Fréttablaðið - 09.05.2012, Side 20
| 4 9. maí 2012 | miðvikudagur
Bræðurnir Ágúst og Lýður Guð-
mundssynir munu greiða 15 millj-
ónir punda, um þrjá milljarða
króna, fyrir 25 prósenta hlut í
Bakkavör Group, samkvæmt
heimildum Markaðarins. Lagt
verður til á hluthafafundi, sem
haldinn verður síðar í þessum
mánuði, að hlutafé félagsins verði
aukið sem þessu nemur og að
bræðurnir fái að kaupa það allt.
Afgangurinn af hlutafé Bakka-
varar Group verður í eigu þeirra
íslensku kröfuhafa sem gerðu
nauðasamning við félagið fyrir
tveimur árum. Þeirra stærstir
eru Arion banki, skilanefnd Glitn-
is, LSR, Lífeyrissjóður verzlun-
armanna og Gildi lífeyrissjóður.
Samhliða munu bræðurnir gefa
eftir meirihluta í stjórn Bakka-
varar Group sem þeir hafa hald-
ið frá því að nauðasamningur-
inn var undirritaður. Auk þess
þurfa þeir að skila eignarhlut í
Bakkavör Group til Klakka, sem
hét áður Exista. Sá eignarhlutur
var færður út úr því félagi árið
2009 þegar bræðurnir réðu enn
yfir Existu. Sá gjörningur hefur
meðal annars verið til rannsókn-
ar hjá embætti sérstaks saksókn-
ara.
Hið nýja eigið fé sem kemur
inn í félagið mun meðal annars
verða notað til að greiða kostn-
að af fjárhagslegri endurskipu-
lagningu Bakkavarar og til að
greiða erlendum bönkum sem fé-
lagið skuldar fé fyrir að gefa eftir
lánaskilmála sem það hefur þegar
brotið gegn.
Heildarvirði Bakkavarar er talið
vera á bilinu 20-40 milljarðar
króna. Fáist það verð fyrir félagið
myndu bræðurnir Ágúst og Lýður
fá fimm til tíu milljarða króna
fyrir þann hlut sem þeir eru nú
að kaupa á þrjá milljarða króna.
- þsj
Bakkavör Group í endurskipulagningu:
Bakkavararbræður
kaupa fjórðung á
þrjá milljarða
ENDURKOMA Bræðurnir Lýður og Ágúst töpuðu allri eign sinni í Bakkavör Group en hafa
nú fengið tækifæri til að kaupa sig aftur inn í félagið sem þeir stofnuðu á sínum tíma.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gildi lífeyrissjóður gerir í fyrsta
sinn grein fyrir stjórnmálaáhættu
í skýringu með ársskýrslu sinni
fyrir árið 2011. Skýrslan var
kynnt á ársfundi sjóðsins 25. apríl
síðastliðinn. Þar segir: „Íslenskir
lífeyrissjóðir búa í dag við nokkra
stjórnmálaáhættu og áhættu af
breytingum á lögum og reglu-
verki. Undanfarin ár hefur laga-
umhverfi lífeyrissjóða verið nokk-
uð stöðugt, en það hefur breyst á
síðustu misserum og í ljósi um-
fjöllunar um sjóðina á vettvangi
stjórnmálanna gætu fleiri breyt-
ingar verið í farvatninu. Stjórn
sjóðsins telur ástæðu til að vekja
athygli á að breytingar á lögum
og regluverki í kringum sjóðina
geta haft áhrif á afkomu þeirra“.
