Fréttablaðið - 09.05.2012, Page 42
Mikill árangur SÁÁ með
unga fólkið
14 maí 2012
10
Á
ST
Æ
ÐU
R F
YR
IR Þ
VÍ AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ KAUPA ÁLFIN
N9
0
10
20
30
40
50
60
70
80
19
9
1
19
9
2
19
9
3
19
9
4
19
9
5
19
9
6
19
9
7
19
9
8
19
9
9
2
0
0
0
2
0
0
1
2
0
0
2
2
0
0
3
2
0
0
4
2
0
0
5
2
0
0
6
2
0
0
7
2
0
0
8
2
0
0
9
2
0
10
FJÖLDI EINSTAKLINGA SEM ERU 19 ÁRA
OG YNGRI OG KOMU Á VOG OG HÖFÐU
SPRAUTAÐ VÍMUEFNUM Í ÆÐ 19912011
Nýir Allir Reglulega
ENDURKOMUR UNGLINGANNA SEM
KOMU Í FYRSTA SINN Á VOG ÁRIÐ 2000
Fjöldi einstaklinga Fjöldi koma
250
300
200
150
50
0
2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010
100
Mikið hefur breyst síðustu fimmtán
ár hvað varðar neyslu ungmenna á
vímuefnum. Kannabis hefur tekið
við af áfengi sem aðalfíkniefni ungs
fólks. Helmingur stúlkna sem kem-
ur á Vog reykir kannabis daglega og
hjá drengjum er hlutfallið þannig að
um tveir þriðju þeirra reykja daglega.
Undir 10% krakkanna drekka á hverj-
um degi.
Rétt fyrir aldamótin varð sprenging
í neyslu ólöglegra vímuefna á Íslandi
og kom sú sprenging sérstaklega nið-
ur á unglingum á aldrinum 14-18 ára.
Reynsla SÁÁ hefur sýnt að vímefna-
vandi unglinga er jafn alvarlegur og
þrálátur og hjá þeim eldri.
Yngra fólk og erfiðara
„Sjúklingahópurinn hefur breyst mik-
ið,” útksýrir Þórarinn Tyrfingsson, yf-
irlæknir á Vogi, en samkvæmt honum
þá hefur fækkað í ákveðnum sjúk-
lingahópi síðustu áratugi og sá hópur
eru karlmenn á aldrinum 25-40 ára.
Oft er það talið vera sá hópur sem býr
við bestu félagslegu aðstæðurnar og
bestu heilsuna.
„Sjúklingahópurinn í heild er því
erfiðari því framfarir okkar í meðferð-
inni sjálfri hefur aukið getu okkar til
að sinna vandamálinu á styttri tíma
og betur,” heldur Þórarinn áfram og
bendir á að fyrrnefndur hópur karla
fer oft beint á göngudeild og þarf
ekki á langri meðferð að halda. „Í dag
erum við að sinna yngra fólki og svo
miklu eldra fólki og það er vissulega
þyngra.”
Í ljósi þessa þarf það unga fólk
sem nú kemur til meðferðar oft meiri
úrræði þegar út í lífið er komið. SÁÁ
starfrækir sérstaka eftirmeðferð fyrir
ungt fólk og hægt er að nálgast allar
upplýsingar um það starf á vef sam-
takanna, www.saa.is.
Unglingadeildin
sannað gildi sitt
Einn af hverjum tíu unglingum sem
koma á Vog hafa sprautað sig og í
raun situr þjóðin uppi með mikinn og
langvinnan vímuefnavanda hjá ungu
fólki þótt mikið hafi verið bætt með
betri meðferð fyrir ungt fólk.
