Fréttablaðið - 09.05.2012, Síða 40
„Þegar ég heyrði fyrst talað um að
drykkja væri sjúkdómur hafði ég stað-
ið í þeirri trú að þetta væri bara aum-
ingjaskapur. Nú veit ég að þetta er
ágengur sjúkdómur og veit satt að
segja ekki hvenær verður farið að tala
um faraldur í þessu samhengi,“ seg-
ir Árdís Þórðardóttir og lýsir því að á
hennar heimili hafi búið þrjár kyn-
slóðir alkóhólista.
„Pabbi minn sem var yndislegur
maður misnotaði áfengi en á þeim
tíma voru alkóhólistar varla til, svo
mikil breyting hefur orðið. Að vera
uppkomið barn setti mark sitt á mig.
Ég get sagt sem dæmi að ég var ekki
gömul þegar ég bað pabba ítrekað að
hætta að drekka. Hann sagðialltaf já
en stóð ekki við það og þá fannst mér
að mér hefði mistekist. Ég sé núna eft-
ir á að ég brást við með því til dæmis
að verðaofvirk í íþróttum og skaraði
þar fram úr í ýmsum greinum. Topp-
urinn á mínum ferli varð þegar ég var
Íslandsmeistari á skíðum í fjöldamörg
ár. En það hvarflaði aldrei að pabba
mínum elskulegum að mögulega væri
hann veikur af alkóhólisma og að hægt
væri að ná bata af sjúkdómnum,“ út-
skýrir Árdís.
Um tvítugt kynntist hún svo efni-
legum, fallegum og góðum manni.
Þau fóru bæði í nám í Háskóla Íslands
og luku svo framhaldsnámi í Banda-
ríkjunum. Allt gekk vel. Þau voru gift
í 34 ár og gerðu frábæra hluti saman,
flottastir eru synir þeirra tveir. Maður-
inn þróaði snemma með sér alkóhól-
isma en áttaði sig ekki fyrr en seint og
um síðir og náði ekki tökum á batan-
um svo leiðir skildu. Þriðja kynslóðin
er svo sonur þeirra frábæri, sem fór
að reykja hass og breyttist þá á undra-
skömmum tíma í svartnættið eins og
Árdís orðar það. Hún segir að hann
sé brokkgengur í bata og hafi ekki enn
sætt sig við sjúkdóminn en hún er viss
um að hann náifyrr eða síðar tökum á
sínum veikindum.
Algjör afneitun
Um áratugur er síðan Árdís fór að átta
sig á hve alvarleg áhrif alkóhólisminn
hefur haft á hana sjálfa. Hún fór fyrst
á fjölskyldunámskeið hjá SÁÁ fyrir
30 árum því hún vissi að maðurinn
hennar fór illa með áfengi og henni
leið ekki vel með það. „Ég drattaðist á
námskeiðið til að geta merkt við að ég
væri búin að fara á námskeið og það
væri ekkert að mér. Mín afneitun var
algjör, ég sá það seinna, en á nám-
skeiðinu lærði ég að alkóhólismi er
sjúkdómur og náði að skilja það,“ seg-
ir hún.
Næstu tvo áratugina jókst svo van-
líðan hennar og hún var orðin mjög
einangruð. Öll samskipti voru yfir-
borðskennd. „Ég hafði lítið samband
við fólk og var eiginlega hætt að um-
gangast foreldra mína og systkini. Ég
var alltaf að flýta mér, löngu hætt að
sjá sólina, fuglana og blómin. Ég æddi
bara áfram og stóð mig fínt. En undir
niðri varmikil vanlíðan. Ég fór svo á
fjölskyldunámskeið númer tvö hjá SÁÁ
og lærði þar að alkóhólismi væri ekki
bara sjúkdómur, hann væri fjölskyldu-
sjúkdómur,“ segir Árdís og kveðst í
framhaldinu hafa kynnt sér tólf spora
starf og hitt konu sem hafi heillað sig.
Af henni geislaði gleði, ánægja, kær-
leikur og vellíðan. „Ég vildi verða eins
og þessi kona,“ segir hún.
Líkamleg álagseinkenni
Árdís fór ekki strax á tólf spora fundi.
„Ég uppgötvaði seinna að stjórnsemi
mín var orðin svo mikil aðég gat ekki
sleppt augunum af mínu nánast um-
hverfi í eina klukkustund á viku. Ég var
farin að finna fyrir líkamlegum álags-
einkennum. Eina nóttina vaknaði ég
og náði varla andanum. Mér fannst
ég vera að deyja en sem betur fer náði
öndunin að verða eðlileg á ný. Áttaði
mig þarna á að ég þyfti að gera eitt-
hvað í málinu. Í kjölfarið fór ég á tólf
spora fund og í framhaldinu byrjaði
ég að setja mína batagöngu í forgang,“
segir hún og lýsir því hve þungu fargi
hafi verið af sér létt þegar hún las í ráð-
stefnu samþykktu lesefni að hún hefði
ekki komið sjúkdómnum af stað, geti
ekki stjórnað honum og heldur ekki
læknað hann.
