Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.06.2012, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 02.06.2012, Qupperneq 2
2. júní 2012 LAUGARDAGUR2 DÓMSMÁL „Hér eru nágrannar að skipa manni að deyða sín eigin tré inni á manns eigin lóð,“ segir Gunnar Jónsson, eigandi íbúðar- hússins í Leirutanga 29, sem nú er hótað málsókn vegna hárra aspa sem nágrannar til beggja handa segja skyggja á sólina og valda tjóni og óþrifnaði. Tvenn hjón sem búa hvor til sinnar handar við Leirutanga 29 krefjast þess með atbeina Húseig- endafélagsins að fimmtíu til sex- tíu hávaxnar aspir á lóðinni hverfi þaðan. Sólar njóti ekki sem skyldi á Leirutanga 31 og þurft hafi að hækka framlóðina við Leirutanga 27 vegna róta frá öspunum. Þá séu íbúar beggja húsanna langþreyttir á óþrifnaði frá trjánum. „Á vorin er það límkennda har- pixið frá hýðinu sem festist á bíla og fleira. Síðsumars er það fræullin sem myndar hvíta drífu á nágrannalóðum, gangstéttum og götum,“ segir í bréfi lögmanns Húseigendafélagsins sem vísar í dóm þar sem húseiganda var gert að fjarlægja tré vegna skugga- myndunar. „Eigendur Leirutanga 27 og Leirutanga 31 hafa nú falið und- irritaðri að gera þá kröfu að þér fellið, fjarlægið og deyðið aspirn- ar,“ segir lögmaðurinn í bréfinu og gefur Gunnari eins mánaðar frest til verða við kröfunni. „Þetta bréf hljómar eins og skipun frá dómstól,“ segir Gunn- ar sem kveðst alls ekki ætla að fara að kröfum Húseigendafélags- ins og nágrannanna í Leirutanga. Hann gagnrýnir Húseigendafé- lagið fyrir að hafa aldrei rætt við hann áður en kröfubréfið var sent. Skýringuna á þeim vinnubrögðum rekur hann til viðhorfa sem for- maður félagsins hafi sett fram í blaðagreinum. „Hann er bókstaf- lega búinn að frísa af grimmd gegn öspum.“ Gagnrýni nágrannanna vísar Gunnar á bug. „Það er allsendis út í loftið,“ segir hann um fullyrðing- ar um tjón og óþrif af völdum asp- anna. „Auðvitað fýkur af trjám en það fýkur jafnt af trjám réttlátra sem ranglátra.“ Þá segir Gunnar trén orðin á bilinu þrjátíu til fjörutíu ára og því friðhelg fyrir aldurs sakir. „Fyrir utan að það er nú þegar búið að fella þau flest,“ bætir hann við og útskýrir að hann hafi orðið við ýmsum beiðnum nágrannana og fellt sum tré og leyft að greinar yrðu sagaðar af upp í fimm metra hæð til að hleypa sólarljósi að. Eftir að hann hafi leigt húsið út hafi enn fleiri tré verð felld með samþykki konu hans – þótt það hafi reyndar ekki verið með hans vit- und og vilja. Nú vilji nágrannarnir meira. „Þetta bréf er bara skipun um að ég drepi tréin mín,“ segir Gunnar sem lýsir kröfunni sem inngripi í hans eignarrétt. gar@frettabladid.is Deyðið aspirnar segja sólarlausir nágrannar Nágrannar Leirutanga 29 í Mosfellsbæ hóta málsókn ef eigandinn „deyðir“ ekki hávaxnar aspir. Þeir segjast ekki njóta sólar og aspirnar valdi tjóni og óþrifnaði. Trjáeigandinn vísar slíkum fullyrðingum á bug. Trén séu friðhelg vegna aldurs. GUNNAR JÓNSSON ASPAEIGANDI Frumbyggi í Leirutanga í Mosfellsbæ stendur óhagganlegur andspænis kröfum nágranna á báða bóga sem vilja gömlu aspirnar hans á bak og burt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LÖGREGLUMÁL Tæplega þrítug kona sætir nú gæsluvarðhaldi eftir að hún missti á fimmta hundrað grömm af alsæludufti úr