Fréttablaðið - 17.03.2012, Síða 104

Fréttablaðið - 17.03.2012, Síða 104
17. mars 2012 LAUGARDAGUR68 sport@frettabladid.is Helga Margrét Þorsteinsdóttir frjálsíþróttakona BIKARMEISTARAR verða krýndir í blakinu um helgina þegar lokaúrslit Asicsbikarsins fara fram í Laugardalshöllinni. Undanúrslitaleikirnir í karla- og kvennaflokki fara fram í dag og úrslitaleikirnir eru síðan á morgun. Hjá konunum spila Þróttur Nes - Eik (klukkan 12.00) og Afturelding - HK (14.00) en hjá körlunum mætast Þróttur R - Stjarnan (16.00) og HK - KA (18.00). Úrslitaleikirnir fara síðan fram klukkan 13.30 (konur) og 15.00 (karlar) á morgun. FÓTBOLTI Stórleikur átta liða úrslitanna er klárlega viðureign AC Milan og Barcelona. Þarna mætast tvö af stærstu knattspyrnuveldum Evrópu. „Bæði lið hafa verið að spila vel upp á síðkastið og Milan er komið á toppinn á Ítalíu. Barca er þó á siglingu og Messi er með sýningu í hverjum leik. Ég held að Barcelona taki þetta og ekki síst þar sem þeir eru úr leik í baráttunni á Spáni og leggja ofuráherslu á þessa keppni,“ segir Heimir Guðjónsson, þjálfari FH og s érfræðingur 365 í Meistara deildinni. „Barca og Milan léku saman í riðlakeppninni og þar náði Milan óvænt jafntefli á Spáni en Barca vann á Ítalíu og sýndi að það er sterkara,“ segir Heimir, en hvað með Milan-liðið? Það sýndi frá- bæran fyrri leik gegn Arsenal en var svo hræðilegt í seinni leiknum. „Þeir virðast ekkert hafa lært af sögunni er þeir féllu út gegn Deportivo á sínum tíma og svo leikurinn frægi gegn Liverpool í Tyrklandi. Það sýnir að það vantar stöðugleika í Milan-liðið. Þeir ætluðu að taka Arsenal með vinstri og það er aldrei hægt í Meistaradeildinni.“ Svíinn Zlatan Ibrahimovic fær enn og aftur tækifæri í þessum leikjum til þess að sýna Barca hverju þeir eru að missa af. Það hefur ekki alltaf gengið vel. „Hann á ekki alltaf sína bestu leiki í stóru leikjunum en lék vel í fyrri leiknum gegn Arsenal. Hann passaði ekki inn í kerfi Barcelona enda ekki til í að hlaupa mikið. Leikur þeirra gengur út á að vinna boltann strax aftur með hlaupum. Það var ekki fyrir hann og er svo að senda pillur á Guardiola sem ég hef aldrei skilið. Guradiola er að þjálfa besta félagslið frá upphafi og dapurt að Zlatan sé að þenja sig.“ Heimir segir að Real Madrid og FC Bayern eigi nokkuð greiða leið í undanúrslitin en býst við því að Chelsea lendi í vandræðum. „Real Madrid er númeri of stórt fyrir APOEL. Bayern klárar Marseille án mikilla vand- ræða. Chelsea gegn Benfica verður hörkuviðureign. Benfica er með flott lið og Chelsea hefur ekki verið sannfærandi í vetur. Portúgalska liðið á vel að geta strítt Chelsea.“ henry@frettabladid.is Barcelona er of sterkt fyrir Milan Dregið var í átta liða og undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í gær. Heimir Guðjónsson, sérfræðingur 365 í Meistaradeildinni, segir að Barcelona sé of stór biti fyrir AC Milan. Hann spáir því að Chelsea lendi í vand- ræðum með Benfica en býst við því að Real Madrid og FC Bayern fari auðveldlega í undanúrslit. ANNAÐ TÆKIFÆRI Augu margra verða á Zlatan Ibrahimovic er hann mætir sínu gamla félagi á ný. Hann fagnar hér marki í leik liðanna fyrr í vetur. NORDICPHOTOS/GETTY Meistaradeildin 8-liða úrslit: APOEL - Real Madrid Marseille - Bayern Munchen Benfica - Chelsea AC Milan - Barcelona Fyrri leikirnir fara fram 27. og 28. mars og seinni 3. og 4. apríl. Undanúrslit: Marseille/Bayern - APOEL/Real Madrid Benfica/Chelsea - AC Milan/Barcelona Fyrri leikir 17. og 18. apríl og seinni 24. og 25. apríl. Fyrir nokkrum vikum bætti ég Íslandsmetið mitt í fimmtarþraut. Í kjölfarið átti ég samtal við eina bestu vinkonu mína sem vakti mig til umhugsunar og gaf mér innblástur í þennan pistil. Þessi vinkona mín æfir og keppir einnig í frjálsum íþróttum. Síðastliðin ár hafa verið henni erfið á brautinni og ekki gengið sem skyldi. En loksins núna í vetur fóru hlutirnir aftur að gerast hjá henni og hún er farin að hlaupa á mun betri tímum en síðastliðin ár. Sama dag og ég setti Íslandsmetið hafði hún einmitt hlaupið á flottum tíma. Við vorum því báðar sáttar með daginn. Ég talaði mest um hvað mér hefði þótt gaman í dag en hún talaði mest um hvað hún ætti mikið inni sem kæmi fram í næsta hlaupi. Auðvitað var ég sammála henni í því en fannst ég þó verða að stoppa hana þegar hún sagði: „Ó, það verður svo gaman hjá okkur næsta sumar.