Fréttablaðið - 09.05.2012, Side 60

Fréttablaðið - 09.05.2012, Side 60
9. maí 2012 MIÐVIKUDAGUR20 BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðs- sonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. létu, 6. pfn., 8. fýldur, 9. gogg, 11. gjaldmiðill, 12. sljóvga, 14. yfirstéttar, 16. ólæti, 17. gagn, 18. flott, 20. peninga, 21. framkvæma. LÓÐRÉTT 1. umdæmis, 3. hæð, 4. flokkur sýkla- lyfja, 5. dýrahljóð, 7. matarlím, 10. óvild, 13. of lítið, 15. bakhluti, 16. ái, 19. ónefndur. LAUSN LÁRÉTT: 2. gáfu, 6. ég, 8. súr, 9. nef, 11. kr, 12. slæva, 14. aðals, 16. at, 17. nyt, 18. fín, 20. fé, 21. inna. LÓÐRÉTT: 1. léns, 3. ás, 4. fúkalyf, 5. urr, 7. gelatín, 10. fæð, 13. van, 15. stél, 16. afi, 19. nn. Hættu nú! Við höfum þurft að berjast á móti straumnum en þínir blautu draumar um að sjá Pool í The Wankership eru alveg út úr kú! Því knattspyrnu- félagið Liverpool fellur aldrei... ALDREI!! Haltu kjafti! Ég er kominn heim. Hæ Palli minn. Hvernig var í pókernum? Heldurðu? Við leggjum svo furðulega hluti undir, þannig að það er erfitt að meta þetta. Ég kom út á sléttu, held ég. Yfirstjórn þessa fyrirtækis gerir mig alveg brjálaðan. Spáðu í þetta, eftir 20 ára starf, fæ ég bara klapp á bakið! Pff! bara ef ég væri svo heppinn! Hvað eru krakkarnir þínir gamlir? Látum okkur sjá, sjö, fjögurra... Nei, bíddu. Átta, fimm og... eða var það fimm eða sex? Og 17 mán- aða, nei... það stenst ekki. Segjum bara að meðalaldurinn sé fimm. Elliðaárdalurinn komst í brennidepil í fyrradag þegar greint var frá því að fulltrúar Vinstri grænna í borginni legð- ust gegn því að leikfimistöðin Boot Camp – eða Bússubúðir eins og kollegi minn kýs að þýða það – fengi þar æfingaaðstöðu. Telur flokkurinn ekki fara „vel á því að koma fyrir á þessu svæði líkamsrækt með herbúðasniði, hávaða og yfirbragði sem því fylgir, bílastæðaþröng og mikilli umferð bíla“ og vill finna húsum á svæð- inu „heppilegra hlutverk í sátt við mann- líf, sögu og náttúrulegt umhverfi“. FORSAGA málsins er sú að í tíð R-listans – sem Vinstri græn tóku þátt í – gaf borgar- stjórn Fornbílaklúbbnum lóð í Elliða- árdal án kvaða til að byggja bílasafn. Þar var byggt sýningarhús og lagður vegur með það beinlínis að markmiði að auka umferð og laða að fleira fólk í dalinn. Þegar bíldellingar hurfu frá áformum sínum um bautastein fyrir bensínháka fyrri tíma var þeim frjálst að selja aðstöðuna hæstbjóðanda, sem leigir leikfimistöðinni húsið. Og slík starfsemi hugnast Vinstri græn- um ekki. ÉG HEFÐI reyndar hald- ið að flokkur eins og Vinstri græn fagnaði leikfimistöð í Elliða- árdalnum í stað safns til heiðurs einkabílnum (hvers vægi flokknum er mikið í mun að minnka). And- staðan er ekki síst forvitnileg í ljósi þess að Bússubúðir eru í sjálfu sér eins Vg-legt fyriræki og hugsast getur: lítið sprotafyr- irtæki sem nokkrir vinir stofnuðu og legg- ur áherslu á tiltölulega sjálfbæra líkams- rækt, það er þrekæfingar þar sem lóðum og tækjabúnaði er haldið í lágmarki svo aðstaðan tekur lítið pláss. BÚSSUBÚÐIR eru í raun andstaðan við líkamsræktarstöðvar á borð við pláss- freka orkusvelginn í Laugardalnum, sem kostaði formúu að byggja og innrétta með sjónvarpsvæddum hlaupabrettum, nýtur góðs af nálægðinni við Laugardalslaug – sem er í almannaeigu – og hefur losað sig úr skuldasúpu með kennitöluflakki. AF umræðum meðal Facebook-vina minna að dæma virðist ásteytingarsteinninnn um veru Bússubúða í Elliðaárdal aðallega vera ólík sjónarmið um notkun grænna svæða. Hér takast á þau systkin frið- sæld og fjör. Á sumum má helst skilja að grænna svæða sé ekki hægt að njóta nema liggjandi við kyrrlátan árbakka með punt- strá í munni að dást að bláklukkum og fá innblástur að ljóði, meðan aðrir líta á útvistarsvæðin sem kjörlendi til að finna kröftum sínum viðnám. Á þessu hlýtur að mega finna einhvern milliveg. Fyrst við erum á annað borð komin út á tún. Grænir eru dalir þínir ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17. Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali. Gullsmári - 4ra herbergja íbúð Falleg og vel skipulögð 94,4 fm. íbúð á 5. hæð að meðtalinni sér geymslu í kjallara. Rúmgóð stofa með útgangi á svalir til suðausturs. Þrjú svefnher- bergi. Sjónvarpshol. Eldhús með sprautulökkuðum og mahogny innrétt- ingum. Baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sameign til fyrirmyndar. Stutt í þjónustumiðstöð eldri borgara. Verð 27,5 millj. Tillaga að deiliskipulagi fyrir Möðrudal á Fjöllum, Fljótsdalshéraði. Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi fyrir Möðrudal á Fjöllum, Fljótsdalshéraði dags. 24.04.2012 skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, sem samþykkt var í bæjarstjórn þann 02.05.2012. Skipulagssvæðið afmarkast eins og fram kemur á deiliskipulagstillögunni og felur m.a. í sér skipulag fyrir bæjarstæðið á Möðrudal, sem er um 10,8 ha að stærð. Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofunni Lyngási 12 og á heimasíðu sveitarfélagins „egilsstadir.is“ frá 10.maí til 21. júní 2012. Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til og með fimmtudagsins 21. júní 2012. Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og byggingarnefndar á bæjarskrifstofu Fljótsdalshéraðs. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir. Fljótsdalshéraði 10.05.2012 skipulags- og byggingarfulltrúi Fljótsdalshéraðs. Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.