Fréttablaðið - 02.06.2012, Side 76
KYNNING − AUGLÝSINGSumar á Norðurlandi LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 20126
Á listanum yfir það sem er ómissandi að gera á Norður-landi er að sjálfsögðu heim-
sókn í Vatnajökulsþjóðgarð. Þjóð-
garðurinn er víðfeðmur og nær
yfir tæp þrettán prósent landsins.
Honum er skipt í fjögur svæði og á
norðursvæðinu má meðal annars
finna náttúruperlur eins og Öskju,
Herðubreiðarlindir, Dettifoss og
Ásbyrgi.
Dettifoss og Mývatn
Dettifoss er aflmesti foss Íslands.
Hann er 44 metra hár og rúm-
lega hundrað metra breiður og er
í Jökulsá á Fjöllum sem er hluti af
Vatnajökulsþjóðgarði. Hann þarf
að skoða þegar Norðurlandið er
heimsótt.
Í Mý vatnssveit og nágrenni
er fjöldi náttúruperla, til dæmis
Dimmuborgir, Höfði, Námafjall
og margt fleira. Eldgígar og eldfjöll
móta landslag Mývatns sveitar og
frægar eldstöðvar eru þar margar,
til dæmis Kraf la og Hver fell. Í
kringum Mý vatn er mikið af
fjöllum sem eru kjörin til að ganga
á. Ekki má svo gleyma að nefna
Jarðböðin við Mývatn.
Flúðasiglingar fyrir spennuþyrsta
Þeir sem vilja smá spennu geta
farið í flúðasiglingu niður Jökuls-
á vestari eða austari. Ferðirnar
eru mjög vinsælar og hægt er að
velja um mismunandi ferðir eftir
því hvað hentar hverjum. Fyrir
yngstu og elstu meðlimina hentar
að fara á Blöndu en það er tilvalin
skemmtun fyrir fjölskyldur með
ung börn. Þeir sem eru tólf ára og
eldri geta farið á vestari Jökulsá og
sú austari er fyrir þá sem eru átján
ára og eldri og langar að reyna
meira á sig. Reyndir leiðsögumenn
eru með í öllum flúðasiglingunum.
Söfn á hverju strái
Mikill fjöldi safna er á Norðurlandi.
Sem dæmi má nefna söfn eins og
Textílsafnið á Blönduósi, Síldar-
minjasafnið á Siglufirði, Náttúru-
gripasafn Fjallabyggðar á Ólafs-
firði, Selasetrið á Hvammstanga,
Vesturfarasetrið á Hofsósi, Byggða-
safnið Hvoll á Dalvík, Safnahúsið
á Húsavík, Flugsafnið á Akureyri,
auk fjölda byggðasafna og lista-
safna.
Hvalir og selir
Hvalaskoðunarferðir aukast sífellt
og er nánast skylda fyrir þá sem
heimsækja Norðurland að fara í
eina slíka ferð. Norðurlandið er
eitt besta hvala skoðunar svæði
landsins og þar má sjá fjölda
hvalategunda svo sem hrefnur,
höfrunga, hnúfubaka og jafnvel
steypireyðar leika sér við báts-
hliðina.
Það er ekki síður skemmtilegt
að skoða seli og hvergi er betra að
skoða þessi fallegu dýr en í þeirra
náttúrlega umhverfi. Selasetur Ís-
lands er á Hvammstanga og þar er
hægt að fræðast um allt sem við-
kemur selum.
Að sjálfsögðu verða gestir
Norður lands að gera vel við sig í
mat og drykk því í fjórðungnum
er ógrynni veitingastaða og kaffi-
húsa sem bjóða upp á dýrindis
veitingar og kósíheit.
Ómissandi á Norðurlandi
Á vefsíðunni Nordurland.is má finna mikið af alls kyns upplýsingum um landsfjórðunginn. Þar má til dæmis finna lista yfir það sem
þykir ómissandi að gera þegar Norðurland er sótt heim. Á listanum eru meðal annars fjöldi náttúruperla, hvalaskoðanir og fleira.
Flúðasiglingar eru tilvaldar fyrir þá sem langar að upplifa ævintýri. Hægt er að velja milli
nokkurra áa eftir því hverjir ætla með, Jökulsá austari hentar þeim sem eru átján ára og
eldri. Vestari er fyrir þá sem eru orðnir tólf ára og Blanda hentar fjölskyldum með ung
börn. NORDIC PHOTO/GETTY
Hvalaskoðunarferðir eru orðnar ein vin-
sælasta afþreying ferðamanna sem koma
hingað til lands. Norðurlandið hentar
einstaklega vel til þess konar ferða.