leggöngum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Konan er af erlendu bergi brotin og var að koma frá Kaup- mannahöfn þegar grunur vakn- aði um að hún hefði fíkniefni í fórum sínum. Á meðan verið var að ræða við hana missti hún niður af sér fíkniefnin sem hún hafði falið í leggöngum sínum, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu. Rannsókn málsins er á lokastigi. - sh Kona um þrítugt í varðhaldi: Missti alsælu úr leggöngunum NOREGUR Fjöldamorðinginn And- ers Behring Breivik eyddi alls um 390 þúsund norskum krónum, sem nemur rúmum 8,3 milljón- um íslenskra króna, í skipulag og framkvæmd ódæðanna í fyrra- sumar. Þetta kom fram við rétt- arhöldin í gær. Um þriðjungur fór í smíði sprengjunnar sem sprakk í mið- borg Óslóar, um 1,7 milljónir í tækjakaup, rúm milljón í vopn og skotfæri og um 120 þúsund í ein- kennisbúninginn sem hann útbjó. Flest keypti Breivik með kred- itkortum, en hann átti þrettán bankareikninga í sjö löndum sem allir voru tómir í fyrravor. - þj Kostnaðarmat við hryðjuverk: Varði átta millj- ónum í ódæðin ÓDÆÐISMAÐURINN Breivik eyddi um 8,3 milljónum íslenskra króna í undir- búning hryðjuverkanna í fyrra. NORDICPHOTOS/AFP ORKUMÁL Framkvæmda- og veitu- stjórn Árborgar segir hugmyndir um virkjun við Efri Laugardæla- eyju sýna að ekki hafi verið um raunhæfar áætlanir að ræða hvorki hvað varðar arðsemi né tæknilega útfærslu. Þetta sýni yfirferð Verk- fræðistofu Suðurlands. „Framkvæmda- og veitustjórn leggst eindregið gegn því að farið verði í virkjun á þessum stað,“ segir í bókun sem áheyrnarfulltrúi Framsóknarflokks í bæjarráði gerði að umfjöllunarefni í gær. „Loksins hefur meirihluti Sjálf- stæðismanna áttað sig á því hversu arfavitlaus sú hugmynd að virkja Ölfusá við Selfoss var hjá þeim,“ bókaði Helgi S. Haraldsson. Bætti Helgi við að ekki væri hægt að skilja framkvæmda- og veitustjórn öðruvísi en að allar hugmyndir um virkjunina væru slegnar af. „Vegna þessa óska ég eftir því að lagðar verði fram upplýsingar um sundurliðaðan kostnað við alla þá vinnu sem fram hefur farið vegna hugmynda um Selfossvirkjun,“ bókaði Helgi og lagði til að Vega- gerðinni yrði formlega tilkynnt að allar hugmyndir um Selfossvirkjun hafi verið slegnar af borðinu. Sagði hann þess þurfa vegna yfirlýsingar á sínum tíma um skoðun á hugsan- legum samlegðaráhrifum virkjun- ar og fyrirhuguðu vega- og brúar- stæði nýrrar brúar yfir Ölfusá. - gar Framkvæmda- og veituráð Árborgar leggst eindregið gegn virkjun við Efri Laugardælu: Segir Selfossvirkjun óraunhæfa ÖLFUSÁ Vegagerðin er með áform um brúargerð þar sem heimamenn hafa velt fyrir sér virkjunarkostum. FÓLK Ingólfur Arnarson land- námsmaður mun mæta með langspil á skinnskýlu og vígja Ylströnd Ingólfs á Ingólfstorgi í dag klukkan 13.30. Þá mun Lúðrasveit landnámsmanna blása létta tóna við tilefnið. Ingólfur sjálfur mun taka nokkur lög í kjölfar landnáms- mannadans í boði danshóps frum- byggja. Mikið verður um að vera í mið- borg Reykjavíkur en nú stendur yfir Hátíð hafsins. Boðið verður upp á glóaldinsafa og landnáms- pönnukökur á Ingólfstorgi. Þá verður fiskisúpa framreidd við Laugaveg 32. - bþh Ylströnd á Ingólfstorgi: Ingólfur Arnar- son vígir torgið María, þarftu ekki bara að fara að skella þér í lyfjapróf? „Kannski þyrfti ég að minnsta kosti að fara í ofvirknispróf.