Í ársskýrslunni er einnig minnst
á umræður á vettvangi stjórn-
mála um víðtæka skattlagningu
á myndun lífeyrisréttinda, meðal
annars um að inngreiðslur í við-
bótarlífeyrissparnað yrðu ekki
lengur skattfrjálsar. Þá er sýnt
fram á dæmi um breytingar þegar
„lögum var breytt þegar gjaldeyr-
ishöft voru sett á og ekki eygir í að
þeim verði aflétt. Þau lög breyttu
verulega möguleikum sjóðanna til
fjárfestinga og áhættudreifing-
ar. Þá var með lögum lagður sér-
stakur skattur á lífeyrissjóði. Til
stendur að afnema hann að hluta
eða öllu leyti háð því hvernig sjóð-
ir taka þátt í sérstökum útboðum á
eignum í íslenskum krónum fyrir
erlendan gjaldeyri, en niðurstaða
þessa er enn nokkuð óljós“.
- þsj
Nýjung í ársskýrslu Gildis lífeyrissjóðs:
Gerði grein fyrir
stjórnmálaáhættu
HÆTTUR Vilhjálmur Egilsson var stjórnarformaður Gildis fram að síðasta aðalfundi, sem
haldinn var í lok apríl. Hann er nú varamaður í stjórn sjóðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
VIÐSKIPTI
Magnús Þorlákur Lúðvíksson
magnusl@frettabladid.is
Sænska veðmálafyrirtækið Bets-
son AB, sem margir Íslendingar
þekkja, tók í apríl yfir samkeppn-
isaðila að nafni Nordic Gam-
ing Group (NGG) sem skráð er á
Möltu. Betsson greiðir 65 milljón-
ir evra, jafngildi 10,5 milljarða ís-
lenskra króna, fyrir félagið og er
með kaupunum orðið eitt stærsta
veðmálafyrirtæki í Evrópu.
Yfirtakan á NGG er einungis
nýjasta skrefið í uppgangi Bets-
son sem hefur vaxið á ógnvænleg-
um hraða síðustu ár. Fyrirtækið
rekur fjölmargar veðmálavefsíð-
ur en hjá fyrirtækinu starfa nú
um 460 manns. Hagnaður þess
nam 9,6 milljörðum íslenskra
króna á síðasta ári og hefur tvö-
faldast á þremur árum. Á fyrsta
ársfjórðungi þessa árs jukust
tekjur um 28 prósent til viðbótar
og þá mun yfirtakan á NGG vafa-
lítið auka tekjur þess til muna.
Veðmálamarkaðurinn á netinu
hefur stækkað ört á undanförnum
árum og ekki sér fyrir endann á
þeirri þróun. Einn helsti aflvaki
vaxtarins er að nýir markaðir
hafa opnast fyrir veðmálafyrir-
tækjum með breytingum sem víða
hafa orðið á lagaumhverfi slíkra
fyrirtækja en starfsemi þeirra
hefur löngum verið takmörkuð.
Eins og áður sagði er Betsson
AB sænskt fyrirtæki en það var
um tíma að stórum hluta í eigu
Íslendinga. Í júlí árið 2005 keypti
fjárfestingarbankinn Burðarás,
sem síðar sameinaðist Straumi,
25,06% hlut í sænsku getrauna- og
leikjafyrirtæki sem hét þá Cherry-
företagen og rak meðal annars
veðmálavefinn Betsson. Verðmæti
viðskiptanna var ekki gefið upp en
sænskir fjölmiðlar töldu það vera
um 200 milljónir sænskra króna,
sem jafngilti 1,7 milljörðum ís-
lenskra króna miðað við þáverandi
gengi. Síðar jók sameinaður banki
hlut sinn í fyrirtækinu í 29%.
C her r y för et a ge n br ey t t i
skömmu síðar nafni sínu í Net En-
tertainment og var skipt upp í þrjú
félög; CherryCasino, Betsson AB
og Net Entertainment. Cherry-
Casino rann svo síðar aftur inn í
Betsson.
Þegar Burðarás keypti hlut
sinn voru bréf í Betsson seld í
sænsku kauphöllinni á 28 sænsk-
ar krónur. Tveimur árum síðar, í
júní árið 2007, þegar Straumur-
Burðarás seldi hlutinn í Betsson
var hlutabréfaverðið rétt tæpar
60 sænskar krónur. Var hlutur
félagsins því seldur á 4,4 millj-
arða íslenskra króna. Rúmu ári
síðar seldi Straumur hlut sinn í
Net Entertainment og var áætlað
að fyrirtækið hefði hagnast um
sem nam 720 milljónum króna á
þeim tíma vegna sölunnar.