Nauðsynlegt er að fara og skoða seli í sínu
náttúrulega umhverfi og einnig má kynna
sér þessi fallegu dýr nánar á Selasetrinu á
Hvammstanga.
Dettifoss er aflmesti foss landsins. Það er ómissandi að skoða fossinn þegar Norðurland
er sótt heim. MYND/VILHELM
Eitt merkilegasta og fallegasta náttúrugripasafn landsins er Fuglasafn Sigurgeirs sem
stendur við Mývatn. Safnið á um
330 uppstoppaða fugla og um 500
egg. Í sýningarsalnum sjálfum
eru sýnd 280 fuglar og 300 egg.
Pétur Bjarni Gíslason, safnstjóri
Fuglasafnsins, segir safnið búa
yfir öllum uppstoppuðum ís-
lenskum varpfuglum utan tveggja
fugla. „Við höfum haförn að láni
frá Náttúrufræðistofnun og síðan
vantar okkur alltaf þórshanann.
Annars má finna alla íslenska
varpfugla á safninu.“ Fugla safnið
var byggt til minningar um Sigur-
geir Stefáns son sem lést
af slys förum árið 1999.
Sigur geir byrjaði snemma
að safna eggjum og að
stoppa upp fugla. Pétur
segir það vera sérstakt við
fuglasafnið að lítið sé um
skotinn fugl. „Það vissu
allir í sveitinni af þessari
ástríðu Sigurgeirs. Ef ein-
hver í sveitinni fann dauðan fugl
var hringt í hann og spurt hvort
hann vildi eiga fuglinn. Hann átti
fulla frystikistu af dauðum fuglum
og stoppaði upp eftir efnum.“
Aðsóknin hefur verið ágæt að
sögn Péturs og safnið vel sótt af
Íslendingum. „Fuglaskoðun er
kannski ekki algengasta áhuga-
mál Íslendinga og mörgum þykir
kannski ekki spennandi kostur
að kíkja á fuglasafn við Mývatn.
Svo þegar inn er komið gengur
erfiðlega að draga gesti út, svo
skemmtilegt þykir þeim safnið.
Gestum finnst fuglasafnið allt
öðruvísi en það bjóst við og það
fer yfirleitt langt fram úr
væntingum gesta, bæði
innlendra og erlendra.“
Í júní hefjast daglegar
skoðunarferðir frá safn-
inu í samstarfi við ýmsa
ferðaþjónustuaðila. „Við
munum einnig bjóða upp
á spennandi fuglaskoð-
unarpakka í samstarfi
v ið f leiri ferðaþjónustu aðila.
Ferðirnar standa yfir í þrjá til
fimm daga og við stílum inn á Mý-
vatnsveitina og norður á Langa-
nes.“ Pétur segir mögulegt að sjá
94-96% íslenskra fugla í ferðum
á þessu svæði. „Besti tíminn til
að skoða fuglana er frá miðjum
apríl fram í mánaðarmót maí og
júní. Þetta er yfirleitt frekar ró-
legur tími í ferða þjónustunni og
því kærkomin viðbót.“
Fuglaparadís
Stærsta fuglasafn landsins stendur við Mývatn.
Safnið hefur vakið mikla athygli og farið langt fram
úr væntingum gesta.
Pétur Bjarni
Gíslason safnstjóri.
Fuglasafn Sigurgeirs stendur við Mývatn.
MYND/ÚR EINKASAFNI
www.rit.is
„Árstíðirnar í garðinum“ er fimmta bókin í bókaflokknum Við ræktum, sem Sumarhúsið og garðurinn gefur út.
Höfundur er Vilmundur Kip Hansen garðyrkju- og þjóðfræðingur, einn þekktasti penni í garðyrkju á Íslandi.
Ljósmyndir Páls Jökuls Péturssonar úr íslenskum görðum prýða bókina.
Í bókinni er fjallað um garðverkin og fjölda plantna, hvort sem um er að ræða sumarblóm, haustlauka, grænmeti,
laukjurtir, fjölda kryddtegunda, sígræn og lauffellandi tré og runna, úrval ávaxtatrjáa og berjarunna.
VIÐ RÆKTUM
Bókaklúbburinn Við ræktum var settur á laggirnar vorið 2005
þegar fyrsta bókin kom út, Garðurinn allt árið. Árstíðirnar í
garðinum er fimmta bókin í flokknum, en einnig hafa komið út
bækurnar Lauftré á Íslandi, Barrtré á Íslandi og Matjurtir.
Félagar í bókaklúbbnum fá bækurnar á betra verði.
Skráning í bókaklúbbinn er í síma 578 4800 eða á www.rit.is
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ö
n
n
u
n
u
n
Önnur prentun komin út
stærri og endurbætt útgáfa
Alíslensk
garðyrkjubók