Fréttablaðið - 02.06.2012, Side 42
2. júní 2012 LAUGARDAGUR42
RÚSSLAND Alan Dzagoev
Miðjumaður | CSKA Moskva | 21 árs | 1,79 m
Dzagoev varð yngsti útivallarleikmaðurinn til að spila
með rússneska landsliðinu aðeins átján ára og 116
daga. Þykir hógvær og hvetjandi fyrir liðsfélaga sína.
Kolbeinn Tumi: „Sóknarþenkjandi miðjumaður og
hjartað í sóknarleik Rússa. Fjölhæfur leikmaður sem
skapar færi fyrir félaga sína og stórhættulegur klárari
hvort sem er innan eða utan teigs.“
GRIKKLAND Sotiris Ninis
Miðjumaður/Hægri kantmaður | Parma | 22 ára | 1,73 m
Leikni Ninis á boltanum hefur verið lýst sem „svimandi“.
Spilar með Parma á næstu leiktíð eftir að hafa gert garðinn
frægan með Panathinaikos síðustu ár.
Kolbeinn Tumi: „Frábær skot- og sendingarmaður
með rándýran hægri fót. Ekki líkamlega sterkur en afar
snöggur.“
FRAMHALD AF SÍÐU 40
Marco Reus
Framherji | Borussia Mönchengladbach/Borussia Dortmund | 23
ára | 1,80 m
Andre Schürrle
Framherji/Kantmaður | Bayer Leverkusen | 21 árs | 1,84 m
Mario Götze
Miðjumaður/Kantmaður | Borussia Dortmund | 19 ára | 1,76 m
Toni Kroos
Miðjumaður/Kantmaður | FC Bayern | 22 ára | 1,82 m
Flestir veðbankar spá Þýskalandi sigri á Evrópumótinu og ef fram heldur
sem horfir munu Þjóðverjar vera í verðlaunasæti á stórmótum næstu tíu
árin. Í 23 manna leikmannahópi Þýska liðsins eru 15 leikmenn 25 ára eða
yngri og tólf af þeim eru 23 ára eða yngri. Til samanburðar eru fimm í enska
hópnum 25 ára eða yngri og sjö í þeim spænska. Miðvallarleikmaðurinn
Mario Götze er yngsti leikmaður liðsins, tvítugur að aldri. Hann er einn allra
efnilegasti knattspyrnumaður heims í dag og þrátt fyrir ungan aldur hefur
hann tvívegis orðið þýskur meistari með Dortmund. Götze er þessi týpa
sem labbar fram hjá mönnum. Toni Kroos, leikmaður Bayern Munchen,
er 22 ára miðvallarleikmaður með ótrúlega öflugan hægri fót. Hann mun
væntanlega fá að spila mikið því í undankeppninni tók hann þátt í átta af
tíu leikjum Þjóðverja. Kroos fær kannski ekki alltaf það hrós sem hann á
skilið. Marco Reus er 23 ára framherji skástrik kantmaður sem skoraði 18
mörk og lagði upp níu með Borussia Monchengladbach í þýsku deildinni
í vetur. Hann er eldsnöggur, leikinn og jafnvígur með hægri og vinstri fæti.
Dortmund hefur keypt Reus. Hinn 21 árs gamli André Schürrle, sem spilar
með Bayer Leverkusen, mun leika í treyju númer níu á EM. Líkt og Reus
getur hann leikið sem framherji eða kantmaður. Þó hann hafi ekki skorað
nema sex mörk með félagsliði sínu í vetur er tölfræði hans með þýska
landsliðinu ótrúleg. Hann skoraði 10 mörk í 11 leikjum með U19-liðinu,
fimm mörk í fimm leikjum með U21-liðinu og hann hefur þegar skorað sjö
mörk í 14 leikjum með aðalliðinu. Nýr Klose? Kannski.
Kolbeinn Tumi: „Sú staðreynd ein að ekki er pláss fyrir alla leikmennina í
byrjunarliði Þjóðverja gefur til kynna hve ógnarsterkt landsliðið er. Kroos
er þegar orðinn lykilmaður og Schürrle virðist skora í hvert skipti sem hann
klæðist búningnum. Hinum léttleikandi Götze og Reus er hrein unun að
fylgjast með. Þeirra kynslóð gerir það að verkum að Þýskaland er líklegt til
afreka á öllum stórmótum næsta áratuginn.“
ÞÝSKA ÜBER-KYNSLÓÐIN
MARCO REUS ANDRE SCHÜRRLE
MARIO GÖTZE TONI KROOS
FRAKKLAND Yann M‘Vila
Miðjumaður | Rennes | 21 árs | 1,82 m
Þrátt fyrir ungan aldur er M‘Vila af mörgum talinn einn
besti varnarsinnaði miðjumaður Evrópu. Yfirgefur Rennes
nánast örugglega í sumar fyrir stærra lið og hafa bæði
Arsenal og Inter Milan sýnt áhuga. M’Vila meiddist í
æfingaleik gegn Serbum í fyrradag og enn er óljóst hversu
alvarleg þau meiðsl eru.
Kolbeinn Tumi: „Djúpi miðjumaðurinn sem varnarlína
Frakka saknaði sárlega gegn Íslandi. Þekkir sín takmörk og
skilar boltanum vel frá sér á sóknarsinnaðri samherja. Svo
sannfærðir eru forráðamenn Rennes um ágæti M‘Vila að
þeir neita að hlusta á tilboð stórliða þar til eftir að hann
slær í gegn á EM.“
ÚKRAÍNA Andriy Yarmolenko
Framherji/Vinstri kantmaður | Dynamo Kyiv |
22 ára | 1,87 m
Yarmolenko fæddist í Rússlandi en fluttist ungur að
árum til Úkraínu. Ekki minni maður en nafni hans
Shevchenko hefur lýst honum sem „framtíð úkraínskar
knattspyrnu“. Skoraði fljótasta markið í sögu Úkraínska
landsliðsins eftir aðeins fimmtán sekúndur gegn
Uruguay á síðasta ári. Hefur verið orðaður við Arsenal.
Kolbeinn Tumi: „Ótrúleg tækni og hraði gera Yarmu-
lenko að martröð varnarmannsins í stöðunni maður
gegn manni. Örvfættur kantmaður sem á að sjá
Shevchenko fyrir mörkum eða, eins og hann gerir ekki
minna af, skora þau sjálfur.“