Upphafleg fjárfesting Burð-
aráss skilaði Straumi-Burðarási
sem sagt talsverðum hagnaði.
Þrátt fyrir það má telja líklegt
að fyrrum eigendur Straums,
sem var tekinn yfir af Fjármála-
eftirlitinu í mars 2009, nagi sig
í handarbökin að hafa selt hlut
sinn í Betsson á árinu 2007. Því
til staðfestingar má skoða þróun
hlutabréfaverðs félagsins. Verð á
hlut í Betsson er nú 221,5 sænsk-
ar krónur í sænsku kauphöllinni
en eins og áður sagði var það
rétt tæpar 60 sænskar krónur
þegar Straumur seldi hlut sinn.
Markaðsvirði fyrirtækisins er
9,3 milljarðar sænskra króna og
væri 29 prósenta hlutur Straums
því virði jafngildi rúmra 50
milljarða íslenskra króna í dag.
Hefur verðmæti hans því rúm-
lega tífaldast á þeim tæpu fimm
árum sem liðin eru frá sölunni þó
hluta þessa megi vitaskuld rekja
til veikingar krónunnar á tíma-
bilinu.
Að lokum má taka fram að í
viðskiptum er alltaf auðvelt að
finna dæmi um frábærar eða
misráðnar fjárfestingar eftir
á. Fyrir fram reynist það hins
vegar yfirleitt þrautin þyngri
eins og dæmin sanna.
Magnaður uppgangur
veðmálafyrirtækis
Sænska veðmálafyrirtækið Betsson, sem var á árunum 2005 til 2007 að stórum hluta í eigu
Straums-Burðaráss, hefur margfaldast að stærð og í verði á fáum árum. Vinsældir veðmála-
vefsíðna hafa stóraukist og sér ekki fyrir endann á þeirri þróun.
BETSSON AB Betsson AB rekur fjölda veðmálavefsíða á netinu en þeirra þekktust er
sennilega hin samnefnda Betsson sem margir Íslendingar þekkja. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Íbúðalánasjóði verður óheimilt að
veita lán til kaupa á íbúðarhús-
næði þegar hámarksfjárhæð ÍLS-
veðbréfa er lægri en 40 prósent
af fasteignamati íbúðarhúsæðis
samkvæmt frumvarpi sem Guð-
bjartur Hannesson velferðarráð-
herra hefur mælt fyrir á Alþingi.
Það þýðir að Íbúðalánasjóði
verður ekki heimilt að veita lán
til kaupa á eignum með hærra
fasteignamat en 50 milljónir. Er
hugmyndin með þessu að koma til
móts við athugasemdir frá ESA,
eftirlitsstofnun EFTA, um að lán-
veitingar til kaupa á mjög verð-
mætu húsnæði rúmist ekki innan
félagslegra markmiða sjóðsins.
Meðal annarra breytinga á
starfsumhverfi sjóðsins, sem
kveðið er á um í frumvarpinu,
má nefna að eftirlit með starf-
semi hans verður aukið og skýrari
skilyrði sett við lánveitingum til
uppbyggingar leiguhúsnæðis. Þá
verða lánveitingar til endurbóta,
byggingar eða kaupa á íbúðarhús-
næði takmarkaðar við almenn lán
til einstaklinga.
Breytingarnar byggja flestar á
athugasemdum frá ESA sem hefur
eftirlit með að Ísland uppfylli
skuldbindingar sínar samkvæmt
samningnum um Evrópska efna-
hagssvæðið. - mh
Í nýju frumvarpi velferðarráðherra er komið til móts við athugasemdir ESA um ÍLS:
Íbúðalánasjóður láni ekki til
kaupa á dýru húsnæði
GUÐBJARTUR HANNESSON