“ Af hverju þurfum við alltaf að vera einu skrefi á undan okkur sjálfum? Við erum varla komin yfir endamarkslínuna þegar við erum farin að tala um hvað næsta hlaup á að vera rosalega öflugt. Þegar íslenska landsliðið í handbolta hefur keppni á stórmóti virðist það stundum skipta meira máli að ná góðu sæti upp á að komast inn á næsta stórmót eða lenda í góðum riðli í næstu undankeppni í stað þess að ná virkilega góðum árangri á því móti sem er í gangi akkúrat þá stundina. Þegar ég set Íslandsmet í fimmtarþraut innanhúss gefur það góð fyrirheit fyrir sumarið. Að sjálfsögðu má líta á það þannig en væri ekki gáfulegra bara að taka öllum árangri fagnandi án þess að þurfa sífellt að skilyrða hann við eitthvað sem hugsanlega getur orðið í framtíðinni? Ég veit að fyrir frjálsíþróttafólk skiptir sumarið 2012 miklu máli en það kæmi mér ekki á óvart ef að árangur sumarsins 2012 verði tengdur við sumarið 2016 þegar Ólympíuleikarnir verða haldnir aftur. Ég sjálf stend mig oft að því að vera byrjuð að plana næsta æfinga- og keppnistímabil áður en núverandi æfinga- og keppnistímabili er lokið. Næsta sumar ætla ég að stökkva svona langt, lyfta svona þungt, hlaupa svona hratt, æfa svona mikið, vinna allar keppnir sem ég tek þátt í og bæta öll met. Það er auðvelt að gleyma sér í framtíðinni og missa af núverandi tímabili, tímabilinu sem síðasta sumar átti einmitt að vera tímabilið sem allt átti að ganga upp. Það er mikilvægt að vera samferða sjálfum sér, taka eitt skref í einu og byrja á réttum enda. Ætli maður sér að verða Ólympíumeistari er gott að byrja á því að tryggja sér keppnisrétt á leikunum fyrst. Að vera samferða sjálfum sér Iceland Express karla Keflavík - Stjarnan 69-94 (41-53) Stig Keflavíkur: Charles Michael Parker 25 (5 stolnir), Valur Valss. 14, Jarryd Cole 12, Magnús Þór Gunnarss. 7, Sigurður Gunnarss. 4, Halldór Halldórss. 3, Andri Daníelss. 2, Arnar Jónss. 2. Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 20 (6 stoðs.), Renato Lindmets 17 (9 fráköst), Keith Cothran 15, Marvin Valdimarss. 13, Jovan Zdravevski 10, Fannar Helgas. 8 (13 fráköst), Dagur Jónss. 5, Guðjón Láruss. 5, Sigurjón Láruss. 1. Tindastóll - Þór Þorl. 97-80 (48-47) Stig Tindastóls: Curtis Allen 25 (9 fráköst), Maurice Miller 25, Igor Tratnik 11 (10 fráköst), Hreinn Birgiss. 9, Helgi Margeirss. 8, Friðrik Hreinsson 7, Þröstur Jóhannss. 6 (9 fráköst/5 stoðs.), Helgi Viggóss. 6 Stig Þórs: Darrin Govens 21, Blagoj Janev 20, Matthew Hairston 16, Darri Hilmarsson 10, Guðmundur Jónsson 6, Baldur Ragnarsson 5 (6 stoðs.), Grétar Erlendsson 2. Valur - KR 72-105 (40-53) Stig Vals: Benedikt Blöndal 14 (6 stoðs.), Birgir Pétursson 13 (11 frák.), Kristinn Ólafsson 13, Marvin Jackson 13, Ragnar Gylfason 11, Alexander Dungal 6, Bergur Ástráðsson 2. Stig KR: Emil Jóhannss. 14, Robert Ferguson 14, Hreggviður Magnúss. 14, Dejan Sencanski 12, Martin Hermannss. 10 (6 stoðs.), Jón Kristjánss. 10, Joshua Brown 10, Finnur Magnuss. 8, Krist ófer Acox 5, Skarphéðinn Ingas. 4 (5 stoðs.), Ágúst Angantýsson 2, Björn Kristjánss. 2 STAÐAN Í DEILDINNI Grindavík 20 17 3 1799-1599 34 KR 20 13 7 1784-1681 26 Stjarnan 20 13 7 1761-1643 26 Þór Þ. 20 13 7 1704-1613 26 Keflavík 20 12 8 1785-1697 24 Snæfell 20 11 9 1877-1780 22 Tindastóll 20 10 10 1675-1732 20 Njarðvík 20 9 11 1682-1714 18 ÍR 20 8 12 1770-1855 16 Fjölnir 20 8 12 1714-1801 16 Haukar 20 6 14 1575-1654 12 Valur 20 0 20 1516-1873 0 KARFAN Í GÆR VELKOMIN 1.250 kr 990 kr 1.750 kr 1.250 kr 1.250 kr 1.350 kr 1.450 kr PHO víetnamskur veitingastaður Ármúla 21 - 108 Reykjavík - Sími: 588 6868 HOLLT OG GO TT
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.