Fréttablaðið - 09.05.2012, Page 48
„Hjá Atlanta starfa á annað hundrað íslenskir
flugmenn sem oft eru staðsettir utan Íslands,“
segir Gnúpur Halldórsson, forstöðumaður upp-
lýsingasviðs fyrirtækisins. „Með þennan fjölda
starfsmanna er dálítið erfitt að útvega öllum
símakort með opnum reikningi og því höfðum
við samband við Símann og spurðum hvort
það væri möguleiki að aðgreina símtöl. Að öll
símtöl sem hringd væru utan Íslands í okkar
símanúmer myndu gjaldfærast á fyrirtækið
en þau símtöl sem væru „persónuleg“ færu
á símreikning viðkomandi starfsmanns.“
„Áður þurftu flugmenn að vera með síma
til eigin nota, en líka vinnutengdan síma. Og
stundum þurftu þeir að fara yfir símreikningana
sína og rukka sérstaklega fyrir þau símtöl sem
tengd voru vinnunni. Þetta var náttúrulega
heilmikið vesen, bæði fyrir okkur og þá.“
Gnúpur segir að Atlanta hafi haft samband
við Símann, sem hafi strax lagt í vinnu við að
breyta kerfunum hjá sér til þess að gera þetta
kleift. „Síminn steig skrefið og kom til móts við
okkur með þjónustu sem kallast GSM Yfirsýn,“
segir Gnúpur. Að hans mati hefur skapast mikið
hagræði af þjónustunni, bæði fyrir flugmennina
og fyrirtækið.
Með GSM Yfirsýn getur Síminn boðið fyrir-
tækjum mun meiri sveigjanleika á þessu sviði.
Fyrirtækin fá yfirsýn yfir það hvernig farsíma-
notkun þeirra skiptist, bæði innanlands og
erlendis, og geta síðan skipt farsímakostnaði
með starfsmönnum eftir notkun, til þæginda
fyrir alla.
„Nú þurfum við ekki að standa í neinu veseni
með símreikninga eins og áður. Það sem líka
fylgir þjónustunni er að ef við hringjum í flug-
mennina þegar þeir eru staddir erlendis, þá
fáum við reikninginn, en þeir fá reikninginn fyrir
persónulega notkun. Eins og eðlilegt er.“
„Farsímavefur GSÍ er
fljótleg og þægileg lausn
bæði fyrir byrjendur
og atvinnumenn“
Stjörnukylfingurinn
Alfreð Brynjar Kristinsson
Ekki lengur með tvo síma
– og allt reikningavesen
úr sögunni
GSM YFIRSÝN, NÝ ÞJÓNUSTA
Síminn þróaði GSM
Yfirsýn með þarfir
flugmanna Atlanta í huga
„Við höfðum samband við Símann og það var komið til móts við
okkur með lausn sem hentar fullkomlega,“ segir Gnúpur Halldórsson
forstöðumaður upplýsingasviðs Atlanta.
6 ı siminn.is