Fréttablaðið - 09.05.2012, Síða 28
FÓLK|FERÐIR
FITNA Á
SIGLINGU
NÝ KÖNNUN Á
VEGUM BRESKU
FERÐASKRIF-
STOFUNNAR
BONVOYAGE.
CO.UK SÝNIR
AÐ FARÞEGAR
ÞYNGJAST UM
HÁLFT KÍLÓ Á
DAG Á SIGLINGU
MEÐ SKEMMTI-
FERÐASKIPUM.
RÚMLEGA EITT
ÞÚSUND FAR-
ÞEGAR VORU
SPURÐIR Í
KÖNNUNINNI.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s 512 5432
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Börnin í leikskólanum Aðalþingi í Kópavogi hafa undanfarna mán-uði fengið einstakt tækifæri til að
skoða heiminn. Ekki fór hópurinn þó í
langferðalag heldur tveir fyrrverandi
starfsmenn skólans, þau Alexandra Sif
Herleifsdóttir og Jón Hinrik Höskulds-
son. Í janúar lögðu þau af stað í nokkurra
mánaða bakpokaferðalag um Bandaríkin,
Kyrrahafseyjarnar og Asíu. Þau hringja
reglulega heim til barnanna með síma
sem inniheldur kvikmyndavél. Þannig
sjá börnin hvar þau eru stödd í rauntíma
og geta talað við þau á meðan mynd af
ferðalöngunum er varpað á tjald. Eðli-
lega hafa margar skemmtilegar spurn-
ingar vaknað hjá börnunum. Hafa Jón og
Alexandra séð hákarl? Hvers vegna eru
bara mótorhjól í Víetnam? Hafið þið séð
vélmennahús? Hvar ætlið þið að sofa?
Voruð þið hrædd við pöddurnar á kló-
settinu? Er hægt að leika sér þarna?
FYRIRMYNDAR LANDAFRÆÐINEMAR
Börnin hafa lært heilmikið af ferðalaginu.
Þau eru með það alveg á hreinu hvar í
heiminum Nýja-Sjáland og Fiji-eyjar eru.
Þau vita að Alexandra og Jón köfuðu í
sjónum með öndunarpípu og sáu þar
stóra skjaldböku sem var jafnstór og
Björgvin. Þau vita að parið borðaði kaktus
og súpu með prjónum í Víetnam. Á Nýja-
Sjálandi sáu þau kívífugl sem hafði enga
vængi, bara fætur, stórt nef og feitan maga
því hann borðaði svo marga kívíávexti.
FIJI-EYJAR KOMIÐ MEST Á ÓVART
Alexandra og Jón segja ferðina hafa
verið mikið ævintýri. Nú þegar hafa þau
ferðast til Bandaríkjanna, Mexíkó, Fiji-
eyja, Nýja-Sjálands, Ástralíu, Víetnam,
Kambódíu og Taílands. Næst á dag-
skrá eru Singapúr og að lokum England.
Hingað til hafa Fiji-eyjar og Víetnam
komið mest á óvart að þeirra sögn. „Við
ætluðum bara að dvelja í tvær vikur í
Víetnam en vorum þar í mánuð. Fiji-
eyjar komu samt mest á óvart. Þar býr
yndisleg þjóð sem hefur sinn eigin tíma
og þar geta tíu mínútur auðveldlega
orðið að tveimur klukkutímum.“
FERÐAST UM HEIMINN
FERÐALAG Skjaldbökur, mótorhjól, hákarlar, kívífuglar og pöddur koma við
sögu í landafræðikennslu hjá krökkunum á Aðalþingi.
SÓL OG SUMAR
Í kajakferð í þjóðgarð-
inum Abel Tasman á
Nýja-Sjálandi.
Í KAFI
Kafað við strandbæinn
Nha Trang í Víetnam.
MYNDIR/ÚR EINKASAFNI
TÆKNI „Viljið þið
segja okkur meira frá
kindinni sem hélt að
hún væri hundur?“
spyrja börnin í leik-
skólanum Aðalþingi.
MYND/VILHELM GUNNARSSON
Skipholti 29b • S. 551 0770
SUMARDAGAR
15% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM VÖRUM
Langar þig að starfa í ört vaxandi atvinnugrein
– eða ertu starfandi í ferðaþjónustu?
Kynntu þér spennandi nám sem býður upp á mörg tækifæri og möguleika
Innritun lýkur 31. maí
STARFSTENGT FERÐAFRÆÐINÁM
Ferðamálaskólinn sími: 594 4020
Ævintýralegur
starfsvettvangur
FERÐAMÁLA
SKÓLINN
WWW.MK.IS
ÚTVARPS-
STÖÐVAR
Í BEINNI5
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
Save the Children á Íslandi