Fréttablaðið - 09.05.2012, Síða 56

Fréttablaðið - 09.05.2012, Síða 56
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Skúli Mogensen fjárfestir ERLENT MYNDBAND Áratugur tækifæranna í Kanada MANFRED MANN´S EARTH BAND Blinded By The Light · Mighty Quinn · Davy´s On The Road Again Manfred Manns´s Eart Band er frábært tónleikaband og hafa þeir verið að fá frábæra dóma þar sem þeir hafa verið að spila Háskólabíó 16. maí midi.is HLJÓMSVEITIN ELDBERG HITAR UPP FYRIR SNILLINGANA Verð frá 5.990 kr Á forsíðu Fréttablaðsins í gær var greint frá því að alls 3.541 félag hefur ekki skilað inn ársreikningi vegna ársins 2010 á réttum tíma. Auk þess eiga 1.897 félög eftir að skila inn reikningi vegna ársins 2009, 1.594 vegna ársins 2008 og 886 vegna ársins 2007. Þá er búið að draga frá þau félög sem hafa orðið gjaldþrota eða búið er að afskrá í bókum fyrirtækjaskrár. Til að setja þetta í samhengi þá voru 3.327 einkahlutafélög nýskráð á Íslandi á árunum 2010 og 2011. Vanskilin eru þess vegna sambæri- leg við að öll nýskráðu félögin á þessum tveimur árum, og 214 til viðbótar, myndu ekki skila inn árs- reikningi sínum á réttum tíma. Viðurlögin við því að skila ekki ársreikningum átta mánuðum eftir að uppgjörsári lýkur, og upplýsa þar með ekki um stöðu viðkomandi félags, er 250-500 þúsund króna sekt. Upphæðin fer eftir hversu mörgum ársreikningum félagið hefur trassað að skila inn, nema að það teljist stórt. Þá má vísa því til frekari rannsóknar hjá skattrann- sóknarstjóra sem getur haft í för með sér aukin viðurlög. Til að falla í þann flokk þurfa fyrirtækin þó að uppfylla tvö af eftirfarandi skilyrðum: eiga eignir sem nema meira en 230 milljónum króna, vera með rekstrartekjur sem eru meiri en 460 milljónir eða vera með yfir 50 starfsmenn. Þar sem langflest einkahlutafélög eru stofn- uð til eignaumsýslu, til dæmis með hlutabréf eða fasteignir, þá uppfylla þau ekki ofangreind skilyrði. Fyrir kröfuhafa, fyrrum hluthafa, keppinauta eða opinberar eftirlits- stofnanir sem hafa alls kyns og mis- munandi hag af því að sjá uppgjör ýmissa félaga er þetta afar bagalegt. Með þessum hætti geta eigendur félaga sem skila ekki inn upp- gjöri árum saman borgað nokkur hundruð þúsund krónur einu sinni á ári og haldið öllum í myrkrinu um hvað þau hafa verið að sýsla, hvernig raunveruleg skuldastaða þeirra er, hvaða eignir hafa verið færðar út úr viðkomandi félagi, hvers konar samningar hafa verið gerðir við fjármálafyrirtæki um skuldaniðurfærslur eða upp- greiðslur á óveðtryggðum lánum, og svo framvegis. Það má jafnvel halda því fram að þessi vanskil varði almanna- hagsmuni í sumum tilfellum, enda sum félög sem hafa ekki skilað ársreikningum í fjölda ára eigendur risavaxinna rekstrarfélaga sem bera milljarða skuldir. Þær skuldir er oft hægt að þjónusta með því að velta auknum fjármagnskostnaði yfir á neytendurna sem þurfa að kaupa vörur af viðkomandi rekstrarfyrir- tækjum. Í ljósi þeirrar almennu kröfu sem virðist vera í samfélaginu um gegnsæi þá er þetta ástand ólíðandi. Og það þarf að laga sem allra fyrst. Að borga sig frá birtingu Þórður Snær Júlíusson BANKAHÓLFIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.