“ María Birta Bjarnadóttir er með prófaæði eftir áramótaheit um að taka eins mörg próf og hún getur. Hún hefur þegar lokið fallhlífastökksprófi og skotvopnaprófi og stefnir á kafarapróf, mótorhjólapróf og einkaflugmannspróf. MENNING Leiksýningarnar Afmælisveislan, Heims- ljós, Hreinsun, Vesalingarnir og Tengdó eru til- nefndar til Grímuverðlauna sem besta sýning árs- ins. Tilnefningar voru kynntar í Tjarnarbíói í gær. Afmælisveislan hlaut flestar tilnefningar, sjö tals- ins, Heimsljós hlaut fimm og Hreinsun fjórar. Alls komu 89 sviðslistaverkefni til álita í ár til að hljóta Grímuna, að því er kemur fram á vef Grím- unnar. Þar af voru 23 danssýningar, 9 barnasýning- ar og 7 útvarpsverk. Verðlaun eru veitt í nítján verðlaunaflokkum, en fjórar sérstakar fagnefndir Grímunnar skoða verk- in með tilliti til verðlaunanna. Í ár var tekinn upp nýr verðlaunaflokkur, Sprot- inn, sem veittur er fyrir „frumleika og framúrskar- andi nýbreytni“ á leikárinu. Auk þess verða veitt hin árlegu heiðursverðlaun Grímunnar. Grímuhátíðin sjálf, árleg uppskeruhátíð sviðs- listageirans, verður haldin í tíunda sinn í Hörpu hinn 14. júní næstkomandi. Hátíðin verður í beinni útsendingu á Stöð 2 og daginn eftir verður sýndur sérstakur þáttur um hátíðina. - þj Tilnefningar til Grímuverðlaunanna árið 2012 voru tilkynntar í gær Afmælisveislan fékk sjö tilnefningar GRÍMAN Tilnefningar til Grímuverðlaunanna voru opinberaðar í gær. Þeir Björn Thors og Hilmir Snær Guðnason eru báðir tilnefndir fyrir leik sinn í Heimsljósi. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG Neikvæður um 43 milljarða Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæð- ur um 43,1 milljarð króna á fyrsta árs- fjórðungi þrátt fyrir að 18,5 milljarða afgangur hafi verið af vöruskiptum við útlönd. Rekja má óhagstæðan viðskiptajöfnuð til innlánsstofnana í slitameðferð. VIÐSKIPTAJÖFNUÐUR NOREGUR Áttundi hver Norðmaður er með fordóma gegn gyðingum, samkvæmt niðurstöðum könnun- ar á vegum Senter for Studier av Holocaust og livssynsminoriteter. Á vef Kristilega Dagblaðsins í Danmörku segir að könnunin leiði jafnframt í ljós að fjórði hver Norðmaður telji að gyðing- ar líti svo á að þeir séu betri en aðrir. Nær 40 prósent bera með- ferð Ísraela á Palestínumönnum saman við meðferð nasista á gyð- ingum. Talsmenn gyðinga segja niðurstöðurnar bera vott um van- þekkingu á gyðingdómi. -ibs Viðhorfskönnun í Noregi: Með fordóma gegn gyðingum SAMFÉLAGSMÁL Tryggingastofnun ríkisins mun ekki lengur hafa milligöngu um greiðslu meðlags til einstaklinga sem eru búsettir í öðrum EES-ríkjum. Í frétt á vef Tryggingastofnunar segir að um 45 einstaklinga sé að ræða. Í nýrri reglugerð sem tók gildi í gær er ekki litið á meðlags- greiðslur sem beinar fjölskyldu- bætur, en til að „milda afleiðing- ar breytinganna“ munu greiðslur falla niður frá og með 1. júlí. - þj Tryggingstofnun Íslands: Hættir milli- göngu um með- lagsgreiðslur SPURNING DAGSINS Dansaðu þig í form með einföldum sporum, skemmtilegri tónlist og góðum félagsskap. Jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna • Zumba - Þri og fim kl. 17:30 • Þjálfari: Lilja Rut - 4 vikur g g • Hefst 12. júní. Verð kr. 11.900
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.