„Smám saman hef ég komist að
því að það eina sem ég get gert er
að aga sjálfa mig, halda mér á minni
torfu, sleppa tökunum og leyfa öðr-
um að lifa. Ég er að ná þessu að
minnsta kosti öðru hvoru. Mér leið
stundum eins og ég væri í auganu á
fellibylnum en sú tilfinning kemur
sjaldnar og sjaldnar. Á þessari bata-
göngu hef ég líka kynnst Kjarnakon-
um SÁÁ og þær hjálpuðu mér að
brjótast út úr einangruninni, fara að
umgangast annað fólk og æfa mig í að
setja sjálfri mér mörk, svo og öðrum
og átta mig á því að hægt segja nei fal-
lega. Öll samskipti hafa batnað mik-
ið og ég fer sjaldnar inn í þetta fár. Ég
reyni bara að hafa líf mitt einfalt og lifa
í jafnvægi einn dag í einu. Mér finnst
ég vera á réttri leið og það er ótrúlega
góð tilfinning,“ segir Árdís.
Alkóhólistar eru venjulegt fólk
Ekki er skortur á alkóhólistum í kringum ÁRDÍSI ÞÓRÐARDÓTTUR. Þeir eru allsstaðar enda er í dag talað um að fimmti hver einstaklingur
sem tekur fyrsta glasið þrói með sér sjúkdóminn. Árdís hefur unnið að sínum bata sem aðstandandi í tíu ár.
12 maí 2012
10
Á
ST
Æ
ÐU
R F
YR
IR Þ
VÍ AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ KAUPA ÁLFIN
N7
Börn alkólista í áhættuhópi:
Gleymum ekki börnunum
Alkóhólismi er fjölskyldusjúkdómur:
Meðferð fyrir aðstandendur
Í dag er vitað að börn alkóhólista eru í
miklum áhættuhópi um að þróa með sér
sjúkdóminn síðar á lífsleiðinni. SÁÁ hefur
þróað forvarnarstarf fyrir börn alkóhól-
ista á aldrinum 8-18 ára og hefur síðustu
ár verið boðið upp á sálfræðiviðtöl og ráð-
gjöf. Áhugasamir geta nálgast ýtarlegri
upplýsingar á hjá samötkunum en þetta
verkefni hefur mætt furðu litlum skilningi
yfirvalda.
Lárus Blöndal, sálfræðingur hjá SÁÁ,
hefur farið fyrir verkefninu og hann
þreytist ekki að benda á að ekki megi
gleyma þeim þúsundum barna sem þurfa
að búa við alkóhólisma á Íslandi. Í Noregi
hafa yfirvöld skilgreint þennan hóp barna
og gefið þeim sömu réttarstöðu og barna
sem eiga alvarlega veika eða slasaða for-
eldra.
Enn fær SÁÁ aðeins lítinn hluta af
kostnaði við þessa sjálfsögðu þjónustu við
börn alkóhólsta greidda af hálfu yfirvalda
á Íslandi. Félagar í samtökunum greiða
með þjónustunni sem og safnanir á borð
við álfasöluna sem nú fer í hönd. Mikil-
vægt er að samfélagið átti sig á að alkó-
hólismi er fjölskyldusjúkdómur og hægt
að hefja forvarnir mun fyrr.
SÁÁ hefur í áratugi boðið upp á svokall-
aða fjölskyldumeðferð. Meðferðin sjálf
tekur um fjórar vikur og leitast er við að
auka þekkingu þáttakenda á fíknisjúk-
dómum, einkennum þeirra og hvaða áhrif
fjölskyldusjúkdómurinn alkóhólismi
hefur á alla þá sem búa í návígi við hann.
Þá er reynt að aðstoða þátttakendur til að
hrinda af stað breytingum til bóta innan
fjölskyldunnar.
Meðferðin er á þriðjudögum og
fimmtudögum frá kl. 17:30 til 20:00 og
kostar 8.000 kr. Stuðningshópur fyrir að-
standendur eru í boði í framhaldi af 4
vikna meðferðinni.Nánari upplýsingar
fást hjá ráðgjöfum SÁÁ í síma 530-7600.
Fólki á landsbyggðinni er bent á helgar-
fjölskyldumeðferð SÁÁ.
Í KJÖLFARIÐ FÓR ÉG Á TÓLF
SPORA FUND OG Í FRAMHALDINU
BYRJAÐI ÉG AÐ SETJA MÍNA
BATAGÖNGU Í FORGANG.
ÁRDÍS ÞÓRÐARDÓTTIR
Aðstandandi í bata: „Mér finnst
ég vera á réttri leið og það er
ótrúlega góð tilfinning.“
MEÐVIRKNI Hægt er að nálgast
upplýsingar um fjölskyldunámskeið
SÁÁ á vef samtakanna, www.saa.is.
LÁRUS BLÖNDAL
Sálfræðingur hjá SÁÁ.