.000 króna mótframlag þegar fermingar -
börn leggja 30.000 krónur eða meira inn á Framtíðargrunn.
Fermingarkortið er gjöf sem leggur grunn að árhag framtíðarinnar. Kortið kemur
í fallegum gjafaumbúðum og fæst án endurgjalds í öllum útibúum Landsbankans.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn