Fréttablaðið - 02.06.2012, Page 24

Fréttablaðið - 02.06.2012, Page 24
2. júní 2012 LAUGARDAGUR Í mörg ár hefur verið rætt um ein-elti og afleiðingar þess og þekkja margir þennan fjanda sem einelti er. Margir hafa verið þolendur ein- eltis og margir hafa verið gerendur. Þeir eru ófáir sem eiga einhverja sögu úr grunnskóla um einelti og líta á sína eigin grunnskólagöngu sem helvíti á jörðu. Ég var þolandi eineltis og örugg- lega gerandi líka, ef svo var vona ég að þeir geti fyrirgefið mér. Ég hef fyrirgefið þeim sem lögðu mig í einelti. Fyrir rétt rúmum tuttugu árum var ég forfallakennari í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Á einni viku sá ég sjö einstaklinga lagða í einelti. Það kom mér á óvart hve mikið eineltið var og nefndi það við einn gamlan og reyndan kennara. Ein athugasemd situr í mér eftir það samtal, þegar við ræddum hvaða einstaklingar væru þolend- ur, hann sagði „Nei, þessi er ekki lagður í einelti, hann leitar í nei- kvæða athygli!“ Þetta var 1991 og við ekki komin lengra. Á heimasíðu umboðsmanns barna, www.barn.is, er að finna skýrslu frá ráðstefnunni „Börn vilja ræða um einelti við full- orðna“ sem haldin var 1998. Í for- mála segir: „Þar settust 80 börn og 50 fullorðnir á rökstóla og ræddu þetta alvarlega vandamál í blönduð- um umræðuhópum kynslóðanna.“ Þetta var 1998, hefur eitthvað breyst? Nú, fjórtán árum síðar er enn verið að ræða þennan fjanda sem ein- elti er. Mikið er rætt um hvort hinar eða þessar eineltisáætlanir virki. Við erum búin að ræða svo mikið að „Ísland án eiturlyfja árið 2000“ kemur upp í hugann! Það sem er merki- legt við þessa umfjöll- un um einelti er að hún einskorðast við börn og skólasamfélagið og að það sé skólanna að gera eitthvað í þessu vandamáli sem einelti er. Já, svo sannarlega á skólinn að taka þátt í að koma í veg fyrir einelti en það er ekki skólans að uppræta einelti. Það er samvinnuverkefni alls samfélagsins og það byrjar á heimilinu. „Það læra börnin sem fyrir þeim er haft“ kemur upp í hugann. Á heimilum, samskiptamiðlum og í fjölmiðlum hegða fyrirmyndirnar sér þannig að börn geta svo hæg- lega túlkað þeirra framferði sem samþykki fyrir t.d. einelti. Marg- ir kannast við að bölva mönnum og málefnum fyrir framan sjónvarpið, heyra börnin það? Birtingarmynd eineltis er alls staðar og eru stjórnmál gott dæmi um það. Heiftin ræður ríkjum og í skjóli fjarlægðar í gegn- um net- og fjölmiðla stunda stjórnmálamenn það að reyna að koma höggi á andstæðinginn undir því yfirskyni að þeir séu að láta frjálsar skoðanir í ljós og oftar en ekki er ýmislegt látið vaða sem særir. Það særir ekki bara þann sem fyrir verður heldur vini, fjölskyldu og börn. Stundum ganga stjórn- málamenn það langt að embættismenn verða ítrekað fyrir aðkasti án þess að þeir síðarnefndu geti hönd yfir höfuð sér borið. Sér barnið þitt hvað þú skrifar um náungann á samskiptamiðlum eins og fésbók? Getum við leyft okkur að skrifa hvað sem er, jafn- vel í reiði og réttlætt það? Eru fúk- yrði skoðun? Er dónaskapur túlk- un? Hugsum áður en við tjáum okkur. Árið er 2012 og einelti er sam- félagslegur fjandi sem við þurfum að útrýma! Sér barnið þitt hvað þú skrifar um náungann á samskipta- miðlum eins og fésbók? Einelti, samfélagslegur fjandi! Þegar sameiningartákn þjóðar-innar sat á Bessastöðum gaf þingið sjávarauðlind þjóðarinn- ar, tók verðtryggingu af launum en ekki skuldum, einkavinavæddi ríkisbankana og svo má lengi telja. Okkur leið vel með táknrænan for- seta. En þegar við kjósum til emb- ættisins í sumar skulum við samt spyrja hvort okkur liði ekki betur í dag hefði forsetinn skotið þessum málum til þjóðarinnar. Við værum eflaust með réttlátara fiskveiði- kerfi, verðtryggingin væri án efa minningin ein og hér hefði mögu- lega ekki orðið bankahrun, eða í það minnsta ekki jafn stórt. Kjósendur eru hluti löggjafarvaldsins Á meðan að greiðasta leiðin til að komast á þing er með stuðningi sérhagsmunaaðila munu fæstir þingmenn vera fulltrúar almenn- ings. Minnihlutahópar þurfa að sjálfsögðu vörn fyrir ofríki meiri- hlutans, svo fulltrúalýðræði hefur sína kosti, en þegar þingið þóknast sérhagsmunum og setur lög gegn almannahag þá þarf almenningur að grípa fram fyrir hendurnar á Alþingi. Stjórnarskráin heimilar forset- anum að aðstoða almenning til þess, en það er misskilningur að hann hafi neitunarvald. Við synjun forseta á lagafrumvarpi „fær það engu að síður lagagildi, en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningar- bærra manna í landinu til sam- þykktar eða synjunar“ eins og segir í 26. grein stjórnarskrárinnar. Það eru kjósendur sem hafa neitunar- valdið. Kjósendur í landinu eru hluti af löggjafarvaldinu. En þeir þurfa að treysta á að forsetinn virki þetta vald þeirra, að hann skjóti málum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Málskotsrétturinn veitir Alþingi aðhald Hvort sem okkur líkar það betur eða verr þá mun stór hluti kjós- enda halda áfram að skora á for- setann að beita málskotsréttinum. Forseti sem í framtíðinni er tregur til að skjóta málum til þjóðarinn- ar mun sundra henni en ekki sam- eina. En málskotsréttur forsetans getur verið sameiningarafl. Hann veitir Alþingi aðhald við lagasetn- ingu. Hann þrýstir á þingið að vera samstiga þjóðinni í stórum málum. Málskotsrétturinn getur því verið afl sem betur sameinar hagsmuni þings og þjóðar. Þing sem er meira samstiga þjóðinni Í lok júní getum við kosið forseta sem á að sameina þjóðina með því að stappa í okkur stálið frá hliðar- línunni; á meðan hagsmunir þings og þjóðar reka áfram í sundur; á meðan hunsaðar kröfur kjósenda um málskot verða háværari. Eða við getum kosið forseta sem finnst sjálfsagt að við kjósendur fáum færi á að gefa lagafrumvörpum þingsins rauða spjaldið; forseta sem þingið veit að stendur með þjóðinni þegar hagsmunagjá myndast þar á milli; forseta sem sameinar þann- ig hagsmuni þings og þjóðar að við getum spilað betur saman sem liðs- heild. Mætum á kosningavöllinn og styðjum málskotsréttinn til sigurs. Sameiningarafl þjóðarinnar Forsetaembættið Jón Þór Ólafsson starfsmaður á plani Forseti sem í framtíðinni er tregur til að skjóta mál- um til þjóðarinnar mun sundra henni … Einelti Héðinn Sveinbjörnsson rekstrarstjóri Frostaskjóls Samfélagsstyrkir Landsbankans landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Landsbankinn veitir 10 milljónir króna í samfélagsstyrki, til 20 verkefna í fyrri úthlutun fyrir árið 2012. Nánari upplýsingar á landsbankinn.is. Umsóknarfrestur til 4. júní. ÓDÝRASTI ÍSINN Í BÓNUS Á ÞRIÐJA HUNDRAÐ EURO SHOPPER VÖRUTEGUNDIR Í BOÐI 398 kr. 12 stk. 498 kr. 8 stk. 298 kr. 3 stk.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.