Í raun má segja að Unglinga-
Síðusta áratug og vel rúmlega það hefur
orðið sprenging í áfengis- og vímuefnaneyslu
Íslendinga. UNGA FÓLKIÐ hefur ekki farið
varhluta af því og um aldarmótin horfði til
ófremdarástands. SÁÁ brást skjótt við og með
hjálp álfasöfnunar og dyggs stuðnings frá
félögum í samtökunum var stofnuð sérstök
unglingadeild sem þegar hefur sannað gildi sitt.
deildin á Vogi hafi þegar sannað
gildið sitt. Ef litið er til endurkomu
unglinga á Vog sýna tölur svo ekki
verður um villst að mikill árangur
hefur náðst. Árið 2000 komu á þriðja
hundrað ungmenna undir tvítugu á
Vog, árið eftir komu næstum hundr-
að af þeim aftur. Ári þar á eftir um 50
og svo hefur þeim fækkað jafnt og
þétt sem þurfa að koma aftur á Vog
en alkóhólismi er þrálátur sjúkdóm-
ur sem þarf að sinna alla ævi. Svo má
benda á að eftir að Unglingadeildin
var stofnuð fyrir tólf árum hafa ekk-
ert af þessum krökkum sem komu á
Vog látist.
MIKILL ÁRANGUR MEÐ UNGT FÓLK Rétt fyrir aldamótin varð
sprenging í neyslu ólöglegra vímuefna á Íslandi og kom sú sprenging
sérstaklega niður á unglingum á aldrinum 14-18 ára.
Falinn vandi eldra fólks:
12% karla á elliheimilum alkóhólistar
Um 12% þeirra karla sem nú eru á leið
á elliheimili hafa komið á Vog og sam-
kvæmt læknum á Vogi þá fara þessir
menn öðruvísi með lyf og slíkt.
„Við verðum að horfast í augu við
staðreyndirnar eins og þær eru,” segir
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi,
því þessar upplýsingar segja okkur að
það er fólk þarna úti með þennan krón-
íska vanda sem hverfur ekkert þótt fólk
eldist.
„Þetta er fólk sem getur þurft verkajalyf
og fær svefntruflanir eins og aðrir. Það
fær þunglyndiseinkenni og kvíðaeinkenni
en það þarf að meðhöndla slíkt öðruvísi
hjá alkóhólistum.”
ELDRA FÓLKI
FJÖLGAR Á VOGI
Á síðustu árum hefur eldra og
miðaldra fólki fjölgað mjög á Vogi og
er þessi hópur í dag orðinn stærri en
unga fólkið í sjúklingahópnum.
Edrú TV
Á vef samtakanna, www.saa.is,
höfum við síðustu mánuði verið
að þróa beinar útsendingar frá
viðburðum á vegum SÁÁ. Til
dæmis höfum við sýnt beint frá
Hollt í hádeginu á þriðjudögum
og Samtölum um alkóhólisma og
ýmislegt á miðvikudagskvöldum.
Eftir að beinni útsendingu líkur
eru upptökurnar aðgengilegar á
vefnum.
400 langt
leiddir fíklar
Um 400 manns skipa hóp sem
má kalla langt leidda fíkla. SÁÁ
hefur sett spurningamerki við
gistiskýli niðri í bæ og vill búa
hinum langt leiddu aðstöðu fjarri
miðbænum, nær þeirri þjónustu
sem SÁÁ getur veitt. Læknar
á Vogi hafa miklar áhyggjur
af þessum hópi en sífellt fleiri
fylgikvillar örvandi vímefna-
neyslu hafa verið að koma í ljós
og HIV-veiran hefur látið á sér
kræla í hópnum.
Um 50 manns
deyja á ári
Ástandið hvað varðar dauðs-
föll úr sjúklingahópi SÁÁ var
verst í kringum aldarmótin. Þó
deyja enn um 50 manns á ári og
hefur það haldist stöðugt. Sömu
vandræði eru víðsvegar um
heiminn og hafa Bandaríkjamenn
nýlega farið að horfast í augu við
að dauðsföll vegna morfínsefna
hafa tekið fram úr dauðsföllum
vegna umferðarslysa í mörgum
fylkjum. Við á Íslandi þökkum
fyrir að morfínsfaraldurinn hér
á landi er í stöðnun en dauðsföll
tengd örvandi vímuefnaneyslu,
sem er veruleg hér á landi, eru
þannig að fólk deyr seinna.